Fyrri Kroníkubók 1Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Fyrri Kroníkubók 1

Adam, Set, Enos.

Kenan, Mahalalel, Jared.

Henok, Methúsala, Lamek.

Nói, Sem, Kam og Jafet.

Synir Jafets voru: Gómer, Magóg, Madaí, Javan, Túbal, Mesek og Tíras.

Og synir Gómers: Askenas, Rífat og Tógarma.

Og synir Javans: Elísa, Tarsis, Kittar og Ródanítar.

Synir Kams: Kús, Mísraím, Pút og Kanaan.

Og synir Kúss: Seba, Havíla, Sabta, Raema og Sabteka. Og synir Raema: Séba og Dedan.

Og Kús gat Nimrod; hann tók að gjörast voldugur á jörðunni.

Og Mísraím gat Lúdíta, Anamíta, Lehabíta, Naftúkíta,

Patrúsíta, Kaslúkíta þaðan eru komnir Filistar og Kaftóríta.

Og Kanaan gat Zídon, frumgetning sinn, og Hef,

Jebúsíta, Amótrita, Gírgasíta,

Hevíta, Arkíta, Síníta,

Arvadíta, Zemaríta og Hamatíta.

Synir Sems voru: Elam, Assúr, Arpaksad, Lúd, Aram, Ús, Húl, Geter og Mas.

Og Arpaksad gat Sela og Sela gat Eber.

Og Eber fæddust tveir synir; hét annar Peleg, því að á hans dögum greindist fólkið á jörðunni, en bróðir hans hét Joktan.

Og Joktan gat Almódad, Salef, Hasarmavet, Jara,

Hadóram, Úsal, Dikla,

Ebaí, Abímael, Séba,

Ófír, Havíla og Jóbab. Þessir allir voru synir Joktans.

Sem, Arpaksad, Sela,

Eber, Peleg, Reú,

Serúg, Nahor, Tara,

Abram, það er Abraham.

Synir Abrahams voru: Ísak og Ísmael.

Þetta er ættartal þeirra: Nebajót var frumgetinn sonur Ísmaels, þá Kedar, Adbeel, Míbsam,

Misma, Dúma, Massa, Hadad, Tema,

Jetúr, Nafis og Kedma. Þessir voru synir Ísmaels.

Og synir Ivetúru, hjákonu Abrahams: hún ól Simran, Joksan, Medan, Midían, Jisbak og Súa. Og synir Joksans voru: Séba og Dedan.

Og synir Midíans: Efa, Efer, Hanok, Abída og Eldaa; allir þessir voru niðjar Kelúru.

Og Abraham gat Ísak; synir Ísaks voru: Esaú og Ísrael. Ættartal og konungar Edómíta.

Synir Esaú voru: Elífas, Regúel, Jehús, Jaelam og Kóra.

Synir Elífas voru: Teman, Ómar, Zefi, Gaetam, Kenas, Tímna og Amalek.

Synir Regúels voru: Nahat, Sera, Samma og Missa.

Og synir Seirs: Lótan, Sóbal, Zíbeon, Ana, Díson, Ezer og Dísan.

Og synir Lótans: Hórí og Hómam, og systir Lótans var Tímna.

Synir Sóbals voru: Aljan, Manahat, Ebal, Sefí og Ónam. Og synir Zíbeons: Aja og Ana.

Synir Ana: Díson. Og synir Dísons: Hamran, Esban, Jítran og Keran.

Synir Ezers voru: Bílhan, Saavan og Jaakan. Synir Dísans voru: Úz og Áran.

Og þessir eru þeir konungar, sem ríktu í Edómlandi, áður en konungar ríktu yfir Ísraelsmönnum: Bela, sonur Beórs, og hét borg hans Dínhaba.

Og er Bela dó, tók Jóbab, sonur Sera frá Bozra, ríki eftir hann.

Og er Jóbab dó, tók Húsam frá Temanítalandi ríki eftir hann.

Og er Húsam dó, tók Hadad sonur Bedads ríki eftir hann; hann vann sigur á Midíanítum á Móabs-völlum; og borg hans hét Avít.

Og er Hadad dó, tók Samla frá Masreka ríki eftir hann.

Og er Samla dó, tók Sál frá Rehóbót hjá Fljótinu ríki eftir hann.

Og er Sál dó, tók Baal-Hanan, sonur Akbórs, ríki eftir hann.

Og er Baal-Hanan dó, tók Hadad ríki eftir hann og hét borg hans Þagi, en kona hans Mehetabeel, dóttir Madredar, dóttur Me-Sahabs.

Og Hadad dó. Og höfðingjar Edómíta voru: höfðinginn Timna, höfðinginn Alva, höfðinginn Jetet,

höfðinginn Oholíbama, höfðinginn Ela, höfðinginn Pínon,

höfðinginn Kenas, höfðinginn Teman, höfðinginn Mibzar,

höfðinginn Magdíel, höfðinginn Íram. Þessir voru höfðingjar Edómíta.