Fyrsta Mósebók 1Krans-útgáfa

Gamla testamentiðLögmálið

Fyrsta Mósebók 1

Í upphafi skapaði Guð himin og jörð.

En jörðin var þá auð og tóm, og myrkur grúfði yfir djúpinu og Guðs andi sveif yfir vötnunum.

Þá sagði Guð: Verði ljós! og það varð ljós.

Og Guð sá, að ljósið var gott; og Guð greindi ljósið frá myrkrinu.

Og Guð kallaði ljósið dag, en myrkrið kallaði hann nótt. Og það varð kveld og það varð morgunn, — hinn fyrsti dagur.

Og Guð sagði: Verði festing milli vatnanna og hún greini vötn frá vötnum. Og það varð svo.

Þá gjörði Guð festinguna og greindi vötnin, sem voru undir festingunni, frá þeim vötnum, sem voru yfir henni.

Og Guð kallaði festinguna himin. Og það varð kveld og það varð morgunn, — hinn annar dagur.

Og Guð sagði: Safnist vötnin undir himninum í einn stað, svo að þurlendið sjáist. Og það varð svo.

Og Guð kallaði þurlendið jörð, en safn vatnanna kallaði hann sjó. Og Guð sá, að það var gott.

Og Guð sagði: Láti jörðin af sér spretta græn grös, sáðjurtir og aldintré, sem hvert beri ávöxt eftir sinni tegund með sæði í á jörðunni. Og það varð svo.

Þá lét jörðin á sér spretta græn grös, jurtir með sæði í, hverja eftir sinni tegund, og aldintré með sæði í sér, hvert eftir sinni tegund. Og Guð sá, að það var gott.

Og það varð kveld og það varð morgunn, — hinn þriðji dagur.

Og Guð sagði: Verði ljós á festingu himinsins, að þau greini dag frá nóttu, og séu til tákns og til að marka tíðir, daga og ár.

Og þau séu ljós á festingu himinsins, til að lýsa jörðina. Og það varð svo.

Þá gjörði Guð tvö stóru ljósin: hið stærra ljósið, til að ráða degi, og hið minna ljósið, til að ráða nóttu, svo og stjörnurnar.

Og Guð setti þau á festingu himinsins, að þau skyldu lýsa jörðunni

og ráða degi og nóttu, og greina sundur ljós og myrkur. Og Guð sá, að það var gott.

Og það varð kveld og það varð morgunn, — hinn fjórði dagur.

Og Guð sagði: Vötnin verði kvik af lifandi skepnum, og fuglar fljúgi yfir jörðina undir festingu himinsins.

Þá skapaði Guð hin stóru lagardýr og allar hinar lifandi skepnur, sem hrærast og vötnin eru kvik af, eftir þeirra tegund, og alla fleyga fugla eftir þeirra tegund. Og Guð sá, að það var gott.

Og Guð blessaði þau og sagði: Frjóvist og fjölgið og fyllið vötn sjávarins, og fuglar fjölgi á jörðunni.

Og það varð kveld og það varð morgunn, — hinn fimti dagur.

Og Guð sagði: Jörðin leiði fram lifandi skepnur, hverja eftir sinni tegund: fénað, skriðkvikindi og villidýr, hvert eftir sinni tegund. Og það varð svo.

Þá gjörði Guð villidýrin, hvert eftir sinni tegund, fénaðinn eftir sinni tegund og alls konar skriðkvikindi jarðarinnar eftir sinni tegund. Og Guð sá, að það var gott.

Og Guð sagði: Vér viljum gjöra menn eftir vorri mynd, líka oss, og þeir skulu drotna yfir fiskum sjávarins og yfir fuglum loftsins og yfir fénaðinum og yfir villidýrunum, og yfir öllum skriðkvikindum, sem skríða á jörðunni.

Og Guð skapaði manninn eftir sinni mynd, hann skapaði hann eftir Guðs mynd; hann skapaði þau karl og konu.

Og Guð blessaði þau, og Guð sagði við þau: Verið frjósöm, margfaldist og uppfyllið jörðina, og gjörið ykkur hana undirgefna, og drotnið yfir fiskum sjávarins og yfir fuglum loftsins og yfir öllum dýrum, sem hrærast á jörðunni!

Og Guð sagði: Sjá, eg gef ykkur alls konar sáðberandi jurtir á allri jörðunni, og alls konar tré, sem bera ávöxtu með sæði í, — það sé ykkur til fæðu.

Og öllum villidýrum og öllum fuglum loftsins og öllum skriðkvikindum á jörðunni, öllu því, sem hefir lifandi sál, gef eg öll grös og jurtir til fæðu. Og það varð svo.

Og Guð leit alt, sem hann hafði gjört, og sjá, það var harla gott. Og það varð kveld og það varð morgunn, — hinn sjötti dagur.