Gamla testamentiðLögmálið
Og Drottinn talaði við Móse og sagði:
Tala þú við Aron og seg við hann: Þá er þú setur upp lampana, skulu sjö lamparnir varpa ljósi sínu fram undan ljósastikunni.
Og Aron gjörði svo; hann setti lampana upp framan á ljósastikuna, eins og Drottinn hafði boðið Móse.
Og þetta var smíðið á ljósastikunni: hún var gjör af gulli með drifnu smíði; bæði stétt hennar og blóm var drifið smíði; hafði hann gjört ljósastikuna eftir fyrirmynd þeirri, er Drottinn hafði sýnt Móse.
Og Drottinn talaði við Móse og sagði:
Skil þú Levítana úr Ísraelsmönnum og hreinsa þá.
Og þetta skalt þú við þá gjöra, til þess að hreinsa þá: Stökk þú á þá syndhreinsunarvatni, og þeir skulu láta takhníf ganga yfir allan líkama sinn og þvo klæði sín og hreinsa sig.
Og þeir skulu taka ungneyti og matfórn, er því fylgir, fínt mjöl olíublandað, og annað ungneyti skalt þú taka í syndafórn.
Síðan skalt þú leiða Levítana fram fyrir samfundatjaldið og safna saman öllum söfnuði Ísraelsmanna.
Og þú skalt leiða Levítana fram fyrir Drottni, og Ísraelsmenn skulu leggja hendur sínar yfir Levítana.
Og Aron skal veifa Levítunum sem veififórn frammi fyrir Drottni af hendi Ísraelsmanna, og skulu þeir takast á hendur að gegna þjónustu Drottins.
En Levítarnir skulu leggja hendur sínar á höfuð nautanna; og fórna þú öðru í syndafórn og hinu í brennifórn Drottins til handa, til þess að friðþægja fyrir Levítana.
Og þú skalt leiða Levítana fram fyrir Aron og fram fyrir sonu hans og veifa þeim sem veififórn Drottins til handa.
Og þú skalt greina Levítana frá Ísraelsmönnum, svo að Levítarnir heyri mér.
Því næst skulu Levítarnir ganga inn, til þess að gegna Þjónustu við samfundatjaldið; og þú skalt hreinsa þá og veifa þeim sem veififórn.
Því að þeir eru gefnir mér til fullkominnar eignar af Ísraelsmönnum; í stað alls þess er opnar móðurlíf, í stað allra frumburða meðal Ísraelsmanna hefi eg tekið þá mér til eignar.
Því að eg á alla frumburði meðal Ísraelsmanna, bæði menn og skepnur; á þeim degi, er eg laust alla frumburði í Egiptalandi, helgaði eg mér þá.
Og eg tók Levítana í stað allra frumburða meðal Ísraelsmanna.
Og eg gaf Levítana Aroni og sonum hans til eignar af Ísraelsmönnum, til þess að þeir gegni þjónustu fyrir Ísraelsmenn í samfundatjaldinu og til þess að þeir friðþægi fyrir Ísraelsmenn, svo að eigi komi plága yfir Ísraelsmenn, þá er Ísraelsmenn koma nærri helgidóminum.
Og Móse og Aron og allur söfnuður Ísraelsmanna gjörði svo við Levítana; gjörðu Ísraelsmenn að öllu leyti svo við Levítana sem Drottinn hafði boðið Móse um þá.
Og Levítarnir syndhreinsuðu sig og þvoðu klæði sín, og Aron veifaði þeim sem veififórn frammi fyrir Drottni, og Aron friðþægði fyrir þá, til þess að hreinsa þá.
Gengu Levítarnir því næst inn, til þess að gegna þjónustu sinni í samfundatjaldinu fyrir augliti Arons og fyrir augliti sona hans; gjörðu þeir svo við Levítana sem Drottinn hafði boðið Móse um þá.
Og Drottinn talaði við Móse og sagði:
Þetta gildir um Levítana: Frá því þeir eru tuttugu og fimm ára og þaðan af eldri skulu þeir koma, til þess að gegna herþjónustu með þjónustu í samfundatjaldinu;
en frá því þeir eru fimtugir, skulu þeir láta af þjónustunni og eigi þjóna framar.
Þeir mega veita bræðrum sínum aðstoð í samfundatjaldinu, til þess að annast það, sem annast ber, en þjónustu skulu þeir eigi gegna. Þannig skalt þú fara með Levítana, að því er kemur til sýslunar þeirra. Um páskahald óhreinna manna og fjarverandi, svo og útlendra manna. Skýstólpinn.