Gamla testamentiðLögmálið
Þá lét Jakob kalla sonu sína og mælti: Safnist saman, að eg megi birta yður það, sem fyrir yður liggur á komandi tímum.
Skipist saman og hlýðið til, synir Jakobs, hlýðið á Ísrael föður yðar!
Rúben, þú ert frumgetningur minn, kraftur minn og frumgróði styrkleika míns, fremstur að virðingum og fremstur að völdum.
En þar eð þú ólgar sem vatnið, skalt þú eigi fremstur vera; því að þú gekst í hvílu föður þíns, þá flekkaðir þú hana — í hjónasæng mína hefir hann gengið!
Símeon og Leví eru bræður; tól ofbeldis eru sverð þeirra.
Sál mín komi ekki á ráðstefnu þeirra, sæmd mín hafi eigi félagsskap við söfnuð þeirra; því að í reiði sinni drápu þeir menn og í ofsa sínum skáru þeir á hásinar nautanna.
Bölvuð sé reiði þeirra, því að hún var römm, og bræði þeirra, því að hún var grimm. Eg vil dreifa þeim í Jakob og tvístra þeim í Ísrael.
Júda, þig munu bræður þínir vegsama; hönd þín mun vera á hálsi óvina þinna; synir föður þíns skulu lúta þér.
Júda er ljónshvolpur — frá ránum ert þú stiginn upp, sonur minn; hann legst niður, hann hvílist sem ljón og sem ljónynja; hver þorir að reka hann á fætur?
Ekki mun veldissprotinn víkja frá Júda, né ríkisvöndurinn frá fótum hans, unz hann kemur til Síló og þjóðirnar ganga honum á hönd.
Hann bindur við víntré ösnufola sinn og við gæða-vínvið son ösnu sinnar; hann þvær klæði sín í víni og möttul sinn í vínberjablóði;
vínmóða er í augum hans og tennur hans hvítar af mjólk.
Sebúlon mun búa við sjávarströndina, við ströndina þar sem skipin liggja, og land hans vita að Zídon.
íssakar er beinásterkur asni, sem liggur á milli fjárgirðinganna.
Og hann sá, að hvíldin var góð og að landið var unaðslegt; og hann beygði herðar sínar undir byrðar og varð vinnuskyldur þræll.
Dan mun rétta hluta þjóðar sinnar, sem hver önnur Ísraels ættkvísl.
Verði Dan höggormur á veginum og naðra í götunni, sem hælbitur hestinn, svo að reiðmaðurinn fellur aftur á bak.
Þinni hjálp treysti eg, Drottinn!
Gað — ræningjaflokkur fer að honum, en hann rekur þá á flótta.
Asser — feit er fæða hans og hann veitir konungakrásir.
Naftalí er rásandi hind, frá honum koma fegurðarorð.
Jósef er ungur aldinviður, ungur aldinviður við uppsprettulind; greinar hans teygja sig upp yfir múrinn.
Bogmenn veittust að honum, skutu að honum og ofsóttu hann;
en bogi hans reyndist stinnur og handleggir hans voru fimir, — sá styrkur kom frá Jakobs volduga, þaðan, frá þeim, sem gætir Ísraels steins,
frá Guði föður þíns — og hann hjálpi þér — frá almáttugum Guði — og hann blessi þig, með blessun himinsins að ofan, með blessun djúpsins, er undir hvílir, með blessun brjósta og móðurlífs.
BJessunin, sem faðir þinn hlaut, gnæfði hærra en hin öldnu fjöll, hærra en unaður hinna eilífu hæða; hún komi yfir höfuð Jósefs og í hvirfil hans, sem er höfðingi meðal bræðra sinna.
Benjamín er úlfur, sem sundurrifur: á morgnana etur hann bráð og á kveldin skiftir hann herfangi.
Allir þessir eru tólf kynþættir Ísraels og þetta er það, sem faðir þeirra talaði við þá; og hann blessaði þá; sérhvern blessaði hann með þeirri blessun, er honum bar.
Og hann bauð þeim og mælti við þá: Eg safnast nú til míns fólks; jarðið mig hjá feðrum mínum, í hellinum, sem er í landi Efrons Hetíta,
í hellinum, sem er í Makpela-landi og liggur gegnt Mamre í Kanaanlandi og Abraham keypti með akrinum af Efron Hetíta fyrir grafreit.
Þar hafa þeir jarðað Abraham og Söru konu hans; þar hafa þeir jarðað Ísak og Rebekku konu hans og þar hefi eg jarðað Leu.
Akurinn og hellirinn, sem á honum er, hafði keyptur verið af Hetítum.
Og er Jakob hafði lokið þessum fyrirmælum við sonu sína, lagði hann fætur sína upp í hvíluna og andaðist og safnaðist til síns fólks.