Fjórða Mósebók 1Krans-útgáfa

Gamla testamentiðLögmálið

Fjórða Mósebók 1

Og Drottinn talaði við Móse í Sínai-eyðimörk, í samfundatjaldinu, á fyrsta degi annars mánaðar á öðru ári eftir brottför þeirra af Egiptalandi og mælti:

Takið manntal alls safnaðar Ísraelsmanna eftir kynkvíslum þeirra, eftir ættum þeirra, samkvæmt nafnatölu, alla karlmenn mann fyrir mann.

Alla herfæra menn í Ísrael frá tvítugs aldri og þaðan af eldri skuluð þér telja eftir hersveitum þeirra, þú og Aron.

Og með ykkur skal vera einn maður af ættkvísl hverri, og sé hann höfuð ættar sinnar.

Og þessi eru nöfn þeirra manna, er ykkur skulu aðstoða: Af Rúben: Elízúr Sedeúrsson;

af Símeon: Selúmíel Zúrísaddaíson;

Tal Júda: Nahson Ammínadabsson;

Saf Íssakar: Netanel Zúarsson;

af Sebúlon: Elíab Helónsson;

af Jósefssonum: af Efraím: Elísama Ammíhúdsson; af Manasse: Gamliel Pedazúrsson;

af Benjamín: Abídan Gídeóníson;

af Dan: Akíeser Ammísaddaíson;

af asser: Pagíel Okransson;

Guð: Eljasaf Degúelsson;

af Naftalí: Akíra Enansson.

G Þessir voru til nefndir af söfnuðinum, höfðingjar yfir ættkvíslum feðra sinna; voru þeir höfuð Ísraels þúsunda.

Og Móse og Aron tóku menn þessa, sem nafngreindir eru;

og þeir stefndu saman öllum söfnuðinum á fyrsta degi annars mánaðar; og þeir létu skrifa sig á ættarskrárnar eftir kynkvíslum þeirra, eftir ættum þeirra, samkvæmt nafnatölu, frá tvítugsaldri og þaðan af eldri, maður fyrir mann.

Svo sem Drottinn hafði boðið Móse, taldi hann þá í Sínaí-eyðimörk.

En synir Rúbens, frumgetins sonar Ísraels, niðjar þeirra eftir kynkvíslum þeirra, eftir ættum þeirra, samkvæmt nafnatölu, maður fyrir mann, allir karlmenn frá tvítugs aldri og þaðan af eldri, allir herfærir menn —

þeir er taldir voru af ættkvísl Rúbens, voru fjörutíu og sex þúsundir og fimm hundruð.

Synir Símeons, niðjar þeirra eftir kynkvíslum þeirra, eftir ættum þeirra, samkvæmt nafnatölu, maður fyrir mann, allir karlmenn frá tvítugs aldri og þaðan af eldri, allir herfærir menn —

þeir er taldir voru af ættkvísl Símeons, voru fimtíu og níu þúsundir og þrjú hundruð.

Synir Gaðs, niðjar þeirra eftir kynkvíslum þeirra, eftir ættum þeirra, samkvæmt nafnatölu, frá tvítugs aldri og þaðan af eldri, allir herfærir menn —

þeir er taldir voru af ættkvísl Gaðs, voru fjörutíu og fimm þúsundir sex hundruð og fimtíu.

Synir Júda, niðjar þeirra eftir kynkvíslum þeirra, eftir ættum þeirra, samkvæmt nafnatölu, frá tvítugs aldri og þaðan af eldri, allir herfærir menn —

þeir er taldir voru af ættkvísl Júda, voru sjötíu og fjórar þúsundir og sex hundruð.

Synir Íssakars, niðjar þeirra eftir kynkvíslum þeirra, eftir ættum þeirra, samkvæmt nafnatölu, frá tvítugs aldri og þaðan af eldri, allir herfærir menn —

þeir er taldir voru af ættkvísl Íssakars, voru fimtíu og fjórar þúsundir og fjögur hundruð.

Synir Sebúlons, niðjar þeirra eftir kynkvíslum þeirra, eftir ættum þeirra, samkvæmt nafnatölu, frá tvítugs aldri og þaðan af eldri, allir herfærir menn —

þeir er taldir voru af ættkvísl Sebúlons, voru fimtíu og sjö þúsundir og fjögur hundruð.

Synir Jósefs: synir Efraíms, niðjar þeirra eftir kynkvíslum þeirra, eftir ættum þeirra, samkvæmt nafnatölu, frá tvítugs aldri og þaðan af eldri, allir herfærir menn —

þeir er taldir voru af ættkvísl Efraíms, voru fjörutíu þúsundir og fimm hundruð.

Synir Manasse, niðjar þeirra eftir kynkvíslum þeirra, eftir ættum þeirra, samkvæmt nafnatölu, frá tvítugs aldri og þaðan af eldri, allir herfærir menn —

þeir er taldir voru af ættkvísl Manasse, voru þrjátíu og tvær þúsundir og tvö hundruð.

Synir Benjamíns, niðjar þeirra eftir kynkvíslum þeirra, eftir ættum þeirra, samkvæmt nafnatölu, frá tvítugs aldri og þaðan af eldri, allir herfærir menn —

þeir er taldir voru af ættkvísl Benjamíns, voru þrjátíu og fimm þúsundir og fjögur hundruð.

Synir Dans, niðjar þeirra eftir kynkvíslum þeirra, eftir ættum þeirra, samkvæmt nafnatölu, frá tvítugs aldri og þaðan af eldri, allir herfærir menn —

þeir er taldir voru af ættkvísl Dans, voru sextíu og tvær þúsundir og sjö hundruð.

Synir Assers, niðjar þeirra eftir kynkvíslum þeirra, eftir ættum þeirra, samkvæmt nafnatölu, frá tvítugs aldri og þaðan af eldri, allir herfærir menn —

þeir er taldir voru af ættkvísl Assers, voru fjörutíu og eitt þúsund og fimm hundruð.

Synir Naftalí, niðjar þeirra eftir kynkvíslum þeirra, eftir ættum þeirra, samkvæmt nafnatölu, frá tvítugs aldri og þaðan af eldri, allir herfærir menn —

þeir er taldir voru af ættkvísl Naftalí, voru fimtíu og þrjár þúsundir og fjögur hundruð.

Þessir eru þeir, er taldir voru, sem þeir Móse, Aron og höfðingjar Ísraels töldu; voru þeir tólf, einn fyrir hverja ættkvísl hans.

Og allir þeir af Ísraelsmönnum, er taldir voru eftir ættum þeirra, frá tvítugs aldri og þaðan af eldri, allir herfærir menn, voru —

allir þeir er taldir voru, voru sex hundruð og þrjár þúsundir fimm hundruð og fimtíu.

En Levítarnir, eftir ættbálki sínum, voru eigi taldir meðal þeirra.

Og Drottinn talaði við Móse og sagði:

Þú skalt þó eigi telja ættkvísl Leví og eigi taka manntal þeirra meðal Ísraelsmanna.

En þú skalt setja Levítana yfir sáttmálsbúðina og yfir öll áhöld hennar og yfir alt, sem til hennar heyrir; þeir skulu bera búðina og öll áhöld hennar, og þeir skulu þjóna að henni og þeir skulu tjalda umhverfis búðina.

Og er búðin tekur sig upp, skulu Levítarnir taka hana niður, og þegar reisa skal búðina, skulu Levítarnir setja hana upp; en komi nokkur annar þar nærri, skal hann líflátinn verða.

Og Ísraelsmenn skulu tjalda hver á sínum stað í herbúðunum og hver hjá sínu merki, eftir hersveitum sínum.

En Levítarnir skulu tjalda umhverfis sáttmálsbúðina, að reiði komi eigi yfir söfnuð Ísraelsmanna, og Levítarnir skulu annast sáttmálsbúðina.

Og Ísraelsmenn gjörðu svo, þeir gjörðu í alla staði svo sem Drottinn hafði boðið Móse.