En hvað snertir samskotin til hinna heilögu, þá skuluð þér einnig fara með þau eins og eg hefi fyrirskipað kirkjunum í Galatíu.
Hvern fyrsta dag vikunnar skal hver yðar taka frá heima hjá sér og safna í sjóð, eftir því sem efni leyfa, til þess að ekki verði fyrst farið að efna til samskota þegar eg kem.
En þegar eg svo kem, mun eg senda með bréfum, þá sem þér kunnið að velja, til þess að flytja gjöf yðar til Jerúsalem.
En ef vert er, að eg fari líka, þá geta þeir orðið mér samferða.
En eg mun koma til yðar, er eg hefi farið gegnum Makedóníu; því að um Makedóníu legg eg leið mína;
og hjá yður mun eg ef til vill staldra við eða jafnvel dvelja vetrarlangt, til þess að þér getið fylgt mér á leið, hvert sem eg þá kann að fara. Því að nú vil eg ekki sjá yður rétt í svip;
eg vona sem sé, ef Drottinn lofar, að standa við hjá yður nokkura stund.
En eg stend við í Efesus alt til hvítasunnunnar,
því að mér hafa opnast þar víðar dyr og verkmiklar, og andstæðingarnir eru margir.
En ef Tímóteus kemur, þá sjáið til þess, að hann geti óttalaust hjá yður verið, því að hann starfar að verki Drottins eins og eg.
Þess vegna lítilsvirði enginn hann, heldur fylgið honum á leið í friði, til þess að hann geti komist til mín. Því að eg vænti hans með bræðrunum.
En hvað snertir bróður Apollós, þá hefi eg mikillega hvatt hann til að verða bræðrunum samferða til yðar. En hann var alls ófáanlegur til að fara nú, en koma mun hann, er hentugleikar hans leyfa.
Vakið, standið stöðugir í trúnni, verið karlmannlegir, verið styrkir.
Alt hjá yður sé í kærleika gjört.
En eg áminni yður, bræður, — þér vitið um heimili Stefanasar, að það er frumgróði Akkeu og að þeir hafa gefið sig í þjónustu heilagra, —
að einnig þér sýnið undirgefni slíkum mönnum, og hverjum þeim er starfar með og leggur á sig erfiði.
Eg gleðst yfir návist þeirra Stefanasar, Fortúnatusar og Akkaíkusar, af því að þeir hafa bætt mér upp vöntun yðar,
því að þeir hafa hrest anda minn og yðar. Virðið það því við slíka menn.
Asíu-kirkjurnar heilsa yður. Yður heilsa mikillega í drotni Akvílas og Priska ásamt kirkjunni í húsi þeirra.
Yður heilsa allir bræðurnir. Heilsið hver öðrum með heilögum kossi.
Kveðjan er með eigin hendi minni, Páls.
Ef einhver elskar ekki Drottin, hann sé bölvaður. Maranata!
Náðin Drottins Jesú Krists sé með yður.
Kærleikur minn er með öllum yður í Kristi Jesú. Amen.