Fyrsta Mósebók 47Krans-útgáfa

Gamla testamentiðLögmálið

Fyrsta Mósebók 47

Því næst gekk Jósef fyrir Faraó, sagði honum frá og mælti: Faðir minn og bræður mínir eru komnir úr Kanaanlandi með sauði sína og nautgripi og alt, sem þeir eiga, og eru nú í Gósenlandi.

En hann hafði tekið fimm af bræðrum sínum með sér og leiddi þá fyrir Faraó.

Þá mælti Faraó við bræður Jósefs: Hver er atvinna yðar? Og þeir svöruðu Faraó: Þjónar þínir eru hjarðmenn, bæði vér og feður vorir.

Og þeir sögðu við Faraó: Vér erum komnir til að staðnæmast um hríð í landinu; því að enginn hagi er fyrir sauði þjóna þinna, af því að hallærið er mikið í Kanaanlandi; leyf því þjónum þínum að búa í Gósenlandi.

Og Faraó sagði við Jósef: Faðir þinn og bræður þínir eru komnir til þín.

Egiptaland er þér heimilt, lát þú föður þinn og bræður þína búa þar sem landkostir eru beztir; búi þeir í Gósenlandi, og ef þú þekkir nokkra duglega menn meðal þeirra, þá fel þeim yfirumsjón hjarða minna.

Þá for Jósef inn með Jakob loðllr sinn og leiddi hann fyrir Faraó. Og Jakob heilsaði Faraó með nlessunaróskum.

Og Faraó sagði við Jakob: Hversu gamall ert þú?

Og Jakob svaraði Faraó: Vegferðartími minn er hundrað og þrjátíu ár; fáir og illir hafa dagar lífs míns verið og ná ekki þeirri áratölu, er feður mínir náðu á vegferð sinni.

Síðan kvaddi Jakob Faraó með blessunaróskum og gekk út frá honum.

Og Jósef fékk föður Sínum og bræðrum bústaði og gaf þeim fasteign í Egiptalandi, þar sem beztir voru landkostir, í Ramses-landi, eins og Faraó hafði boðið.

Og Jósef sá föður sínum og bræðrum sínum og öllu skuldaliði föður síns fyrir viðurværi eftir tölu barnanna.

Og algjör skortur var á neyzlukorni um alt landið, því að hallærið var mjög mikið og Egiptaland og Kanaanland voru að þrotum komin af hungrinu.

Og Jósef dró Saman alt það silfur, sem til var í Egiptalandi og Kanaanlandi, fyrir komið, sem þeir keyptu; og Jósef skilaði silfrinu í hús Faraós.

Og er silfur þraut í Egiptalandi og í Kanaanlandi, þá komu allir Egiptar til Jósefs og sögðu: Lát oss fá brauð! hví skyldum vér deyja fyrir augum þér? því að silfur þrýtur.

Og Jósef mælti: Komið hingað með fénað yðar; eg skal gefa yður korn til neyzlu fyrir fénað yðar, ef silfur þrýtur,

Þá fóru þeir með fénað sinn til Jósefs og hann lét þá fá neyzlukorn fyrir hestana, sauðféð, nautpeninginn og asnana, og hann birgði þá upp með korni það árið fyrir allan fénað þeirra.

Og er það árið var liðið, komu þeir til hans næsta ár og sögðu við hann: Eigi viljum vér leyna herra vorn því, að silfrið er alt þrotið og kvikfénaður vor er orðinn eign herra vors; nú er ekki annað eftir handa herra vorum en líkamir vorir og ekrur vorar.

Hví skyldum vér farust fyrir augsýn þinni, bæði vér og ekrur vorar? Kaup þú oss og ekrur vorar fyrir brauð, þá viljum vér með ekrum vorum vera þrælar Þaraós; og gef þú oss sáðkorn, að vér megum lífi halda og ekki deyja ekrurnar leggist ekki í auðn.

Þá keypti Jósef allar ekrur Egipta handa Faraó, því að Egiptar seldu hver sinn akur, þar eð hungrið Svarf að þeim. Og þannig eignaðist Faraó landið.

Og landslýðinn Sjörði hann að þrælum frá einum enda Egiptalands til annars.

Ekrur prestanna einar keypti hann ekki; því að prestarnir höfðu ákveðnar tekjur frá Faraó og þeir lifðu af hinum ákveðnu tekjum sínum, sem Faraó gaf þeim; fyrir því seldu þeir ekki ekrur sínar.

Þá sagði Jósef við lýðinn: Sjá, nú hefi eg keypt yður og ekrur yðar Faraó til handa; hér er sáðkorn handa yður og sáið nú ekrurnar.

En af ávextinum Skuluð þér skila Faraó fimta hluta, en hina fjóra fimtuhlutana skuluð Þér hafa til þess að sá akrana og yður til viðurlífis og heimafólki yðar Og börnum yðar til framfærslu.

Og þeir svöruðu: Þú hefir haldið í oss lífinu. Lát oss finna náð í augum þínum, herra minn, og þá viljum vér vera þrælar Faraós.

Og Jósef leiddi það í lög, sem haldast alt til þessa dags, að Faraó skyldi fá fimta hlutann af akurlendi Egipta; ekrur prestanna einar urðu ekki eign Faraós.

Og Ísrael bjó í Egiptalandi, í Gósenlandi, og þeir festu þar bygð og juku kyn sitt, svo að þeim fjölgaði mjög.

En Jakob lifði í seytján ár í Egiptalandi; og dagar Jakobs, æfiár hans, voru hundrað fjörutíu og sjö ár.

Og er dró að dauða Ísraels, lét hann kalla Jósef son sinn og sagði við hann: Hafi eg fundið náð í augum þínum, þá legg hönd þína undir lend mína og auðsýn mér elsku og trúlesti: jarða mig ekki í Egiptalandi;

eg vil hvíla hjá feðrum mínum, og skalt þú flytja mig burt úr Egiptalandi og jarða mig í gröf þeirra. Og hann svaraði: Eg vil gjöra svo sem þú hefir fyrir mælt.

Þá sagði hann: Vinn þú mér eið að því! Og hann vann honum eiðinn. Og Ísrael hallaði sér niður að höfðalaginu. Jakob ættleiðir Manasse og Efraím og blessar þá.