Gamla testamentiðLögmálið
Og Ísrael lagði af stað með alt sitt, og hann kom til Beerseba og færði þar Guði Ísaks föður síns sláturfórn.
Og Guð talaði við Ísrael í sýn um nóttina og sagði: Jakob, Jakob! Og hann svaraði: Hér er eg.
Og hann sagði: Eg er Guð, Guð föður þíns. Óttast þú ekki að fara til Egiptalands, því að þar mun eg gjöra þig að mikilli þjóð.
Eg mun fara með þér til Egiptalands og eg mun líka flytja þig þaðan aftur og Jósef skal veita þér nábjargirnar.
Þá tók Jakob sig upp frá Beerseba, og Ísraels synir fluttu Jakob föður sinn og börn sín og konur sínar á vögnunum, sem Faraó hafði sent til að flytja hann á.
Og þeir tóku fénað sinn og fjárhluti, sem þeir höfðu aflað sér í Kanaanlandi, og komu til Egiptalands, Jakob og allir niðjar hans með honum;
sonu sína og sonasonu, dætur sínar og sonadætur og alla niðja sína flutti hann með sér til Egiptalands.
Þessi eru nöfn Ísraels sona, sem komu til Egiptalands: Jakob og synir hans. Rúben, frumgetinn son Jakobs.
En synir Rúbens voru: Hanok, Pallú, Hezron og Karmi.
Og synir Símeons: Jemúel, Jamín, Óhad, Jakín, Zóar og Sál, sonur kanversku konunnar.
Og synir Leví: Gerson, Kahat og Merarí.
Og synir Júda: Ger, Ónan, Sela, Perez og Sera; en Ger og Ónan dóu í Kanaanlandi; en synir Perez voru: Hesron og Hamúl.
Og synir Íssakars: Tóla, Púva, Job og Símron.
Og synir Sebúlons: Sered, Elon og Jahleel.
Þessir eru synir Leu, sem hún fæddi Jakob í Mesópótamíu, ásamt Dínu dóttur hans; allir synir hans og dætur voru að tölu þrjátíu og þrjú.
Og synir Gaðs: Zifjón, Haggí, Súní, Ezbon, Erí, Aródí og Arelí.
Og synir Assers: Jímna, Jísva, Jísví, Bría og Sera systir þeirra; en synir Bría voru: Heber og Malkíel.
Þessir eru synir Silpu, sem Laban gaf Leu dóttur sinni; hún ól Jakob þessa, sextán sálir.
Synir Rakelar, konu Jakobs: Jósef og Benjamín.
En Jósef fæddust synir í Egiptalandi: Manasse og Efraím, sem Asnat, dóttir Pótifera prests í Ón, ól honum.
Og synir Benjamíns: Bela, Beker, Asbel, Gera, Naaman, Ehi, Rós, Múppím, Húppím og Ard.
Þetta eru synir Rakelar, sem hún ól Jakob, alls fjórtán sálir.
Og synir Dans: Húsin.
Og synir Naftalí: Jahzeel, Gúní, Jezer og Sillem.
Þessir eru synir Bílu, sem Laban gaf Rakel dóttur sinni, og þessa ól hún Jakob, sjö sálir alls.
Og allar þær sálir, sem komu með Jakob til Egiptalands og af honum voru komnar, voru sextíu og sex að tölu, auk sonakvenna Jakobs.
Og synir Jósefs, sem honum höfðu fæðst í Egiptalandi, voru tveir að tölu, Allar þær sálir af ætt Jakobs, sem komu til Egiptalands, voru sjötíu að tölu.
Og hann sendi Júda á undan sér til Jósefs, að hann vísaði sér til Gósen. Og þeir komu til Gósenlands.
Þá lét Jósef beita fyrir vagn sinn og fór á móti Ísrael föður sínum til Gósen, og er fundum þeirra bar saman, féll hann um háls honum og grét lengi um háls honum.
Og Ísrael sagði við Jósef: Nú vil eg glaður deyja, fyrst eg hefi séð auglit þitt, að þú ert enn á lífi.
Og Jósef sagði við bræður sína og við frændlið föður síns: Nú vil eg fara og láta Faraó vita og segja við hann: Bræður mínir og frændlið föður míns, sem var í Kanaanlandi, er til mín komið;
og mennirnir eru hjarðmenn, því að þeir hafa stundað kvikfjárrækt, og sauði sína og nautpening sinn og alt, sem þeir eiga, hafa þeir haft hingað með sér.
Þegar nú Faraó lætur kalla yður og spyr: »Hver er atvinna yðar?«
þá skuluð þér svara: »Kvikfjárrækt hafa þjónar þínir stundað frá barnæsku alt til þessa dags, bæði vér og feður vorir«, — til þess að þér fáið að búa í Gósenlandi; því að Egiptar hafa andstygð á öllum hjarðmönnum.