Gamla testamentiðLögmálið
Og Abram fór frá Egiptalandi með konu sína og alt, sem hann átti, og Lot með honum, til suðurlandsins.
Og Abram var slórauðugur að kvikfé, silfri og gulli.
Og hann flutti sig smátt og smátt sunnan að alt til Betel, til þess staðar, er tjald hans hafði áður verið, milli Betel og Aí,
til þess staðar, þar sem hann áður hafði reist altarið. Og Abram ákallaði þar nafn Drottins.
En Lot, sem fór með Abram, átti og sauði, naut og tjöld.
Og landið bar þá ekki, svo að þeir gætu saman verið, því að eign þeirra var mikil og þeir gátu ekki saman verið.
Og sundurþykkja reis milli fjárhirða Abrams og fjárhirða Lots. En Kanaanítar og Peresítar bjuggu þá í landinu.
Þá mælti Abram við Lot: Heyrðu, engin misklíð sé milli mín og þín og milli minna og þinna fjárhirða, því að við erum bræður.
Liggur ekki alt landið opið fyrir þér? Skil þig heldur við mig. Viljir þú fara til vinstri handar, þá fer eg til hægri; og viljir þú fara til hægri handar, þá fer eg til vinstri.
Þá hóf Lot upp augu sín og sá, að alt Jórdan-sléttlendið var vatnsríkt land, áður en Drottinn eyddi Sódómu og Gómorru, eins og aldingarður Drottins, eins og Egiptaland, alt til Zóar.
Og Lot kaus sér alt Jórdan-sléttlendið, og Lot flutti sig austur á við, og þannig skildu þeir.
Abram bjó í Kanaanlandi, en Lot bjó í borgunum á sléttlendinu og færði tjöld sín alt til Sódómu.
En mennirnir í Sódómu voru vondir og stórsyndarar fyrir Drottni.
Og Drottinn sagði við Abram, eftir að Lot hafði skilið við hann: Hef þú upp augu þín og litast um frá þeim stað, sem þú ert á, til norðurs, suðurs, austurs og vesturs.
Því að alt landið, sem þú sér, mun eg gefa þér og niðjum þínum æfinlega.
Og eg mun gjöra niðja þína sem duft jarðar, svo að geti nokkur talið duft jarðarinnar, þá skulu einnig niðjar þínir verða taldir.
Tak þig nú upp og far þú um landið þvert og endilangt; því að þér mun eg gefa það.
Og Abram færði sig með tjöld sín og kom og settist að í Mamre-lundi, sem er í Hebron, og reisti Drottni þar altari. Herferð Kedorlaómers. Melkísedek blessar Abram.