Gamla testamentiðLögmálið
Þannig algjörðist himinn og jörð og allur þeirra her.
Og Guð lauk á hinum sjöunda degi verki sínu, er hann hafði gjört, og hvíldist hinn sjöunda dag af öllu verki sínu, er hann hafði gjört.
Og Guð blessaði hinn sjöunda dag og helgaði hann, því að á honum hvíldist Guð af verki sínu, sem hann hafði skapað og gjört.
Þetta er sagan um uppruna himins og jarðar, er þau voru sköpuð. Paradís og syndafallið. Þegar Drottinn Guð gjörði jörðina og himininn,
en þá var enn alls enginn runnur merkurinnar til á jörðunni og engar jurtir spruttu enn á mörkinni; því að Drottinn Guð hafði ekki enn látið rigna á jörðina og engir menn voru til þess að yrkja jörðina;
Sen þoku lagði upp af jörðunni, og vökvaði hún alt yfirborð jarðarinnar,
þá myndaði Drottinn Guð manninn af leiri jarðar og blés lífsanda í nasir hans, og þannig varð maðurinn lifandi sál.
Og Drottinn Guð plantaði aldingarð í Eden langt austur frá og setti þar manninn, sem hann hafði myndað.
Og Drottinn Guð lét upp vaxa af jörðunni alls konar tré, sem voru girnileg á að líta og góð að eta af, og lífsins tré í miðjum aldingarðinum og skilnings-tréð góðs og ills.
Og fljót rann frá Eden, til að vökva aldingarðinn, og þaðan kvíslaðist það og varð að fjórum stórám.
Hin fyrsta heitir Píson; hún fellur um alt landið Havíla, þar sem gullið fæst.
Og gull lands þess er gott; þar fæst bedolak-harpeis og sjóam-steinar.
Önnur stóráin heitir Gíkon; hún fellur um alt Kúsland.
Þriðja stóráin heitir Kíddekel; hún fellur fyrir vestan Assúr. Fjórða stóráin er Evfrat.
Þá tók Drottinn Guð manninn og setti hann í aldingarðinn Eden, til að yrkja hann og gæta hans.
Og Drottinn Guð bauð manninum og sagði: Af öllum trjám í aldingarðinum máttu eta eftir vild;
en af skilnings-trénu góðs og ills — af því mátt þú ekki eta; því að jafnskjótt og þú etur af því, skalt þú vissulega deyja.
Og Drottinn Guð sagði: Eigi er það gott, að maðurinn sé einsamall; eg vil gjöra honum meðhjálp við hans hæft.
Þá myndaði Drottinn Guð af jörðunni öll dýr merkurinnar og alla fugla loftsins, og lét þau koma fyrir manninn, til þess að sjá, hvað hann nefndi þau, og hvert það heiti, sem maðurinn gæfi hinum lifandi skepnum, skyldi vera nafn þeirra.
Og maðurinn gaf nafn öllum fénaðinum og fuglum loftsins og öllum dýrum merkurinnar; en meðhjálp fyrir mann fann hann enga við sitt hæfi.
Þá lét Drottinn Guð fastan svefn falla á manninn; og er hann var sofnaður, tók hann eitt af rifjum hans og fylti aftur með holdi.
Og Drottinn Guð myndaði konu af rifinu, er hann hafði tekið úr manninum, og leiddi hana til mannsins.
Þá sagði maðurinn: Þetta er loks bein af mínum beinum og hold af mínu holdi; hún skal karlynja kallast, af því að hún er af karhnanni tekin.
Þess vegna yfirgefur maður föður sinn og móður sína og býr við eiginkonu sína, svo að þau verði eitt hold.
Og þau voru bæði nakin, maðurinn og kona hans, og blygðuðust sín ekki.