Fyrri Samúelsbók 10Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Fyrri Samúelsbók 10

Þá tók Samúel olíuflösku og helti yfir höfuð honum og mintist við hann og mælti: Nú hefir Drottinn smurt þig til höfðingja yfir lýð sinn Ísrael; og þú skalt drotna yfir lýð Drottins og þú skalt frelsa hann af hendi óvina hans. Og þetta skalt þú til marks hafa um, að Drottinn hefir smurt þig til höfðingja yfir arfleifð sína:

Þegar þú ert farinn frá mér í dag, munt þú hitta tvo menn við gröf Rakelar á Benjamíns landamærum hjá Zelza og þeir munu segja við þig: Ösnurnar, sem þú fórst að leita að, eru fundnar. En faðir þinn er hættur að hugsa um ösnurnar og farinn að undrast um ykkur og segir: Hvað á eg að gjöra viðvíkjandi syni mínum?

Og þegar þú nú heldur áfram þaðan og kemur að Tabor-eik, þá munu þrír menn mæta þér þar, sem eru á leið upp til Guðs í Betel; einn þeirra ber þrjú kið, annar ber þrjá brauðhleifa og hinn þriðji ber vínlegil.

Þeir munu heilsa þér og gefa þér tvö brauð; skalt þú þiggja þau af þeim.

Eftir það munt þú koma til Guðs-Gíbeu, þar sem súla Filista stendur; og þegar þú kemur þar í borginni, þá munt þú mæta hóp spámanna, sem eru á leið ofan af fórnarhæðinni með hörpur, bumbur, hljóðpípur og gígjur á undan sér og sjálfir eru í spámannlegum guðmóði.

Þá mun andi Drottins koma yfir þig, svo að þú munt komast í spámannlegan guðmóð með þeim og verða annar maður.

Og þegar þú sér þessi tákn koma fram, þá neyt þess færis, sem þér býðst, því að Guð er með þér.

Og þú skalt fara á undan mér ofan til Gilgal; og sjá, eg mun koma til þín, til þess að bera fram brennifórnir, til þess að fórna heillafórnum; þú skalt bíða í sjö daga, þar til er eg kem til þín, og þá skal eg láta þig vita, hvað þú átt að gjöra.

Þegar hann nú sneri sér við og gekk burt frá Samúel, þá umbreytti Guð hjarta hans; og öll þessi tákn komu fram þennan sama dag.

Og er þeir komu þar til Gíbeu, kom hópur spámanna á móti honum; og andi Guðs kom yfir hann, svo að hann komst í spámannlegan guðmóð meðal þeirra.

En þegar allir þeir, sem þekt höfðu hann áður, sáu, að guðmóður var kominn á hann, eins og á spámennina, — þá sögðu menn hver við annan: Hvað kemur að syni Kíss? Er og Sál meðal spámannanna?

Þá svaraði maður nokkur þaðan og sagði: Hver er þá faðir hinna? Þaðan er máltækið komið: Er og Sál meðal spámannanna?

En er hinn spámannlegi guðmóður Var af honum, þá fór hann heim til sín.

Þá sagði föðurbróðir Sáls við hann og við svein hans: Hvert fóruð þið? Og hann sagði: Að leita að ösnunum; og þegar við fundum þær hvergi, þá fórum við til Samúels.

Þá sagði föðurbróðir Sáls: Seg mér frá, hvað Samúel sagði við ykkur.

Og Sál sagði við föðurbróðir sinn: Hann sagði okkur, að ösnurnar væru fundnar. En það, sem Samúel hafði sagt um konungdóminn, frá því sagði hann honum eigi.

Þá kallaði Samúel lýðinn saman til Drottins í Mizpa

og sagði við Ísraelsmenn: Svo segir Drottinn, Ísraels Guð: Eg hefi leitt Ísrael út af Egiptalandi og eg hefi frelsað yður undan valdi Egipta og undan valdi allra þeirra konungsríkja, er kúguðu yður.

En þér hafið í dag hafnað Guði yðar, sem hjálpað hefir yður úr öllum nauðum yðar og þrengingum, og sagt: Nei, heldur skalt þú setja konung yfir oss. En gangið nú fram fyrir Drottni eftir ættkvíslum yðar og þúsundum.

Síðan lét Samúel allar ættkvíslir Ísraels ganga fram, og féll hlutur á Benjamíns-ættkvísl.

Þá lét hann Benjamíns-ættkvísl ganga fram eftir kynþáttum hennar, og féll hlutur á kynþátt Matríta. Þá lét hann kynþátt Matríta ganga fram mann fyrir mann, og féll hlutur á Sál Kísson; var hans þá leitað, en hann fanst ekki.

Þá spurðust þeir enn fyrir hjá Drottni: Er maðurinn kominn hingað? Og Drottinn svaraði: Sjá, hann hefir falið sig hjá farangrinum.

Þá hlupu þeir þangað og sóttu hann. Og er hann gekk fram meðal lýðsins, þá var hann höfði hærri en allur lýður.

Og Samúel sagði við allan lýðinn: Hafið þér séð að hann, sem Drottinn hefir útvalið, er slíkur, að enginn er hans líki meðal alls fólksins? Þá æpti allur lýðurinn og sagði: Konungurinn lifi!

Og Samúel sagði lýðnum réttindi konungdómsins og skrifaði þau í bók og lagði hana til geymslu frammi fyrir Drottni. Síðan lét Samúel allan lýðinn burt fara, hvern heim til sín.

Þá fór og Sál heim til Gíbeu, og með honum fóru hraustmennin, sem Guð hafði snortið hjartað í.

En hrakmenni nokkur sögðu: Hvað ætli þessi hjálpi oss? og þeir fyrirlitu hann og færðu honum engar gjafir.