Gamla testamentiðLögmálið
Og Drottinn talaði við Móse og sagði:
Gjör þér tvo lúðra af silfri; með drifnu smíði skalt þú gjöra þá; skalt þú hafa þá til að kalla saman söfnuðinn og þá er herinn tekur sig upp.
Og þegar blásið er í þá báða, skal allur söfnuðurinn koma saman hjá þér, fyrir dyrum samfundatjaldsins.
En sé eigi blásið nema í annan þeirra, þá skulu foringjarnir koma til þín, höfuðsmenn Ísraels þúsunda.
Og þegar þér blásið hvelt, skal herinn, sem tjaldar að austanverðu, leggja upp.
Og þegar þér blásið hvelt í annað sinn, skal herinn, sem tjaldar að sunnanverðu, leggja upp; skal blása hvelt, þegar leggja skal upp.
En þegar safna á saman söfnuðinum, skulu þér blása, en þó eigi hvelt.
Og synir Arons, prestarnir, skulu blása í lúðrana, og skal það vera ævarandi lögmál fyrir yður frá kyni til kyns.
Og þá er þér farið í stríð í landi yðar móti óvinum yðar, sem á yður herja, skuluð þér blása hvelt í lúðrana, og mun yðar minst verða af Drottni, Guði yðar, og þér frelsaðir verða frá fjandmönnum yðar.
Á gleðidögum yðar, á löghátíðum yðar og í mánaðarbyrjun skuluð þér og blása í lúðrana við brennifórnir yðar og heillafórnir, og skulu þeir vera yður til minningar frammi fyrir Guði yðar; eg er Drottinn, Guð yðar.
Á öðru ári, í öðrum mánuðinum, á tuttugasta degi mánaðarins hófst skýið upp frá sáttmálsbúðinni.
Tóku Ísraelsmenn sig þá upp eftir röð úr Sínaí-eyðimörk, og skýið nam staðar í Paran-eyðimörk.
Þannig lögðu þeir upp í fyrsta skiftið að boði Drottins fyrir Móse.
Tók merki herbúða Júda sona sig fyrst upp eftir hersveitum þeirra; en fyrir her hans var Nahson Ammínadabsson.
Og fyrir her ættkvíslar Íssakars sona var Netanel Zúarsson.
Og fyrir her ættkvíslar Sebúlons sona var Elíab Helónsson.
Og er búðin var ofan tekin, tóku Gersons synir og Merarí synir sig upp; báru þeir búðina.
Og merki Rúbens herbúða tók sig upp eftir hersveitum þeirra; en fyrir her hans var Elízúr Sedeúrsson.
Og fyrir her ættkvíslar Símeons sona var Selúmíel Zúrísaddaíson.
Og fyrir her ættkvíslar Gaðs sona var Eljasaf Degúelsson.
Þá tóku Kahatítar sig upp; báru þeir hina helgu dóma; og hinir settu upp búðina, þangað til þeir komu.
Og merki herbúða Efraíms sona tók sig upp eftir hersveitum þeirra; en fyrir her hans var Elísama Ammíhúdsson.
Og fyrir her ættkvíslar Manasse sona var Gamlíel Pedazúrsson.
Og fyrir her ættkvíslar Benjamíns sona var Abídan Gídeóniíson.
Og merki herbúða Dans sona tók sig upp eftir hersveitum þeirra; fór það síðast allra herbúðanna; en fyrir her hans var Akíeser Ammísaddaíson.
Og fyrir her ættkvíslar Assers sona var Pagíel Okransson.
Og fyrir her ættkvíslar Naftalísona var Akíra Enansson.
Þessi var röðin á Ísraelsmönnum eftir hersveitum þeirra, er þeir lögðu upp.
Þá sagði Móse við Hóbab Regúelsson Midíaníta, tengdaföður Móse: Vér leggjum nú upp áleiðis til þess staðar, sem Drottinn hefir sagt um: Eg mun gefa yður hann; kom þú með oss og munum vér gjöra vel við þig, því að Drottinn hefir heitið Ísrael góðu.
Og hann sagði við hann: Eigi vil eg fara; heldur mun eg halda heim í land mitt og til ættfólks míns.
En hann sagði: Eigi mátt þú yfirgefa oss, af því að þú veizt, hvar vér getum tjaldað í eyðimörkinni, og skalt þú vera oss sem auga.
Og farir þú með oss og oss hlotnast þau gæði, sem Drottinn vill veita oss, þá munum vér gjöra vel við þig.
Héldu þeir nú frá fjalli Drottins þrjár dagleiðir, en sáttmálsörk Drottins fór á undan þeim þrjár dagleiðir, til þess að velja hvíldarstað handa þeim.
Og ský Drottins var yfir þeim á daginn, er þeir tóku sig upp úr herbúðunum.
En er örkin tók sig upp, sagði Móse: Rís þú upp, Drottinn, svo að óvinir þínir tvístrist og fjendur þínir flýi fyrir þér.
Og er hún nam staðar, sagði hann: Hverf þú aftur, Drottinn, til hinna tíu þúsund þúsunda Ísraels.