Gamla testamentiðLögmálið
Þá er Móse hafði lokið við að reisa búðina og hafði smurt hana og vígt og öll áhöld hennar, og smurt og vígt altarið og öll áhöld þess,
færðu höfuðsmenn Ísraels fórnir, foringjar fyrir ættum þeirra — það er höfuðsmenn ættkvíslanna, forstöðumenn hinna töldu;
og þeir færðu fórnargjöf sína fram fyrir Drottni, sex skýlisvagna og tólf naut, einn vagn fyrir hverja tvo höfuðsmenn, og naut fyrir hvern þeirra; færðu þeir þetta fram fyrir búðina.
Og Drottinn talaði við Móse og sagði:
Tak þú við þessu af þeim, og það sé haft til þjónustugjörðar Við samfundatjaldið, og fá þú þetta Levítunum, eftir því sem þjónusta hvers eins er til.
á tók Móse vagnana og nautin og seldi það Levítunum í hendur.
Gersons sonum fékk hann tvo vagna og fjögur naut, eftir þjónustu þeirra.
Og Merarí sonum fékk hann fjóra vagna og átta naut, eftir þjónustu þeirra, undir umsjón Ítamars, Arons sonar Prests.
En Kahats sonum fékk hann ekkert, því að á þeim hvíldi Þjónusta hinna helgu dóma; skyldu þeir bera þá á herðum sér.
Og höfuðsmennirnir færðu gjafir til vígslu altarisins daginn sem það var smurt; og höfuðsmennirnir færðu fórnargjöf sína fram fyrir altarið.
Þá sagði Drottinn við Móse: Höfuðsmennirnir skulu bera fram fórnargjafir sínar sinn daginn hver til vígslu altarisins.
Sá er færði fórnargjöf sína fyrsta daginn, var Nahson Ammínadabsson af ættkvísl Júda.
Og fórnargjöf hans var: silfurfat, hundrað og þrjátíu siklar að þyngd, silfurskál, sjötíu siklar að þyngd eftir helgidóms sikli, hvorttveggja fylt fínu mjöli olíublönduðu til matfórnar,
holli, tíu gullsiklar að þyngd, fullur af reykelsi,
ungneyti, hrútur og sauðkind veturgömul til brennifórnar,
geithafur til syndafórnar,
og til heillafórnar tvö naut, fimm hrútar, fimm kjarnhafrar og fimm sauðkindur veturgamlar. Þetta var fórnargjöf Nalisons Ammínadabssonar.
Annan daginn færði Netanel Zúarsson, höfuðsmaður íssakars, fórn sína.
Færði hann að fórnargjöf silfurfat, hundrað og þrjátíu sikla að þyngd, silfurskál, sjötíu sikla að þyngd eftir helgidóms sikli, hvorttveggja fult af fínu mjöli olíublönduðu, til matfórnar,
bolla, tíu gullsikla að þyngd, fullan af reykelsi,
ungneyti, hrút og sauðkind Veturgamla til brennifórnar,
geithafur til syndafórnar,
og til heillafórnar tvö naut, fimm hrúta, fimm kjarnhafra og fimm sauðkindur veturgamlar. Þetta var fórnargjöf Netanels Zúarssonar.
Þriðja daginn höfuðsmaður Sebúlons sona, Elíab Helónsson.
Og þrjátíu siklar að þyngd, silfurskál, sjötíu siklar að þyngd eftir helgidóms sikli, hvorttveggja fylt fínu mjöli olíublönduðu til matfórnar,
bolli, tíu gullsiklar að þyngd, fullur af reykelsi,
ungneyti, hrútur Og sauðkind veturgömul til brennifórnar,
geithafur til syndafórnar,
og til heillafórnar tvö naut, fimm hrútar, fimm kjarnhafrar og fimm sauðkindur veturgamlar. Þetta var fórnargjöf Elíabs Helónssonar.
Fjórða daginn höfuðsmaður Rúbens sona, Elízúr Sedeúrsson.
Fórnargjöf hans var: silfurfat, hundrað og þrjátíu siklar að þyngd, silfurskál, sjötíu siklar að þyngd eftir helgidóms sikli, hvorttveggja fult af fínu mjöli olíublönduðu, til matfórnar,
bolli, tíu gullsiklar að þyngd, fullur af reykelsi,
ungneyti, hrútur og sauðkind veturgömul til brennifórnar,
geithafur til syndafórnar,
B og til heillafórnar tvö naut, fimm urútar, fimm kjarnhafrar og fimm sauðkindur veturgamlar. Þetta var fórnargjöf Elízúrs Sedeúrssonar.
Fimta daginn höfuðsmaður Símeons sona, Selúmíel Zúrísaddaíson.
Fórnargjöf hans var: silfurfat, hundrað og þrjátíu siklar að þyngd, silfurskál, sjötíu siklar að þyngd eftir helgidóms sikli, hvorttveggja fult af fínu mjöli olíublönduðu, til matfórnar,
bolli, tíu gullsiklar að þyngd, fullur af reykelsi,
ungneyti, hrútur og sauðkind veturgömul til brennifórnar,
geithafur til syndafórnar,
og til heillafórnar tvö naut, fimm hrútar, fimm kjarnhafrar og fimm sauðkindur veturgámfar. Þetta var fórnargjöf Selúmíels Zúrísaddaísonar.
Sétta daginn höfuðsmaður Gaðs sona, Eljasaf Degúelsson.
Fórnargjöf hans var: silfurfat, hundrað og þrjátíu siklar að þyngd, silfurskál, sjötíu siklar að þyngd eftir helgidóms sikli, hvorttveggja fult af fínu mjöli olíublönduðu, til matfórnar,
bolli, tíu gullsiklar að þyngd, fullur af reykelsi,
ungneyti, hrútur og sauðkind veturgömul til brennifórnar,
geithafur til syndafórnar,
og til heillafórnar tvö naut, fimm hrútar, fimm kjarnhafrar og fimm sauðkindur veturgamlar. Þetta var fórnargjöf Eljasafs Degúelssonar.
Sjöunda daginn höfuðsmaður Efraíms sona, Elísama Ammíhúdsson.
Fórnargjöf hans var: silfurfat, hundrað og þrjátíu siklar að þyngd, silfurskál, sjötíu siklar að þyngd eftir helgidóms sikli, hvorttveggja fult af fínu mjöli olíublönduðu, til matfórnar,
bolli, tíu gullsiklar að þyngd, fullur af reykelsi,
ungneyti, hrútur og sauðkind veturgömul til brennifórnar,
geithafur til syndafórnar,
og til heillafórnar tvö naut, fimm hrútar, fimm kjarnhafrar og fimm sauðkindur veturgamlar. Þetta var fórnargjöf Elísama Ammíhúdssonar.
Áttunda daginn höfuðsmaður Manasse sona, Gamlíel Pedazúrsson.
Fórnargjöf hans var: silfurfat, hundrað og þrjátíu siklar að þyngd, silfurskál, sjötíu siklar að þyngd eftir helgidóms sikli, hvorttveggja fult af fínu mjöli olíublönduðu, til matfórnar,
bolli, tíu gullsiklar að þyngd, fullur af reykelsi,
ungneyti, hrútur og sauðkind veturgömul til brennifórnar,
geithafur til syndafórnar,
og til heillafórnar tvö naut, fimm hrútar, fimm kjarnhafrar og fimm sauðkindur veturgamlar. Þetta var fórnargjöf Gamlíels Pedazúrssonar.
Níunda daginn höfuðsmaður Benjamíns sona, Abídan Gídeóníson.
Fórnargjöf hans var: silfurfat, hundrað og þrjátíu siklar að þyngd, silfurskál, sjötíu siklar að þyngd eftir helgidóms sikli, hvorttveggja fult af fínu mjöli olíublönduðu, til matfórnar,
bolli, tíu gullsiklar að þyngd, fullur af reykelsi,
ungneyti, hrútur og sauðkind veturgömul til brennifórnar,
geithafur til syndafórnar,
og til heillafórnar tvö naut, fimm hrútar, fimm kjarnhafrar og fimm sauðkindur veturgamlar. Þetta var fórnargjöf Abídans Gídeónísonar.
Tíunda daginn höfuðsmaður Dans sona, Akíeser Ammísaddaíson.
Fórnargjöf hans var: silfurfat, hundrað og þrjátíu siklar að þyngd, silfurskál, sjötíu siklar að þyngd eftir helgidóms sikli, hvorttveggja fult af fínu mjöli olíublönduðu, til matfórnar,
bolli, tíu gullsiklar að þyngd, fullur af reykelsi,
ungneyti, hrútur og sauðkind veturgömul til brennifórnar,
geithafur til syndafórnar,
og til heillafórnar tvö naut, fimm hrútar, fimm kjarnhafrar og fimm sauðkindur veturgamlar. Þetta var fórnargjöf Akíesers Ammísaddaísonar.
Ellefta daginn höfuðsmaður Assers sona, Pagíel Okransson.
Fórnargjöf hans var: silfurfat, hundrað og þrjátíu siklar að þyngd, silfurskál, sjötíu siklar að þyngd eftir helgidóms sikli, hvorttveggja fult af fínu mjöli olíublönduðu, til matfórnar,
bolli, tíu gullsiklar að þyngd, fullur af reykelsi,
ungneyti, hrútur og sauðkind veturgömul til brennifórnar,
geithafur til syndafórnar,
og til heillafórnar tvö naut, fimm hrútar, fimm kjarnhafrar og fimm sauðkindur veturgamlar. Þetta var fórnargjöf Pagíels Okranssonar.
Tólfta daginn höfuðsmaður Naftalísona, Akíra Enansson.
Fórnargjöf hans var: silfurfat, hundrað og þrjátíu siklar að þyngd, silfurskál, sjötíu siklar að þyngd eftir helgidóms sikli, hvorttveggja fult af fínu mjöli olíublönduðu, til matfórnar,
bolli, tíu gullsiklar að þyngd, fullur af reykelsi,
ungneyti, hrútur og sauðkind veturgömul til brennifórnar,
geithafur til syndafórnar,
og til heillafórnar tvö naut, fimm hrútar, fimm kjarnhafrar og fimm sauðkindur veturgamlar. Þetta var fórnargjöf Akíra Enanssonar.
Þetta voru gjafirnar frá höfuðsmönnum Ísraels til vígslu altarisins daginn sem það var smurt: tólf silfurföt, tólf silfurskálar, tólf gullbollar;
vó hvert fat hundrað og þrjátíu sikla silfurs og hver skál Sjótíu; alt silfur ílátanna vó tvö þúsund og fjögur hundruð sikla eftir helgidóms sikli;
tólf gullbollar, fullir af reykelsi, hver bolli tíu siklar eftir helgidóms sikli; alt gullið í bollunum vó hundrað og tuttugu sikla.
»Öll nautin til brennifórnarinnar voru tólf uxar, auk þess tólf hrútar, tólf sauðkindur veturgamlar, ásamt matfórninni, er þeim fylgdi, og tólf geithafrar í syndafórn.
Og öll nautin til heillafórnarinnar voru tuttugu og fjórir uxar, auk þess sextíu hrútar, sextíu kjarnhafrar og sextíu sauðkindur veturgamlar. Þetta voru gjafirnar til vígslu altarisins, eftir að það hafði verið smurt.
Og þegar Móse gekk inn í samfundatjaldið, til þess að tala við hann, heyrði hann röddina tala til sín ofan af lokinu, sem er yfir sáttmálsörkinni, fram á milli kerúbanna tveggja; og hann talaði við hann.