Gamla testamentiðSaga
Og íbúarnir í Kirjat-Jearím komu og sóttu örk Drottins og fluttu hana í hús Abínadabs á hæðinni, og vígðu þeir Eleasar son hans, til þess að gæta arkar Drottins.
Frá þeim degi, er örkin kom til Kirjat-Jearím, leið langur tími, og urðu það tuttugu ár. Þá sneri alt Ísraels hús sér til Drottins.
Og Samúel sagði við alt Ísraels hús: Ef þér viljið snúa yður til Drottins af öllu hjarta, þá fjarlægið hin útlendu goð frá yður og Astörturnar og snúið hjarta yðar til Drottins og þjónið honum einum; mun hann þá frelsa yður af hendi Filista.
Þá köstuðu Ísraelsmenn burt Baölum og Astörtum og þjónuðu Drottni einum.
Og Samúel sagði: Stefnið saman öllum Ísrael í Mizpa, og skal eg þá biðja fyrir yður til Drottins.
Söfnuðust þeir þá saman í Mizpa og jusu vatn og útheltu því fyrir Drottni, og þeir föstuðu þann dag og sögðu þar: Vér höfum syndgað móti Drottni! Og Samúel dæmdi Ísraelsmenn í Mizpa.
TEn er Filistar heyrðu, að Ísraelsmenn höfðu safnast saman í Mizpa, þá fóru höfðingjar Filista á móti Ísrael. Og er Ísraelsmenn heyrðu það, urðu þeir hræddir við Filista.
Og Ísraelsmenn sögðu við Samúel: Lát eigi af að hrópa til Drottins, Guðs vors, fyrir oss, að hann frelsi oss af hendi Filista.
Þá tók Samúel dilklamb og fórnaði í brennifórn — alfórn — Drottins til handa. Og Samúel hrópaði til Drottinn fyrir Ísrael, og Drottins bænheyrði hann.
En meðan Samúel var að fórna brennifórninni, voru Filistar komnir í nánd til að berjast við Ísrael. En Drottinn þrumaði með miklum gný yfir Filista á þeim degi og gjörði þá felmtsfulla, svo að þeir biðu ósigur fyrir Ísrael.
Og Ísraelsmenn fóru út frá Mizpa og eltu Filista og drápu þá á flóttanum alt þar til kómið var niður fyrir Betkar.
Þá tók Samúel stein og reisti hann upp milli Mizpa og Jesjana og kallaði hann Ebeneser og sagði: Hingað til hefir Drottinn hjálpað oss.
Þannig voru Filistar yfirbugaðir og komu þeir ekki framar inn í land Ísraels; og hönd Drottins var gegn Filistum meðan Samúel lifði.
En borgir þær, sem Filistar höfðu tekið frá Ísrael, komu aftur undir Ísrael, frá Ekron alt til Gat; og landinu, er að þeim lá, náði Ísrael og úr höndum Filista. Og friður komst á milli Ísraels og Amóríta.
En Samúel dæmdi Ísrael meðan hann lifði.
Og hann ferðaðist um á ári hverju og kom til Betel, Gilgal og Mizpa og dæmdi Ísrael á öllum þessum stöðum.
Og hann sneri aftur tl Rama, því að þar átti hann heima og þar dæmdi hann Ísrael. Og hann reisti Drottni þar altari.