Fyrsta Mósebók 50Krans-útgáfa

Gamla testamentiðLögmálið

Fyrsta Mósebók 50

Jósef laut þá ofan að andliti föður síns og grét yfir honum og kysti hann.

Og Jósef bauð þjónum sínum, læknunum, að smyrja föður sinn. Og læknarnir smurðu Ísrael.

Og til þess gengu fjörutíu dagar, því að svo lengi stendur á smurningunni. Og Egiptar syrgðu hann sjötíu daga.

Og er sorgardagarnir voru liðnir, kom Jósef að máli við hirðmenn Faraós og mælti: Hafi eg fundið náð í augum yðar, þá berið Faraó þessi orð mín:

og mælti: Hafi eg fundið náð í augum yðar, þá berið Faraó þessi orð Faðir minn tók eið af mér og sagði: »Sjá, nú mun eg deyja; í gröf minni, sem eg gróf handa mér í Kanaanlandi, — þar skaltu jarða mig. Leyf mér því að fara og jarða föður minn; að því búnu skal eg koma aftur.

Og Faraó sagði: Far þú og jarða föður þinn, eins og hann lét þig vinna eið að.

Og Jósef fór að jarða föður sinn og með honum fóru allir þjónar Faraós, öldungar hirðarinnar og allir öldungar Egiptalands

og allir heimilismenn Jósefs, svo og bræður hans og heimilismenn föður hans; aðeins létu þeir börn sín, sauði sína og nautgripi eftir verða í Gósenlandi.

Í för með honum voru vagnar og riddarar, og var það stór-mikið föruneyti.

En er þeir komu til Góren-haatad, sem er hinumegin við Jórdan, þá hófu þeir þar harmakvein mikið og hátíðlegt mjög; og hann hélt sorgarhátíð eftir föður sinn í sjö daga.

Og er landsbúar, Kanaanítar, sáu sorgarhátíðina í Góren-liaatad, sögðu þeir: Þar halda Egiptar mikla sorgarhátíð. Fyrir því var sá staður nefndur Abel-Mísraím; liggur hann hinumegin við Jórdan.

Og synir hans gjörðu svo við hann sem hann hafði boðið þeim.

Og synir hans fluttu hann til Kanaanlands og jörðuðu hann í helti Makpela-lands, sem Abraham hafði keypt ásamt akrinum fyrir grafreit af Efron Hetíta, gegnt Mamre.

Og Jósef fór aftur til Egiptalands, er hann hafði jarðað föður sinn, hann og bræður hans og allir, sem með honum höfðu farið að jarða föður hans.

En er bræður Jósefs sáu að faðir þeirra var dáinn, hugsuðu þeir: En ef Jósef nú fjandskapaðist við oss og launaði oss alt hið illa, sem Vér höfum gjört honum!

Og þeir gjörðu Jósef svolátandi orðsending: Faðir þinn mælti svo fyrir, áður en hann dó:

Þannig skuluð þjer mæla við Jósef: »Æ, fyrirgef bræðrum þínum misgjörð þeirra og synd, að þeir gjörðu þér ilt«. Fyrirgef því misgjörðina þjónum þess Guðs, sem faðir þinn dýrkaði. Og Jósef grét, er þeir mæltu svo til hans.

Því næst komu bræður hans sjálfir og féllu fram fyrir honum Og sögðu: Sjá, vér erum þrælar þínir,

En Jósef sagði við þá: Óttist ekki! því að er eg í Guðs stað?

Þér ætluðuð að gjöra mér út, en Guð sneri því til góðs, til að gjöra það, sem nú er fram komið, að halda lífinu í mörgu fólki.

Verið því óhræddir; eg skal annast yður Og börn yðar. Síðan hughreysti hann þá og talaði við þá blíðlega.

Jósef bjó í Egiptalandi, hann og ættlið föður hans. Og Jósef Varð hundrað og tíu ára gamall.

Og Jósef sá niðja Efraíms í þriðja lið. Og synir Makírs, sonar Manasse, fæddust á kné Jósefs.

Og Jósef sagði við bræður sína: Nú mun eg deyja; en Guð mun vissulegavitja yðar og flytja yður úr þessu landi til þess lands, sem hann hefir svarið Abraham, Ísak og Jakob.

Jósef tók eið af Ísraelssonum og mælti: Sannlega mun Guð vitja yðar; flytjið þá bein mín héðan.

Og Jósef dó hundrað og tíu ára gamall; og þeir smurðu hann og hann var kistulagður í Egiptalandi.