Fjórða Mósebók 2Krans-útgáfa

Gamla testamentiðLögmálið

Fjórða Mósebók 2

Og Drottinn talaði við Móse og Aron og sagði:

Sérhver Ísraelsmanna skal tjalda hjá merki sínu, við einkenni ættar sinnar; skulu Þeir tjalda gegnt samfundatjaldinu hringinn í kring.

Og að austanVerðu, gegnt upprás sólar, skulu tjalda: merki Júda herhúða eftir hersveitum þeirra, og höfuðsmaður Júda sona sé Nalison Ammínadabsson.

Og hersveit hans og taldir liðsmenn þeirra voru sjötíu og fjórar Þúsundir og sex hundruð.

Og næst honum skal tjalda ættkvísl íssakars og höfuðsmaður íssakars sona sé Netanel Zúarsson.

Og hersveit hans og taldir liðsmenn hans voru fimtíu og sjö þúsundir og fjögur hundruð.

Enn fremur ættkvísl Sebúlons, og höfuðsmaður Sehúlons sona sé Elíab Helónsson.

Og hersveit hans og taldir liðsmenn þeirra voru þrjátíu og tvær þúsundir og tvö hundruð.

Allir taldir liðsmenn í Júda herbúðum voru hundrað áttatíu og sex þúsundir og fjögur hundruð, eftir hersveitum þeirra; skulu þeir taka sig upp fyrstir.

Að sunnanverðu skal merki Rúbens herhúða vera eftir hersveitoxn þeirra, og höfuðsmaður Rúbens sona Elízúr Sedeúrsson.

Og hersveit hans og taldir liðsmenn þeirra voru þrjátíu og fimm þúsundir og fjögur hundruð.

Og næst honum skal tjalda ættkvísl Símeons, og höfuðsmaður Símeons sona sé Selúmíel Zúrísaddaíson.

Og hersveit hans og taldir liðsmenn þeirra voru fimtíu og níu þúsundir og þrjú hundruð.

Enn fremur ættkvísl Gaðs, og höfuðsmaður Gaðs sona sé Eljasaf Regúelsson.

Og hersveit hans og taldir liðsmenn þeirra voru fjörutíu og fimm þúsundir sex hundruð og fimtíu.

Allir taldir liðsmenn í Rúbens herbúðum voru hundrað fimtíu og eitt þúsund fjögur hundruð og fimtíu, eftir hersveitum þeirra; skulu þeir taka sig upp næstir hinum fyrstu.

Þá skal samfundatjaldið taka sig upp, ásamt búðum Levítanna, í miðjum hernum; eins og þeir tjalda, svo skulu þeir taka sig upp, hver á sínum stað, eftir merkjum sínum.

Að vestanverðu skal merki Efraíms herbúða vera eftir hersveitum þeirra, og höfuðsmaður yfir Efraíms sonum Elísama Ammíhúdsson.

Og hersveit hans og taldir liðsmenn þeirra voru fjörutíu þúsundir og fimm hundruð.

næst honum ættkvísl Manasse, og höfuðsmaður yfir Manasse sonum sé Gamlíel Pedazúrsson.

Og hersveit hans og taldir liðsmenn þeirra voru þrjátíu og tvær þúsundir og tvö hundruð.

Enn fremur ættkvísl Benjamíns, og höfuðsmaður yfir Benjamíns sonum sé Abídan Gideónison.

Og hersveit hans og taldir liðsmenn þeirra voru þrjátíu og fimm þúsundir og fjögur hundruð.

Allir taldir liðsmenn í Efraíms herbúðum voru hundrað og átta þúsundir og eitt hundrað, eftir hersveilum þeirra; og þeir skulu helja ferð sína hinir þriðju.

Að norðanverðu skal merki Dans herbúða vera eftir hersveitum þeirra, og höfuðsmaður yfir Dans sonum sé Akieser Ammísaddaíson.

Og hersveit hans og taldir liðsmenn þeirra voru sextíu og tvær þúsundir og sjö hundruð.

Og næst honum tjaldi ættkvísl Assers, og höfuðsmaður yfir Assers sonum sé Pagiel Okranson.

Og hersveit hans og taldir liðsmenn þeirra voru fjörutíu og eitt þúsund og fimm hundruð.

Enn fremur ættkvísl Naftalí, og höfuðsmaður yfir Naftalí sonum sé Ákím Enansson.

Og hersveit hans og taldir liðsmenn þeirra voru fimtíu og þrjár þúsundir og fjögur hundruð.

Allir taldir liðsmenn í Dans herbúðum voru hundrað fimtíu og sjö þúsundir og sex hundruð; skulu þeir hefja ferð sína síðastir, eftir merkjum sínum.

Þessir eru taldir liðsmenn Ísraelsmanna eftir ættum þeirra; allir taldir liðsmenn í herbúðunum eftir hersveitum þeirra voru sex hundrað og þrjár þúsundir fimm hundruð og fimtíu,

En Levítarnir voru ekki taldir meðal Ísraelsmanna, svo sem Drottinn hafði boðið Móse.

Og Ísraelsmenn gjörðu svo; að öllu svo sem Drottinn hafði boðið Móse tjölduðu þeir eftir merkjum sínum og hófu ferð, hver eftir kynkvísl sinni, hjá sinni ætt.