Fjórða Mósebók 4Krans-útgáfa

Gamla testamentiðLögmálið

Fjórða Mósebók 4

Og Drottinn talaði við Móse og Aron og sagði:

Takið tölu Kahats sona meðal Leví sona, eftir kynkvíslum þeirra, eftir ættum þeirra,

frá þrítugs aldri og þaðan af eldri til fimtugs aldurs, alla herfæra menn, til þess að gegna störfum við samfundatjaldið.

þetta er þjónusta Kallats sona við samfundatjaldið: hið háheilaga.

Þegar herinn tekur sig upp, skulu þeir Aron og synir hans ganga inn og taka niður fortjaldsdúkbreiðuna og láta hana yfir sáttmálsörkina;

og þeir skulu leggja þar yfir ábreiðu af sækýrskinni og breiða yfir klæði, sem alt er gjört af bláum purpura, og setja stengurnar í.

Og yfir skoðunarbrauðaborðið skulu þeir breiða klæði af bláum purpura og setja þar á fötin, bollana, kerin og dreypifórnarskálarnar, og stöðuga brauðið skal vera á því.

Og yfir þetta skulu þeir breiða skarlatsklæði og leggja þar yfir ábreiðu af sækýrskinnum og setja stengurnar í.

Og þeir skulu taka klæði af bláum purpura og láta það yfir ljósastikuna, lampa hennar, ljósasöx og skarpönnur, og öll olíukerin, sem notuð eru við hana.

Og þeir skulu sveipa hana og öll áhöld hennar í ábreiðu af sækýrskinnum og leggja á börur.

Og yfir gullaltarið skulu þeir breiða klæði af bláum purpura og leggja þar yfir ábreiðu af sækýrskinnum og setja stengurnar í.

Og þeir skulu taka öll áhöld þjónustugjörðarinnar, þau er höfð eru til þjónustugjörðar í helgidóminum, og sveipa þau í klæði af bláum purpura og leggja þar yfir ábreiðu af sækýrskinnum og leggja á börurnar.

Og þeir skulu sópa öskunni af altarinu og breiða yfir það klæði af rauðum purpura.

Og þeir skulu leggja á það öll áhöld þess, sem höfð eru til þjónustu á því, eldpönnurnar, soðkrókana, eldspaðana og fórnarskálarnar, öll áhöld altarisins, og skulu þeir breiða yfir það ábreiðu af sækýrskinníum og setja stengurnar í.

Og er þeir Aron og synir hans hafa lokið því að breiða yfir helgidóminn og öll áhöld helgidómsins, þá er herinn tekur sig upp, skulu Kahats synir þessu næst koma, til þess að bera; en eigi skulu þeir koma við helgidóminn, svo að þeir deyi ekki. Þetta er það, sem Kahats synir eiga að bera við samfundatjaldið.

En Eleasar, sonur Arons prests, skal hafa umsjón yfir olíunni til ljósastikunnar, ilmreykelsinu, hinni stöðugu matfórn og smurningarolíunni, umsjón yfir allri búðinni og öllum helgum hlutum, sem í henni eru, og áhöldum, er þar til heyra.

Og Drottinn talaði við Móse og Aron og sagði:

Látið ekki kynþátt Kahatítanna upprættan verða úr Levítunum;

heldur farið með þá á þessa leið, að þeir haldi lífi og deyi ekki, er þeir nálgast hið háhelga: Aron og synir hans skulu ganga inn og skipa hverjum sína þjónustu og sinn burð.

En eigi skulu þeir sjálfir ganga inn, til þess að sjá helgidóminn, jafnvel eigi eitt augnablik, svo að þeir deyi ekki.

Og Drottinn talaði við Móse og sagði:

Tak þú einnig tölu Gersons sona eftir ættum þeirra, eftir kynkvíslum þeirra;

skalt þú telja þá frá þrítugs aldri og þaðan af eldri til fimtugs aldurs, alla þá, sem koma til þess að gegna herþjónustu og inna af hendi störf við samfundatjaldið.

Þetta er þjónusta Gersónita kynkvíslanna, það sem þeir eiga að annast og bera:

Þeir skulu bera dúka búðarinnar og samfundatjaldið, þakið á því og ábreiðuna af sækýrskinnum, sem utan yfir því er, og dúkbreiðuna fyrir dyrum samfundatjaldsins;

enn fremur forgarðstjöldin og dúkbreiðuna fyrir dyrum forgarðsins, sem liggur alt í kring um búðina og altarið, og stögin, sem þar til heyra, og öll áhöld við þjónustu þeirra; og alt, sem við þetta þarf að gjöra, skulu þeir inna af hendi.

Eftir boði Arons og sona hans skal öll þjónusta sona Gersónita fram fara, að því er snertir alt það, er þeir eiga að bera, og alt það, er þeir eiga að annast; og þér skuluð vísa þeim á alt, sem þeir eiga að bera, með nafni.

Þetta er þjónusta kynkvísla Gersóníta sona við samfundatjaldið; og það, sem þeir eiga að annast, skal vera undir umsjón Ítamars, sonar Arons prests.

Sonu Merarí skalt þú telja eftir kynkvíslum þeirra, eftir ættum - Þeirra;

skalt þú telja þá frá þrítugs aldri og þaðan af eldri til fimtugs aldurs, alla þá, er ganga í herþjónustu, til þess að inna af hendi störf við samfundatjaldið.

Og þetta er það, sem þeir eiga að sjá um að - bera, alt það sem þeim ber að annast við samfundatjaldið: þiljuborð búðarinnar, slár hennar, stólpar og undirstöður;

enn fremur stólpar forgarðsins alt í kring og undirstöður þeirra, hælar og stög, ásamt öllum áhöldum, er til þess heyra, og öllu því, er við þetta þarf að annast. Og þér skuluð vísa þeim á öll áhöld þau, er þeir eiga að bera, með nafni.

Þetta er þjónusta kynkvísla Merarí sona, öll þjónusta þeirra við samfundatjaldið undir umsjón Ítamars, sonar Arons prests.

Og Móse og Aron og höfðingjar safnaðarins töldu sonu Kahatitanna eftir kynkvíslum þeirra og eftir ættum þeirra,

frá þrítugs aldri og þaðan af eldri til fimtugs aldurs, alla þá sem ganga í herþjónustu, til þess að inna af hendi störf við samfundatjaldið.

Og þeir, ertaldir voru af þeim eftir kynkvíslum þeirra, voru tvö þúsund sjö hundruð og fimtíu.

Þetta eru þeir, er taldir voru af kynkvíslum Kahatíta, allir þeir, er þjónustu gegndu við samfundatjaldið og þeir Móse og Aron töldu að boði Drottins fyrir Móse.

Og þeir, sem taldir voru af Gersons sonum eftir kynkvíslum þeirra og eftir ættum þeirra,

frá þrítugs aldri og þaðan af eldri til fimtugs aldurs, allir þeir, sem ganga í herþjónustu, til þess að inna af hendi störf við samfundatjaldið

þeir er taldir voru af þeim eftir kynkvíslum þeirra, eftir ættum þeirra, voru tvö þúsund sex hundruð og þrjátíu.

Þetta eru þeir, er taldir voru af kynkvíslum Gersons sona, allir þeir, er þjónustu gegndu við samfundatjaldið og þeir Móse og Aron töldu eftir boði Drottins.

Og þeir, sem taldir voru af kynkvíslum Merari sona, eftir kynkvíslum þeirra, eftir ættum þeirra,

frá þrítugs aldri og þaðan af eldri til fimtugs aldurs, allir þeir, sem ganga í herþjónustu, til þess að inna af hendi störf við samfundatjaldið

þeir er taldir voru af þeim eftir kynkvíslum þeirra, voru þrjú þúsund og tvö hundruð.

Þetta eru þeir, er taldir voru, af kynkvíslum Merarí sona og þeir Móse og Aron töldu eftir boði Drottins fyrir Móse.

Allir þeir, er taldir voru af Levítunum og þeir Móse og Aron og höfðingjar Ísraels töldu, eftir kynkvíslum þeirra og eftir ættum þeirra,

frá þrítugs aldri og þaðan af eldri til fimtugs aldurs, allir þeir, sem komu, til þess að inna af hendi þjónustustörf eða burðarstörf við samfundatjaldið —

þeir er taldir voru af þeim, voru átta þúsund fimm á hundruð og áttatíu.

Eftir boði Drottins var þeim hverjum einum undir umsjón Móse vísað á það, er þeir áttu að annast og þeir áttu að bera; og þeir voru taldir, svo sem Drottinn hafði boðið Móse.