Fyrra Pétursbréf 1Krans-útgáfa

Fyrra Pétursbréf 1

Pétur postuli Jesú Krists, til útlendinganna í dreifingu í Pontus, Galatíu, Kappadókíu, Asíu og Bitýníu, sem útvaldir eru

eftir fyrirvitund Guðs föður með helgun andans, til hlýðni og ádreifingar blóðs Jesú Krists. Náð og friður margfaldist með yður.

Lofaður sé Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists, sem eftir mikilli miskunn sinni hefir endurfætt oss til lifandi vonar fyrir upprisu Jesú Krists frá dauðum

til óforgengilegrar og flekklausrar og ófölnandi arfleifðar, sem yður er geymd á himnum,

yður sem með krafti Guðs eruð varðveittir fyrir trú til frelsunar, sem búin er til að opinberast á síðasta tíma.

Af þessu gleðjist þér, þótt þér nú um skamma stund, ef svo verður að vera, séuð hrygðir í margs konar freistingum,

til þess að reynsla trúar yðar, langtum dýrmætari en gull, er eyðist, þótt það sé reynt með eldi, geti orðið til lofs og dýrðar og heiðurs í opinberun Jesú Krists,

sem þér elskið, þótt þér ekki hafið séð hann, sem þér trúið á, þótt þér ekki hafið hann nú fyrir augunum, og gleðjist óumræðilegum og dýrlegum fögnuði,

því að þér náið takmarkinu fyrir trú yðar, frelsun sálna yðar.

Þessari frelsun grensluðust spámennirnir eftir og rannsökuðu vandlega, þeir er spáðu um náð þá, er yður mundi hlotnast,

er þeir rannsökuðu, til hvers eða hvílíks tíma Krists andi, sem í þeim bjó, benti, þá er hann vitnaði fyrirfram um píslir Krists og dýrðina þar á eftir.

En þeim var það opinberað, að það var eigi fyrir þá sjálfa, heldur fyrir yður, að þeir þjónuðu að þessu, sem yður er nú kunngjört af þeim, sem boðuðu yður fagnaðarerindið fyrir heilagan anda, sem er sendur frá himni, og inn í þetta fýsir englana að skygnast.

Hafið því lendar hugskots yðar umgyrtar, verið algáðir og setjið algjörlega von yðar til þeirrar náðar, sem yður mun veitast við opinberun Jesú Krists;

sem hlýðin börn megið þér eigi laga breytni yðar eftir þeim girndum, er þér áður þjónuðuð í vanvisku yðar,

heldur verðið sjálfir einnig heilagir í allri hegðun, eins og sá er heilagur, sem yður hefir kallað,

því að ritað er: Verið heilagir, því eg er heilagur.

Og svo framarlega sem þér ákallið þann sem föður, er dæmir án manngreinarálits eftir verkum hvers eins, þá framgangið í ótta yðar útlegðartíma,

því að þér vitið að þér eigi eruð leystir með forgengilegum hlutum, silfri eða gulli, frá yðar hégómlegu hegðun, er þér höfðuð af feðrum yðar,

heldur með dýrmætu blóði eins og lýtalauss og óflekkaðs lambs, það er blóði Krists,

hans sem að sönnu var fyrirfram þektur fyrir grundvöllun heimsins, en var opinberaður við lok tímanna vegna yðar,

sem fyrir hann trúið á Guð, er vakti hann upp frá dauðum og gaf honum dýrð, svo að trú yðar skyldi jafnframt vera von til Guðs.

Er þér hafið hreinsað sálir yðar með hlýðni við sannleikann til hræsnislausrar bróðurelsku, þá elskið hver annan innilega af hjarta,

þér sem endurfæddir eruð, ekki af forgengilegu sæði, heldur óforgengilegu með Guðs lifanda orði, því er varir.

Því að: alt hold er sem gras og öll vegsemd þess sem blóm á grasi; grasið skrælnaði og blómið féll af,

en orð Drottins varir að eilífu. Og þetta er orð fagnaðarerindisins, er yður hefir verið boðað.