Fjórða Mósebók 34Krans-útgáfa

Gamla testamentiðLögmálið

Fjórða Mósebók 34

Og Drottinn talaði við Móse og sagði:

Bjóð þú Ísraelsmönnum og seg við þá: Þegar þér komið inn í Kanaanland, þá skal það vera landið, sem þér hljótið til eignar, Kanaanland til yztu ummerkja.

Suðurhliðin skal vera: frá Zin-eyðimörk með fram Edóm; og austurendi suður-takmarkanna skal vera suðurendi Saltasjós;

þaðan skulu takmörkin liggja í boga fyrir sunnan Sporðdrekaskarð og ná yfir til Zín og endir þeirra vera fyrir sunnan Kades-Barnea;

Frá Azmón skulu takmörkin liggja í boga til Egiptalandsár og alla leið til sjóar.

Og að vestur-takmörkum skuluð þér hafa hafið mikla; þetta skulu vera vestur-takmörkin.

En norður-takmörkin skulu vera þessi: frá hafinu mikla skuluð þér taka stefnu á Hór-fjall;

Strá Hór-fjalli skuluð þér taka stefnu þangað sem leið liggur til Hamat, og þaðan alla leið til Zedad.

Skulu takmörkin ná til Sífrón og enda í Hazar-Enan. Þetta skulu vera landamerki yðar að norðanverðu.

Og að austanverðu skuluð þér selja merkjalínuna frá Hazar-Enan til Sefam;

en frá Sefam skulu landamerkin liggja suður til Ribla, fyrir austan Aín; þaðan skulu landamerkin liggja niður eftir og nema við fjallhrygginn fyrir austan Kíneret-vatn.

Og landamerkin skulu liggja niður með Jórdan og enda við Saltasjó. Þessi skulu merki vera lands yðar hringinn í kring.

Og Móse bauð Ísraelsmönnum og sagði: Þetta er landið, sem þér skuluð fá til eignar með hlutkesti og Drottins bauð að gefa níu ættkvíslunum og hálfri.

Því að ættkvísl Rúbens sona, hver ætt fyrir sig, og ættkvísl Gaðs sona, hver ætt fyrir sig, og hálf ættkvísl Manasse hafa fengið sinn eignarhluta.

Tvær ættkvíslirnar og hálf hafa fengið sinn eignarhluta hinumegin Jórdanar, gegnt Jeríkó, austanmegin.

Og Drottinn talaði við Móse og sagði:

Þessi eru nöfn þeirra manna, er skifta skulu landinu milli yðar: Eleasar prestur og Jósúa Núnsson.

Enn fremur skuluð þér taka einn höfðingja af ættkvísl hverri, til að skifta landinu.

Og þessi eru nöfn mannanna: af ættkvísl Júda Kaleb Jefúnneson;

af ættkvísl Símeons sona Samúel Ammíhúdsson;

af ættkvísl Benjamíns Elídad Kislónsson;

höfðingi af ættkvísl Dans sona Búkí Joglíson;

af sonum Jósefs: höfðingi af ættkvísl Manasse sona Hanníel Efóðsson,

og höfðingi af ættkvísl Efraíms sona Kemúel Siftansson;

höfðingi af ættkvísl Sebúlons sona Elízafan Parnaksson;

höfðingi af ættkvísl Íssakars sona Paltíel Asansson;

höfðingi af ættkvísl Assers sona Akihúð Selómíson;

og höfðingi af ættkvísl Naftalí sona Pedahel Ammíhúdsson.

Þessir voru þeir, er Drottinn bauð að skifta skyldu landeignum milli Ísraelsmanna í Kanaanlandi.