Gamla testamentiðLögmálið
Eftir þessa atburði kom orð Drottins til Abrams í sýn, svohljóðandi: Óttast þú ekki, Abram, eg er þinn skjöldur — laun þín munu mjög mikil verða.
Og Abram mælti: Drottinn Guð, hvað ætlar þú að gefa mér? Eg fer héðan barnlaus og Elíeser verður erfingi húss míns.
Og Abram mælti: Sjá, mér hefir þú ekkert afkvæmi gefið og húskarl minn mun erfa mig.
Og sjá, orð Drottins kom til hans svohljóðandi: Ekki skal hann erfa þig, heldur sá, sem af þér mun getinn verða, hann mun erfa þig.
Og hann leiddi hann út og mælti: Lít þú upp til himins og tel þú stjörnurnar, ef þú getur talið þær. Og hann sagði við hann: Svo margir skulu niðjar þínir verða.
Og hann trúði Drottni, og hann reiknaði honum það til réttlætis.
Þá sagði hann við hann: Eg er Drottinn, sem leiddi þig út frá ur í Kaldeu, til þess að gefa þér þetta land til eignar.
Og hann mælti: Drottinn Guð, hvað skal eg hafa til marks um, að eg muni eignast það?
Og hann mælti við hann: Fær mér þrevetra kvígu, þrevetra geit, þrevetran hrút, turtildúfu og unga dúfu.
Og hann færði honum öll þessi dýr og hlutaði þau sundur í miðju og lagði hvorn hlutinn gegnt öðrum; en fuglana hlutaði hann ekki sundur.
Og hræfuglar flugu að ætinu, en Abram fældi þá burt.
En er sól var að renna, leið þungur svefnhöfgi á Abram, og sjá: felmti, miklu myrkri, sló yfir hann.
Þá sagði hann við Abram: Vit það fyrir víst, að niðjar þínir munu lifa sem útlendingar í landi, sem þeir eiga ekki; og þeir munu þjóna þeim, og þeir þjá þá í fjögur hundruð ár.
En einnig þá þjóð, sem þeir munu þjóna, mun eg dæma, og síðar munu þeir þaðan fara með mikinn fjárhlut.
En þú skalt fara í friði til feðra þinna; þú skalt verða jarðaður í góðri elli.
Hinn fjórði ættliður þeirra mun koma hingað aftur, því að enn hafa Amórítar eigi fylt mæli synda sinna.
En er sól var runnin og myrkt var orðið, kom reykur sem úr ofni og eldslogi, er leið fram á milli þessara fórnar-stykkja.
Á þeim degi gjörði Drottinn sáttmála við Abram og mælti: Þínu afkvæmi gef eg þetta land, frá Egiptalandsánni tl árinnar miklu, árinnar Evfrat:
land Kenita, Kenissita, Kadmóniíta,
Hetíta, Peresíta, Refaita,
Amórita, Kanaaníta, Girgasita og Jebúsíta.