Fyrra Þessaloníkubréf 1Krans-útgáfa

Fyrra Þessaloníkubréf 1

Páll og Silvanus og Tímóteus til kirkju Þessaloníkumanna í Guði föður og drotni Jesú Kristi. Náð sé með yður og friður.

Vér þökkum ávalt Guði fyrir yður alla, er vér minnumst yðar í bænum vorum,

þar eð vér erum sífeldlega minnugir verks yðar í trúnni og erfiðis yðar í kærleikanum og stöðuglyndis yðar í voninni á Drottin vorn Jesúm Krist, fyrir augliti Guðs og föður vors,

og þekkjum, bræður, elskaðir af Guði, útvalningu yðar,

því að fagnaðarboðskapur vor kom eigi til yðar í orðum einum, heldur einnig í krafti og í heilögum anda og með fullkominni sannfæringu, eins og þér vitið, hvernig vér komum fram hjá yður, yðar vegna.

Og þér hafið gjörst eftirbreytendur vorir og Drottins, er þér meðtókuð orðið í mikilli þrengingu með fögnuði heilags anda,

svo að þér eruð orðnir fyrirmynd öllum trúuðum í Makedóníu og í Akkeu;

því að frá yður hefir orð Drottins hljómað, ekki einungis í Makedóníu og Akkeu, heldur er og trú yðar á Guð kunn orðin alstaðar, svo að vér ekkert þurfum um það að tala;

því að þeir segja sjálfir frá því um oss, hvílíka komu vér áttum til yðar og hvernig þér sneruð yður til Guðs frá skurðgoðunum, til þess að þjóna lifandi og sönnum Guði,

og vænta sonar hans frá himnum, sem hann uppvakti frá dauðum, Jesú, er frelsar oss frá hinni komandi reiði.