Gamla testamentiðLögmálið
Þessir voru áfangar Ísraelsmanna, er þeir fóru af Egiptalandi, hver hersveit fyrir sig, undir forystu þeirra Móse og Arons.
Og Móse færði í letur að boði Drottins staðina, sem þeir lögðu upp frá, eftir áföngum þeirra; og þessir voru áfangar þeirra frá einum áfangastað til annars.
Þeir lögðu upp frá Ramses í fyrsta mánuðinum, á fimtánda degi hins fyrsta mánaðar; daginn eftir páska lögðu Ísraelsmenn af stað með lyftri hendi að Egiptum öllum ásjáandi,
meðan Egiptar voru að jarða alla frumburðina, er Drottinn hafði fyrir þeim deytt; og Drottinn hafði látið refsidóma ganga yfir goð þeirra.
Og Ísraelsmenn lögðu upp frá Ramses og settu búðir sínar í Súkkót.
Og þeir lögðu upp frá Súkkót og settu búðir sínar í Etam, þar sem eyðimörkina þrýtur.
Og þeir lögðu upp frá Etam og sneru leið sinni til Pí-Hakírót, sem er fyrir austan Baal-Zefón, og þeir settu búðir sínar fyrir austan Mígdól.
Og þeir lögðu upp frá Pí-Hakírót og fóru þvert yfir hafið inn í eyðimörkina; og þeir fóru þriggja daga leið í Etam-eyðimörk og settu búðir sínar í Mara.
Og þeir lögðu upp frá Mara og komu til Elím; en í Elím voru tólf vatnslindir og sjötíu pálmaviðir; þar settu þeir búðir sínar.
Og þeir lögðu upp frá Elím og settu búðir sínar við Rauðahafið.
Og þeir lögðu upp frá Rauðahafinu og settu búðir sínar í Sín-eyðimörku.
Og þeir lögðu upp frá Sín-eyðimörk og settu búðir sínar í Dofka.
Og þeir lögðu upp frá Dofka og settu búðir sínar í Alús.
Og þeir lögðu upp frá Alús og settu búðir sínar í Refídím; þar hafði lýðurinn ekki vatn að drekka.
Og þeir lögðu upp frá Refídím og settu búðir sínar í Sínaí-eyðimörk.
Og þeir lögðu upp frá Sínaí-eyðimörk og settu búðir sínar í Kibrót-hattava.
Og þeir lögðu upp frá Kibrót-hattava og settu búðir sínar í Hazerót.
Og þeir lögðu upp frá Hazerót og settu búðir sínar í Ritma.
Og þeir lögðu upp frá Ritma og settu búðir sínar í Rimmón-Perez.
Og þeir lögðu upp frá Rimmón-Perez og settu búðir sínar í Líbna.
Og þeir lögðu upp frá Líbna og settu búðir sínar í Rissa.
Og þeir lögðu upp frá Rissa og settu búðir sínar í Kehelata.
Og þeir lögðu upp frá Kehelata og settu búðir sínar á Seferfjalli.
Og þeir lögðu upp frá Seferfjalli og settu búðir sínar í Harada.
Og þeir lögðu upp frá Harada og settu búðir sínar í Makhelót.
Og þeir lögðu upp frá Makhelót og settu búðir sínar í Tahat.
Og þeir lögðu upp frá Tahat og settu búðir sínar í Tera.
Og þeir lögðu upp frá Tera og settu búðir sínar í Mitka.
Og þeir lögðu upp frá Mitka og settu búðir sínar í Hasmóna.
Og þeir lögðu upp frá Hasmóna og settu búðir sínar í Móserót.
Og þeir lögðu upp frá Móserót og settu búðir sínar í Bene-Jaakan.
Og þeir lögðu upp frá Bene-Jaakan og settu búðir sínar í Hór-Haggiðgað.
Og þeir lögðu upp frá Hór-Haggiðgað og settu búðir sínar í Jotbata.
Og þeir lögðu upp frá Jotbata og settu búðir sínar í Abróna.
Og þeir lögðu upp frá Abróna og settu búðir sínar í Ezjón-Geber.
Og þeir lögðu upp frá Ezjón-Geber og settu búðir sínar í Zín-eyðimörku, það er Kades.
Og þeir lögðu upp frá Kades og settu búðir sínar á Hór-fjalli, á landamærum Edóm-lands.
Og Aron prestur fór að boði Drottins upp á Hór-fjall og andaðist þar, á fertugasta ári eftir brottför Ísraelsmanna af Egiptalandi, í fimta mánuðinum, á fyrsta degi mánaðarins.
Og Aron var hundrað tuttugu og þriggja ára gamall, þegar hann andaðist á Hór-fjalli.
Og Kanaanítinn, konungurinn í Arad, sem bjó í suðurhluta Kanaanlands, spurði komu Ísraelsmanna.
Og þeir lögðu upp frá Hór-fjalli og settu búðir sínar í Zalmóna.
Og þeir lögðu upp frá Zalmóna og settu búðir sínar í Fúnón.
Og þeir lögðu upp frá Fúnón og settu búðir sínar í Óbót.
Og þeir lögðu upp frá Óbót og settu búðir sínar í Íje-Haabarím, í Móabslandi.
Og þeir lögðu upp frá Íjím og settu búðir sínar í Díbon-Gað.
Og þeir lögðu upp frá Díbon-Gað og settu búðir sínar í Almón-Díblataím.
Og þeir lögðu upp frá Almón-Díblataím og settu búðir sínar í Abarím-fjöllum, fyrir austan Nebó.
Og þeir lögðu upp frá Abarím-fjöllum og settu búðir sínar á Móabs-heiðum við Jórdan, gegnt Jeríkó.
Settu þeir búðir sínar við Jórdan frá Bet-Hajesímót til Abel-Hasittím á Móabs-heiðum.
Og Drottinn talaði við Móse á Móabs-heiðum við Jórdan, gegnt Jeríkó, og sagði:
Mæl þú til Ísraelsmanna og seg við þá: Þegar þér eruð komnir yfir um Jórdan inn í Kanaanland,
skuluð þér stökkva burt undan yður öllum íbúum landsins og eyða öllum myndasteinum þeirra; þér skuluð og eyða öllum steyptum líkneskjum þeirra og leggja fórnarhæðir þeirra í eyði;
og þér skuluð kasta eign yðar á landið og festa bygð í því; því að yður hefi eg gefið landið til eignar.
Og þér skuluð fá erfðahluti í landinu eftir hlutkesti, hver ættkvísl fyrir sig; þeirri ættkvísl, sem mannmörg er, skuluð þér fá mikinn erfðahlut, en Þeirri, sem fámenn er, skuluð þér fá lítinn erfðahlut; þar sem hlutur hvers eins fellur, það skal verða hans; eftir kynkvíslum feðra yðar Skuluð þér fá það í erfðahlut.
En ef þér stökkvið ekki íbúum landsins burt undan yður, þá munu þeir af þeim, er þér skiljið eftir, verða þyrnar í augum yðar og broddar í síðum yðar og þeir munu veita yður þungar búsifjar í landinu, sem þér búið í;
og þá mun svo fara, að eg mun gjöra svo við yður sem eg hafði fyrirhugað að gjöra við þá.