Fyrri Kroníkubók 24Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Fyrri Kroníkubók 24

Aronsniðjar höfðu og flokkaskipun fyrir sig. Synir Arons voru: Nadab, Abíhú, Eleasar og Ítamar.

En Nadab og Abíhú dóu á undan föður sínum og áttu eigi sonu, og urðu svo þeir Eleasar og Ítamar prestar.

Og þeir Davíð og Zadók af Eleasarsniðjum og Ahímelek af ítamarsniðjum skiftu þeim niður í starfsflokka eftir embættum þeirra.

En það kom í ljós, að af Eleasarsniðjum voru fleiri höfðingjar en af Ítamarsniðjum; fyrir því skiftu menn þeim svo, að af Eleasarsniðjum urðu sextán ætthöfðingjar, en átta af Ítamarsniðjum.

Og hvorumtveggja skiftu menn eftir hlutkesti, því að helgidómshöfðingjar og Guðs höfðingjar voru af niðjum Eleasars og af niðjum ítamars.

Og Semaja Netaneelsson ritari, einn af Levítum, skráði þá í viðurvist konungs og höfðingjanna og Zadóks prests og Aliímeleks Abjatarssonar og ætthöfðingja prestanna og Levítanna. Var ein ætt tekin frá af Eleasar og ein af ílamar.

Fyrsti hluturinn féll á Jójaríb, annar á Jedaja,

þriðji á Harím, fjórði á Seórím,

fimti á Malkía, sjötti á Míjamín,

sjöundi á Hakkoz, áttundi á Abía,

níundi á Jesúa, tíundi á Sekanja,

ellefti á Eljasíb, tólfti á Jakím,

þrettándi á Huppa, fjórtándi á Jesebeab,

fimtándi á Bilga, sextándi á Immer,

seytjándi á Hesír, átjándi á Happizzez,

nítjándi á Pelazhja, tuttugasti á Jeheskel,

tuttugasti og fyrsti á Jakín, tuttugasti og annar á Gamúl,

tuttugasti og þriðji á Delaja, tuttugasti og fjórði á Maasja.

Er það starfskvöð þeirra, að fara inn Í musteri Drottins, eftir þeim reglum, er Aron forfaðir þeirra hafði sett, samkvæmt því, er Drottinn, Guð Ísraels, hafði boðið honum.

En að því er snertir aðra niðja Leví, þá voru af Amramsniðjum Súbael, af Súbaelsniðjum Jehdeja,

af Rehabja, af Rehabjaniðjum Jissía höfðingi,

af Jízeharítum Selómót, af Selómótsniðjum Jahat,

en af niðjum Hebrons: Jería höfðingi, annar Amarja, þriðji Jehasiel, fjórði Jekameam.

Niðjar Ússíels voru: Míka, af niðjum Míka var Samir.

Bróðir Míka var Jissía, af niðjum Jissía var Sakaría.

Niðjar Merarí voru Mahli og Músí og niðjar Jaasía, sonar hans.

Niðjar Merarí frá Jaasía syni hans voru: Sóham, Sakkúr og Íbrí.

Frá Mahlí var Eleasar kominn, hann átti eigi sonu.

Frá Kís: Synir Kís: Jerahmeel.

Niðjar Músí voru: Mahlí, Eder og Jerímót. Þessir voru niðjar Levíta eftir ættum þeirra.

Þeir vörpuðu og hlutkesti eins og frændur þeirra, Aronsniðjar, í viðurvist Davíðs konungs og Zadóks og Ahímeleks og ætthöfðingja prestanna og Levítanna, ætthöfðingjarnir eins og yngri frændur þeirra.