Ávíta þú ekki aldraðan mann harðlega, heldur áminn hann sem föður; yngri menn sem bræður;
aldraðar konur sem mæður; ungar konur sem systur, í öllum hreinleika.
Heiðra ekkjur, sem í raun og veru eru ekkjur;
en ef einhver ekkja á börn eða barnabörn, þá læri þau fyrst og fremst að sýna rækt sínu eigin heimili og endurgjalda foreldrum sínum, því að það er þóknanlegt fyrir augliti Guðs.
Sú, sem er í raun og veru ekkja og er orðin munaðarlaus, hefir fest von sína á Guði, og er stöðug í ákalli og bænum nótt og dag,
en hin bílífa er dauð, þó að hún lifi.
Bjóð þú einnig þetta, til þess að þær séu óaðfinnanlegar.
En ef einhver sér eigi fyrir sínum, sérstaklega heimilismönnum, þá hefir hann afneitað trúnni og er verri en vantrúaður.
Ekkja sé tekin á skrá, sú sem orðin er fullra sextíu ára, hefir verið eins manns kona
og er lofsamlega kunn að góðum verkum; sú er hefir börn fóstrað, sú er hefir verið gestrisin, sú er hefir þvegið fætur heilagra, sú er hefir hjálpað bágstöddum, sú er hefir lagt stund á hvert gott verk.
En hafna þú ungum ekkjum, því að þegar þær í gjálífi afrækja Krist, vilja þær giftast;
þær eru sekar um það, að hafa brugðið trúnaði sínum hinum fyrri.
Og jafnframt temja þær sér iðjuleysi, rápandi hús úr húsi; og ekki einungis iðjulausar, heldur einnig málugar og hlutsamar, og tala það sem eigi ber að tala.
Eg vil því að ungar ekkjur giftist, ali börn, stjórni heimili og gefi mótstöðumanninum ekkert tilefni til illmælis;
því að nokkrar hafa þegar horfið frá til fylgis við Satan.
Ef nokkur trúuð kona á fyrir ekkjum að sjá, þá fulltingi hún þeim, og eigi hafi kirkjan þyngsli af, til þess að hann geti veitt hjálpina þeim, sem ekkjur eru í raun og veru.
Öldungar þeir, sem veita góða forstöðu, séu hafðir í tvöföldum metum, allra helst þeir sem erfiða í orðinu og í kenslu;
því að ritningin segir: Þú skalt ekki múlbinda uxann, er hann þreskir, og verður er verkamaðurinn launa sinna.
Tak þú ekki við kæru gegn öldungi, nema tveir eða þrír vottar beri;
ávíta brotlega í viðurvist allra, til þess að hinir megi og hafa ótta.
Eg særi þig fyrir augliti Guðs og Krists Jesú og hinna útvöldu engla, að þú gætir þessa án nokkurs fordóms og gjörir ekkert af vilfylgi.
Eigi skalt þú fljótráðið leggja hendur yfir nokkurn mann; tak þú eigi heldur þátt í annarra syndum, varðveit sjálfan þig hreinan. —
Vert þú ekki lengur að drekka vatn, heldur skalt þú neyta lítils eins af víni vegna magans og veikinda þinna, sem eru svo tíð. —
Syndirnar hjá sumum mönnum eru í augum uppi, og eru komnar á undan, þegar dæma skal; en hjá sumum koma þær líka á eftir.
Á sama hátt eru og til góð verk, sem strax eru augljós, og þau, sem öðruvísi er ástatt með, geta ekki dulist.