Fjórða Mósebók 11Krans-útgáfa

Gamla testamentiðLögmálið

Fjórða Mósebók 11

Og lýðurinn möglaði hátt gegn Drottni yfir böli sínu; og er Drottinn heyrði það, upptendraðist reiði hans. Kviknaði þá eldur frá Drottni meðal þeirra og eyddi yzta hluta herbúðanna.

Þá kveinaði lýðurinn fyrir Móse, og Móse bað til Drottins; tók þá eldurinn að slokna.

Var staður þessi kallaður Tabera, því að eldur Drottins kviknaði meðal þeirra.

Og skríllinn, sem með þeim var, fyllist lysting; tóku Ísraelsmenn þá og aftur að gráta og sögðu: Hver gefur oss nú kjöt að eta?

Víst munum vér eftir fiskinum, sem vér átum á Egiptalandi fyrir ekki neitt, eftir agúrkunum, melónunum, graslauknum, blómlauknum og hnapplauknum.

En nú örmagnast sála vor; hér er alls ekki neitt, vér sjáum ekkert nema þetta manna.

En manna var eins og kóríanderfræ og að útliti sem bedolak-harpeis.

Fólkið fór á við og dreif og tíndi og þeir möluðu það í handkvörnum eða steyttu það í mortéli, suðu því næst í pottum og gjörðu úr því kökur; en það var á bragðið eins og olíukökur.

Og þegar dögg féll á nóttum yfir herbúðirnar, þá féll og manna yfir þær.

Og Móse heyrði fólkið gráta, hvern með sitt skuldalið fyrir dyrum tjalds síns; upptendraðist þá reiði Drottins ákaflega, og féll Móse það illa.

Og Móse sagði við Drottin: Hví gjörir þú svo illa við þjón þinn, og hví hefi eg eigi fundið náð í augum þínum, að þú skulir leggja á mig byrði alls þessa fólks?

Hefi eg gengið þungaður að öllu þessu fólki, hefi eg borið það í heiminn, að þú skulir segja við mig: Ber það í faðmi þér, eins og barnfóstri ber brjóstmylking, inn í landið, sem þú sórst feðrum þeirra?

Hvaðan á eg að fá kjöt, til að gefa öllu þessu fólki? Því að þeir gráta fyrir mér og segja: Gef oss kjöt að eta!

Eg rís ekki einn undir öllu þessu fólki, því að það er mér of þungt.

Og ef þú ætlar að fara svona með mig, þá deyð mig heldur hreinlega, ef eg hefi fundið náð í augum þínum, svo að eg þurfi eigi að horfa upp á ógæfu mína.

Þá sagði Drottinn við Móse: Safna þú mér sjötíu mönnum af öldungum Ísraels, sem þú veizt að eru öldungar meðal fólksins og tilsjónarmenn þess, og skalt þú fara með þá að samfundatjaldinu, svo að þeir skipi sér þar ásamt þér.

Og eg vil stíga niður og tala þar við þig, og eg vil taka af anda þeim, sem yfir þér er, og leggja yfir þá, svo að þeir beri með þér byrði fólksins og þú berir hana ekki einn.

Og til fólksins skalt þú mæla: Helgið yður til morguns; þá skuluð þér fá kjöt að eta; því að þér hafið kveinað í eyru Drottins og sagt: Hver gefur oss kjöt að eta? því að vel leið oss í Egiptalandi. Og Drottinn mun gefa yður kjöt að eta.

Þér skuluð ekki eta það einn dag, og ekki tvo daga, og ekki fimm daga, og ekki tíu daga, og ekki tuttugu daga,

heldur heilan mánuð, þangað til það gengur út af nösum yðar og yður býður við því, af því að þér hafið hafnað Drottinn, sem meðal yðar er, og kveinað fyrir augliti hans og sagt: Hví fórum vér burt úr Egiptalandi?

Þá sagði Móse: Fólkið, sem eg er með, er sex hundruð þúsund fótgangandi manna, og þú segir: Eg vil gefa þeim kjöt að eta í heilan mánuð.

Á þá að slátra sauðum og nautum handa þeim, svo að þeim nægi? eða á að safna saman öllum fiskum í sjónum handa þeim, svo að þeim nægi?

Og Drottinn sagði við Móse: Er þá hönd Drottins stutt orðin? Nú skalt þú sjá, hvort orð mín koma fram við þig eða ekki.

Og Móse gekk burt og bar fólkinu orð Drottins og safnaði saman sjötíu manns af öldungum fólksins og lét þá skipa sér umhverfis tjaldið.

Og Drottinn sté niður í skýinu og talaði við hann; og hann tók af anda þeim, sem yfir honum var, og lagði hann yfir öldungana sjötíu. Og er andinn kom yfir þá, spáðu þeir, og aldrei síðan.

Og tveir menn höfðu orðið eftir í herbúðunum; hét annar Eldad, en hinn Medad, og andinn kom yfir þá; voru þeir meðal hinna skráðu, en höfðu ekki gengið út að tjaldinu; og þeir spáðu í herbúðunum.

Þá kom ungmenni hlaupandi og sagði Móse og mælti: Eldad og Medad eru að spá í herbúðunum.

Og Jósúa Núnsson, er þjónað hafði Móse frá æsku, svaraði og sagði: Móse, herra minn, bannaðu þeim það!

En Móse sagði við hann: Tekur þú upp þykkjuna fyrir mig? Eg vildi að allur lýður Drottins væri spámenn, svo að Drottinn legði anda sinn yfir þá.

Og Móse gekk aftur í herbúðirnar, hann og öldungar Ísraels.

Þá tók að blása vindur frá Drottni, og flutti hann lynghæns frá sjónum og varp þeim yfir herbúðirnar, svo sem dagleið í allar áttir, hringinn í kring um herbúðirnar, og um tvær álnir frá jörðu.

Og fólkið fór til allan þann dag og alla nóttina og allan daginn eftir og safnaði lynghænsum. Sá, sem minstu safnaði, safnaði tíu kómer; og þeir breiddu þau alt í kring um herbúðirnar.

Meðan kjötið var enn milli tanna þeirra, áður en það var upp unnið, upptendraðist reiði Drottins gegn fólkinu, og Drottins lét þar verða mjög mikinn mannfelli meðal fólksins.

Og staður þessi var nefndur Kibrót-hattava, því að þar grófu þeir fólkið, er fylst hafði græðgi.

Frá Kibrót-hattava hélt lýðurinn til Hazerót, og þeir staðnæmdust í Hazerót.