Fyrra Korintubréf 1Krans-útgáfa

Fyrra Korintubréf 1

Páll, kallaður til postula Jesú Krists, fyrir vilja Guðs, og bróðirinn Sóstenes,

til kirkju Guðs, sem er í Korintuborg, hinna helguðu í Kristi Jesú, heilögu samkvæmt köllun, ásamt öllum þeim, er á sérhverjum stað, hjá þeim og hjá oss, ákalla nafnið Drottins vors Jesú Krists.

Náð sé með yður og friður frá Guði föður vorum og drotni Jesú Kristi.

Ávalt þakka eg Guði mínum yðar vegna fyrir þá náð Guðs, sem yður er gefin í Kristi Jesú,

að þér í honum eruð auðgaðir orðnir í öllu, í allri ræðu og allri þekkingu,

eins og líka vitnisburðurinn um Krist er staðfestur orðinn á meðal yðar,

svo að yður brestur ekki neina náðargjöf, þar sem þér væntið opinberunar Drottins vors Jesú Krists,

hans, sem og mun gjöra yður staðfasta alt til enda, óásakanlega á degi Drottins vors Jesú Krists.

Trúr er Guð, sem yður hefir kallað til samfélags sonar síns Jesú Krists, Drottins vors.

En eg áminni yður, bræður, vegna nafns Drottins vors Jesú Krists, að þér mælið allir hið sama og að ekki séu flokkadrættir á meðal yðar, heldur að þér séuð fullkomlega sameinaðir í sama hugarfari og í sömu skoðun.

Því að mér hefir verið tjáð um yður, bræður mínir, af heimilismönnum Klóe, að þrætur eigi sér stað meðal yðar.

Eg á við þetta, að sérhver yðar segir: Eg er Páls; — og eg er Apollóss; — og eg er Kefasar; — og eg er Krists.

Er þá Kristi skift í sundur? Mun Páll hafa verið krossfestur fyrir yður? Eða eruð þér skírðir til nafns Páls?

Eg þakka Guði fyrir, að eg hefi engan yðar skírt nema Krispus og Gajus,

til þess að enginn skuli segja, að þér séuð skírðir til míns nafns.

Jú, eg skírði líka heimamenn Stefanasar. Annars veit eg ekki til að eg hafi skírt neinn annan.

Því að ekki sendi Kristur mig til að skíra, heldur til að boða fagnaðarerindi, ekki með orðspeki, til þess að krossinn Krists misti ekki gildi sitt.

Því að orð krossins er heimska þeim er glatast, en oss, sem hólpnir verðum, er það kraftur Guðs;

því að ritað er: Eyða mun eg visku vitringanna, og skynsemi hinna skynsömu mun eg að engu gjöra.

Hvar er vitringur? Hvar fræðimaður? Hvar orðkappi þessarar aldar? Hefir Guð ekki gjört að heimsku speki heimsins.

Því að þar eð heimurinn með spekinni þekti ekki Guð í speki Guðs, þóknaðist Guði að gjöra hólpna þá, er trúa, með heimsku prédikunarinnar;

með því að bæði Gyðingar heimta tákn, og Grikkir leita að speki,

en vér prédikum Krist krossfestan, Gyðingum hneyksli, en heiðingjum heimsku,

en sjálfum hinum kölluðu, bæði Gyðingum og Grikkjum, Krist, kraft Guðs og speki Guðs.

Því að hið heimskulega Guðs er mönnum vitrara, og hið óstyrka Guðs mönnum sterkara.

Því að lítið, bræður, til köllunar yðar: þér eruð ekki margir vitrir eftir holdinu, ekki margir máttugir, ekki margir stórættaðir;

heldur hefir Guð útvalið hið heimskulega heimsins, til þess að gjöra hinum vitru kinnroða, og hið óstyrka heimsins hefir Guð útvalið, til þess að gjöra hinum voldugu kinnroða.

Og hið ógöfuga í heiminum og hið fyrirlitna hefir Guð útvalið, og það sem ekkert er, til þess að gjöra það að engu, sem er,

til þess að ekki skuli neitt hold hrósa sér fyrir Guði.

En fyrir hann eruð þér í Kristi Jesú, sem er orðinn oss vísdómur frá Guði, bæði réttlæti og helgun og endurlausn;

til þess að, eins og ritað er: sá sem hrósar sér, hrósi sér í drotni