Fyrra Tímóteusarbréf 4Krans-útgáfa

Fyrra Tímóteusarbréf 4

En andinn segir berlega, að á síðari tímum muni sumir ganga af trúnni, er gefa sig að villu-öndum og lærdómum illra anda,

fyrir yfirdrepskap lygimælenda, sem brennimerktir eru á sinni eigin samvisku;

þeir er meina hjúskap og bjóða mönnum að bindast þeirrar fæðu, er Guð hefir skapað til þess að við henni sé tekið með þakkargjörð af trúuðum mönnum, er þekkja sannleikann;

því að öll skepna Guðs er góð, og engu ber frá sér að kasta, sé það þegið með þakkargjörð;

því að það helgast af orði Guðs og bæn.

Með því að brýna þetta fyrir bræðrunum munt þú verða góður þjónn Krists Jesú, er þú elst við orð trúarinnar og góðu kenningarinnar, sem þú hefir fylgt.

En hafna þú vanheilögum kerlinga-æfintýrum, og æf sjálfan þig til guðhræðslu,

því að líkamleg æfing er til lítils nýt, en guðhræðslan er til allra hluta nytsamleg og hefir fyrirheit bæði fyrir þetta líf og hið komanda.

Það orð er satt og í alla staði þess vert, að við því sé tekið.

Því að til þess leggjum vér á oss erfiði og þreytum stríð; því að vér höfum fest von vora á lifanda Guði, sem er frelsari allra manna, einkum trúaðra.

Bjóð þú þetta og kenn það.

Lát engan líta smáum augum á æsku þína, en ver þú fyrirmynd trúaðra, í orði, í hegðun, í kærleika, í trú, í hreinleika.

Ver þú, þangað til eg kem, kostgæfur við upplesturinn, áminninguna og kenninguna.

Vanræktu ekki náðargjöfina þína, sem var gefin þér, samfara spádómsorðum með handayfirlagning öldunganna.

Stunda þetta, ver allur í þessu, til þess að framför þín sé öllum augljós.

Haf gát á sjálfum þér og kenningunni; ver þú stöðugur við þetta; því að er þú gjörir það, munt þú bæði gjöra sjálfan þig hólpinn og áheyrendur þína.