Gamla testamentiðLögmálið
Og hallæri varð í landinu, — annað hallæri en hið fyrra, sem var á dögum Abrahams. Fór þá Ísak til Abímeleks, Filista konungs í Gerar.
Og Drottinn birtist honum og mælti: Far þú ekki til Egiptalands, ver þú kyrr í því landi, sem eg segi þér.
Dvel þú um hríð í þessu landi, og eg mun vera með þér og hlessa þig; því að þér og niðJum þínum mun eg gefa öll þessi lönd, og eg mun halda þann eið, sem eg sór Abraham, föður þínum.
Og eg mun margfalda niðja þína. Sem stjörnur himinsins og gefa niðjum þínum öll þessi lönd, og af þínu afkvæmi skulu allar þjóðir á jörðunni blessun hljóta,
af því að Ahrauam hlýddi minni röddu og varðveitti boðorð mín, skipanir mínar, ákvseði og lög.
Og Ísak staðnæmdist í Gerar.
Og er menn þar spurðu um konu hans, sagði hann: Hún er systir mín; því að hann þorði Ekki að segja: hún er kona mín; ella kynnu, hugsaði hann, menn þar að myrða mig vegna Rebekku, af því að hún er frið sýnum.
OÓgsvo bar við, er hann hafði verið þar um hríð, að Abímelek Filista kon Ungur leit út um gluggann og sá, að Ísak lét vel að Rebekku kont Sinni,
Þá kallaði Abímelek á Ísak og mælti: Sjá, vissulega er hún kona þín; og hvernig gazt þú sagt: »Hún er systir mind? Og Ísak sagði jað hann: Eg hugsaði, að ella mundi eg láta lífið fyrir hennar sakir,
Og Abímelek mælti: Hví hefir þú gjört oss þetta? Hæglega gat það viljað til, að einhver af lýðnum hefði lagst með konu þinni, og hefðir þú þá leitt yfir oss syndasekt.
Síðan bauð Abímelek öllum landsyðnum og mælti: Hver, sem snertir þennan mann og konu hans, skal yissulega deyja.
Og Ísak sáði í þessu landi og uppskar hundraðfalt á því ári, því að Drottinn blessaði hann.
Og maðurinn efldist og auðgaðist meir og meir, unz hann var orðinn stórauðugur.
Og hann átti sauðahjarðir og nautahjarðir og margt þjónustufólk, svo að Filistar öfunduðu hann.
Og alla þá brunna, sem þjónar föður hans höfðu grafið á dögum Abrahams föður hans, byrgðu Filistar og fyltu með mold.
Og Abímelek sagði við Ísak: Far þú burt frá oss, því að þú ert orðinn miklu voldugri en vér.
Þá fór Ísak þaðan og tók sér bólfestu í Gerar-dal og bjó þar.
Og Ísak lét aftur grafa upp brunnana, sem þeir höfðu grafið á dögum Abrahams föður hans og Filistar höfðu aftur byrgt eftir dauða Abrahams, og gaf þeim hin sömu heiti sem faðir hans hafði gefið þeim.
Og þrælar Ísaks grófu í dalnum og fundu þar brunn lifandi vatns.
En fjárhirðar í Gerar deildu við fjárhirða Ísaks og sögðu: Vér eigum vatnið. Og hann nefndi brunninn Esek, af því að þeir höfðu þráttað við hann.
Þá grófu þeir annan brunn, en deildu einnig um hann, og hann nefndi hann Sitna.
Eftir það fór hann þaðan og gróf enn brunn; en um hann deildu þeir ekki, og hann nefndi hann Rehóbót og sagði: Nú hefir Drottinn rýmkað um oss, svo að vér megum vaxa í landinu.
Og þaðan fór hann upp til Beerseba.
Þá hina sömu nótt birtist Drottinn honum og mælti: Eg er Guð Abrahams föður þíns; óttast þú eigi, því að eg er með þér; og eg mun blessa þig og margfalda afkvæmi þitt fyrir sakir Abrahams, þjóns míns.
Og hann reisti þar altari og ákallaði nafn Drottins og setti þar tjald sitt; og þrælar Ísaks grófu þar brunn.
Þá kom Abímelek til hans frá Gerar og Akúsat vinur hans og Píkól hershöfðingi hans.
Þá sagði Ísak við þá: Hví komið þér til mín, þar sem þér þó hatið mig og hafið rekið mig burt frá yður?
En þeir svöruðu: Vér höfum berlega séð að Drottinn er með þér; fyrir því sögðum vér: Eiður sé milli vor, milli vor og þín, og vér viljum gjöra við þig sáttmála:
þú skalt oss ekki mein gjöra, svo sem vér höfum eigi snortið þig og svo sem vér höfum eigi gjört þér nema gott og látið þig fara í friði; því að þú ert nú blessaður af Drottni.
Eftir það gjörði hann þeim veizlu, og þeir átu og drukku.
Og árla morguninn eftir unnu þeir hver öðrum eiða; og Ísak lét þá í burt fara og þeir fóru frá honum í friði.
Þann sama dag bar svo við, að þrælar Ísaks komu og sögðu honum frá brunninum, sem þeir höfðu grafið, og mæltu við hann: Vér höfum fundið vatn.
Og hann nefndi hann Síba; fyrir því heitir borgin Beerseba alt til þessa dags.
En er Esaú var fertugur að aldri, gekk hann að eiga Júdit, dóttur Hetítans Beerí, og Basmat, dóttur Hetítans Elons.
Og var þeim Ísak og Rebekku sár skapraun að þeim.