Gamla testamentiðSaga
En að hér um bil mánuði liðnum fór Nahas Ammóníti og settist um Jabes í Gíleað. Þá sögðu allir Jabes-búar við Nahas: Gjör þú sáttmála við oss, og munum vér þjóna þér.
Og Nahas Ammóníti svaraði þeim: Með þeim kostum vil eg gjöra sáttmála við yður, að eg stingi út á yður öllum hægra augað og gjöri öllum Ísrael háðung með því.
Og öldungarnir í Jabes sögðu við hann: Gef oss sjö daga frest, og munum vér senda sendiboða um alt Ísraels land; og ef enginn þá hjálpar oss, munum vér gefast upp fyrir þér.
Og er sendiboðarnir komu til Sáls-Gíbeu og báru upp erindi sitt í áheyrn lýðsins, þá hóf allur lýðurinn upp raust sína og grét.
Og sjá, þá kom Sál á eftir nautunum utan af akri. Og Sál mælti: Hvað ber til þess, að fólkið er að gráta? og þeir sögðu honum erindi Jabes-manna.
Þá kom andi Guðs yfir Sál, er hann heyrði þessi tíðindi, og varð hann reiður mjög.
Og hann tók tvo uxa og brytjaði þá og sendi stykkin um alt Ísraels land með sendiboðunum og lét þá orðsending fylgja: Svo skal farið með naut hvers þess manns, er eigi fylgir Sál og Samúel í hernað. Þá kom ótti Drottins yfir fólkið, svo að þeir lögðu af stað sem einn maður.
Og hann kannaði liðið í Besek, og voru þá Ísraelsmenn þrjú hundruð þúsund og Júdamenn þrjátíu þúsund.
Og þeir sögðu við sendiboðana, sem komnir voru: Segið svo mönnunum í Jabes í Gíleað: Á morgun um hádegisbil skal yður koma hjálp. Og sendimennirnir komu og sögðu Jabes-búum frá þessu, og urðu þeir glaðir við.
Og Jabes-búar sögðu: Á morgun munum vér gefast upp fyrir yður; þá getið þér gjört við oss hvað. sem yður gott þykir.
En morguninn eftir skifti Sál liðinu í þrjá flokka, og brutust þeir inn í herbúðirnar um morgunvökuna og feldu Ammóníta fram til hádegis. Og þeir, sem af komust, dreifðust víðsvegar, svo að ekki urðu eftir af þeim tveir saman.
Þá sagði fólkið við Samúel: Hverjir voru það, sem sögðu: Á Sál að verða konungur yfir oss! Framseljið þá menn, svo að vér getum drepið þá.
En Sál sagði: Engan mann skal deyða á þessum degi, því að í dag hefir Drottinn veitt Ísrael sigur.
Og Samúel sagði við lýðinn: Komið, vér skulum fara til Gilgal og endurnýja í ar konungdóminn.
Þá fór allur lýðurinn til Gilgal og gjörði Sál þar að konungi frammi fyrir Drottni í Gilgal. Og þeir fórnuðu þar heillafórnum frammi fyrir Drottni, og Sál og allir Ísraelsmenn glöddu sig þar mikillega.