Fyrsta Mósebók 16Krans-útgáfa

Gamla testamentiðLögmálið

Fyrsta Mósebók 16

Og Saraí kona Abrams ól honum ekki börn; en hún hafði egipzka ambátt, sem hét Hagar.

Og Saraí sagði við Abram: Heyrðu nú, Drottinn hefir varnað mér barngetnaðar; gakk því inn til ambáttar minnar; vera má að hún afli mér afkvæmis. Og Abram hlýddi orðum Saraí.

á tók Saraí, kona Abrams, Hagar hina egipzku, ambátt sína, er Abram hafði búið tíu ár í Kanaanlandi, og gaf manni sínum Abram hana fyrir konu.

Og hann gekk inn til Hagar og hún varð þunguð; en er hún vissi, að hún var með barni, fyrirleit hún húsmóður sína.

Þá sagði Saraí við Abram: Sá óréttur, sem eg verð að þola, bitni á þér! Eg hefi gefið ambátt mína þér í faðm; en er hún nú veit, að hún er með barni, fyrirlítur hún mig. Drottinn dæmi milli mín og þín!

Abram sagði við Saraí: Sjá, ambátt þín er á þínu valdi; gjör þú við hana sem þér gott þykir. Þá þjáði Saraí hana, Svo að hún flýði í burtu frá henni.

Þá fann engill Drottins hana hjá Vatnslind í eyðimörkinni, hjá lindinni á veginum til Súr.

Og hann Mælti: Hagar, ambátt Saraí, hvaðan kemur þú og hvert ætlar þú að fara? Hún svaraði: Eg er á flótta frá Saraí, húsmóður minni.

Og Engill Drottins sagði við hana: Hverf þú heim aftur til húsmóður þinnar Og gef þig undir hennar vald.

Og engill Drottins sagði við hana: Eg mun margfalda afkvæmi þitt, svo að það verði eigi talið fyrir fjölda - Sakir,

Og engill Drottins sagði við hana: Sjá, þú ert þunguð og munt son fæða; hans nafn skalt þú kalla Ísmael, því að Drottinn hefir heyrt kveinstafi þína.

Hann mun verða maður ólmur sem villiasni; nans mun vera uppi á móti hverjum manni og hvers manns uppi á móti honum; og hann mun búa fyrir austan alla bræður sína.

Og hún kallaði Drottinn, sem við hana talaði: »Þú ert Guð, sem sér«. Því að hún sagði: Ætli eg hafi einnig hér horft á eftir honum, sem hefir séð mig?

Þess vegna heitir brunnurinn Beer-lakaj-róí; en hann er á milli Kades og Bered.

Og Hagar ól Abram son, og Abram nefndi son sinn, sem Hagar ól honum, Ísmael.

En Abram var áttatíu og sex ára gamall, þegar Hagar ól honum Ísmael.