Fyrri Kroníkubók 2Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Fyrri Kroníkubók 2

Þessir voru synir Ísraels: Rúben, Símeon, Leví og Júda, íssakar og Sebúlon,

Dan, Jósef og Benjamín, Naftalí, Gað og Asser.

Synir Júda voru: Ger, Ónan og Sela, þrír að tölu, er dóttir Súa, kanverska konan, ól honum. En Ger, frumgetinn sonur Júda, var vondur fyrir augliti Drottins, svo að Drottinn lét hann deyja.

Tamar tengdadóttir hans ól honum Perez og Sera. Synir Júda voru alls fimm.

Synir Perez voru: Hezron og Hamúl.

Og synir Sera: Simrí, Etan, Heman, Kalkól og Dara — fimm alls.

Og synir Karmí: Akar, sá er steypti Ísrael í ógæfu, með því að fara sviksamlega með hið bannfærða.

Og synir Etans: Asarja.

Og synir Hezrons, er fæddust honum: Jerahmeel, Ram og Kelúbaí.

Og Ram gat Ammínadab, og Ammínadab gat Nahson, höfuðsmann Júdamanna.

Nahson gat Salma, Salma gat Bóas,

Bóas gat Óbeð, Óbeð gat Ísaí.

Og Ísaí gat Elíab frumgetning sinn, þá Abínadab, Símea hinn þriðja,

Netaneel hinn fjórða, Raddaí hinn fimta,

Ózem hinn sjötta, Davíð hinn sjöunda.

Og systur þeirra voru þær Zerúja og Abígail, og synir Zerúju voru: Absaí, Jóab og Asahel, þrír að tölu.

En Abígail ól Amasa og faðir Amasa var Jeter Ísmaelíti.

En Kaleb, sonur Hezrons, gat börn við Asúbu konu sinni og við Jeríót; þessir voru synir hennar: Jeser, Sóbab og Ardon.

Og er Asúba andaðist, gekk Kaleb að eiga Efrat og ól hún honum Húr,

en Húr gat Úrí og Úrí gat Bezaleel.

Síðan gekk Hezron inn til dóttur Makirs, föður Gileaðs, og tók hana sér fyrir konu; var hann þá sextíu ára gamall; hún ól honum Segúb.

Og Segúb gat Jair; hann átti tuttugu og þrjár borgir í Gíleað-landi.

En Gesúrítar og Sýrlendingar tóku Jairs-þorp frá þeim, Kenat og þorpin þar í kring, sextíu borgir alls. Allir þessir voru niðjar Makirs, föður Gíleaðs.

Og eftir andlát Hezrons í Kaleb-Efrata, ól Abía kona hans honum Ashúr, föður Tekóa.

Og synir Jerahmeels, frumgetins sonar Hezrons, voru: Ram, frumgetningurinn, og Búna, Óren, Ózem og Ahía.

En Jerahmeel átti aðra konu, er Atara hét; hún var móðir Onams.

Og synir Rams, frumgetins sonar Jerahmeels, voru: Maaz, Jamín og Eker.

Og synir Ónams voru: Sammaí og Jada, og synir Sammaí: Nadab og Abísúr.

En kona Abísúrs hét Abíhaíl; hún ól honum Akban og Mólíd.

Og synir Nadabs voru: Seled og Appaím, en Seled dó barnlaus.

Og synir Appaíms: Jíseí, og synir Jíseí: Sesan, og synir Sesans: Ahelaí.

Og synir Jada, bróður Sammaí: Jeter og Jónatan, en Jeter dó barnlaus.

Og synir Jónatans voru: Pelet og Sasa. Þessir voru niðjar Jerahmeels.

Og Sesan átti enga sonu, heldur dætur einar; en Sesan átti egipzkan þræl, er Jarha hét.

Og Sesan gaf Jarha þræli sínum dóttur sína fyrir konu, og hún ól honum Attaí.

Og Attaí gat Natan, Natan gat Sabat,

Sabat gat Eflal, Eflal gat Óbeð,

Óbeð gat Jehú, Jehú gat Asarja,

Asarja gat Helez, Helez gat Eleasa,

Eleasa gat Sísemaí, Sísemaí gat Sallúm,

Sallúm gat Jekamja og Jekamja gat Elísama.

Og synir Kalebs, bróður Jerahmeels voru: Mesa, frumgetinn son hans — hann var faðir Sífs —, svo og synir Maresa, föður Hebrons.

Og synir Hebrons voru: Kóra, Tappúa, Rekem og Sema.

Og Sema gat Raham, föður Jorkeams, og Rekem gat Sammaí.

En sonur Sammaí var Maon, og Maon var faðir að Bet-Zúr.

Og Efa, hjákona Kalebs, ól Haran, Móza og Gases, en Haran gat Gases.

Og synir Jehdaí voru: Regem, Jótam, Gesan, Pelet, Efa og Saaf.

Maaka, hjákona Kalebs, ól Seber og Tírkana.

Og enn ól hún Saaf, föður Madmanna, Sefa, föður Makbena og föður Gíbea, en dóttir Kalebs var Aksa.

Þessir voru synir Kalebs: Synir Húrs, frumgetins sonar Efrötu, voru: Sóbal, faðir að Kirjat-Jearím,

Salma, faðir að Betlehem, Haref, faðir að Bet-Gader.

Og Sóbal, faðir að Kirjat-Jearím, átti fyrir sonu: Haróe, hálft Menúhót

og ættirnar frá Kirjat-Jearím, svo og Jítríta, Pútíta, Súmatíta og Mísraíta. Frá þeim eru komnir Zóreatítar og Estaólítar.

Synir Salma voru: Betlehem og Netófatítar, Atarót, Bet-Jóab og helmingur Manatíta, það er Zóreíta,

og ættir fræðimannanna, er búa í Jabez, Tíreatítar, Símeatítar og Súkatítar. Þetta eru Kínítar, er komnir eru frá Hammat, föður Rekabs-ættar.