Fimmta Mósebók 31Krans-útgáfa

Gamla testamentiðLögmálið

Fimmta Mósebók 31

af Og Móse fór og flutti öllum Ísrael þessi orð

og sagði við þá: Eg er nú hundrað og tuttugu ára gamall; eg get ekki lengur gengið út og inn, og Drottinn hefir sagt við mig: Þú skalt ekki komast yfir hana Jórdan.

Drottinn, Guð þinn, fer sjálfur yfir um fyrir þér; hann mun sjálfur eyða þessum þjóðum fyrir þér, svo að þú getir tekið lönd þeirra til eignar. Jósúa skal fara yfir um fyrir þér, eins og Drottinn hefir sagt.

Og Drottinn mun fara með þær eins og hann fór með Síhon og Óg, konunga Amóríta, og land þeirra, sem hann eyddi.

Og Drottinn mun gefa þær yður á vakt, og þér skuluð fara með þær nákvæmlega eftir skipun þeirri, er eg hefi fyrir yður lagt.

Verið hughraustir og öruggir, óttist eigi og hræðist þá eigi, því að Drottinn, Guð þinn, fer sjálfur með þér; hann mun ekki sleppa af þér hendinni né yfirgefa þig.

Móse kallaði þá á Jósúa og sagði við hann í augsýn alls Ísraels: Vertu hughraustur og öruggur, því að þú munt leiða þetta fólk inn í landið, sem Drottinn sór feðrum þeirra að gefa þeim, og þú munt skifta því milli þeirra.

Og Drottinn mun sjálfur fara fyrir þér; hann mun vera með þér, hann mun eigi sleppa af þér hendinni né yfirgefa þig; óttast þú eigi og lát eigi hugfallast.

Og Móse ritaði lögmál þetta og fékk það í hendur prestunum, sonum Leví, er bera sáttmálsörk Drottins, og öllum öldungum Ísraels.

Og Móse lagði svo fyrir þá: Sjöunda hvert ár, umliðunarárið, á laufskálahátíðinni,

þegar allur Ísrael kemur til að birtast fyrir augliti Drottins, Guðs þíns, á þeim stað, sem hann velur, þá skalt þú lesa lögmál þetta fyrir öllum Ísrael í heyranda hljóði.

Safna þú saman lýðnum, bæði körlum, konum og börnum, og útlendingum þeim, sem hjá þér eru innan borgarhliða þinna, til þess að þeir hlýði á og til þess að þeir læri að óttast Drottin, Guð yðar, og gæti þess að halda öll Orð þessa lögmáls.

Og börn þeirra, þau er enn ekki þekkja það, Skulu hlýða á og læra að óttast Drottin, Guð yðar, alla þá daga, sem Þér lífið í því landi, er þér haldið nú inn í yfir Jórdan, til þess að taka það til eignar.

Og Drottinn sagði við Móse: Sjá, andlátstími þinn nálgast; kalla þú á Jósúa og gangið inn í samfundatjaldið, svo að eg megi leggja fyrir hann skipanir mínar. Þá fóru þeir Móse og Jósúa og gengu inn í samfundatjaldið.

En Drottinn birtist í tjaldinu í skýstólpa, og skýstólpinn nam staðar við tjalddyrnar.

Og Drottinn sagði við Móse: Sjá, þú munt nú leggjast til hvíldar hjá feðrum þínum; þá mun lýður þessi rísa upp og taka fram hjá með útlendum guðum lands þess, er hann heldur nú inn í, en yfirgefa mig og rjúfa sáttmála minn, þann er eg við hann gjörði.

Þá mun reiði mín upptendrast gegn þeim, og eg mun yfirgefa þá og byrgja auglit mitt fyrir þeim, og lýðurinn mun eyddur verða og margs konar böl og þrengingar yfir hann koma. Þá mun hann segja: Vissulega er þetta böl yfir mig komið, af því að Guð minn er ekki hjá mér.

En á þeim degi mun eg byrgja auglit mitt vandlega vegna allrar þeirrar ilsku, sem hann hefir í frammi haft, er hann sneri sér til annara guða.

En skrifið nú upp kvæði þetta og kenn það Ísraelsmönnum, legg þeim það í munn, til þess að kvæði þetta megi verða mér til vitnisburðar gegn Ísraelsmönnum.

Því að eg mun leiða þá inn í landið, sem eg sór feðrum þeirra, sem flýtur í mjólk og hunangi, og þeir munu eta og verða saddir og feitir, og snúa sér til annara guða og dýrka þá; en mér munu þeir hafna og rjúfa sáttmála minn.

Og þegar margs konar böl og þrengingar koma yfir hann, þá mun kvæði þetta bera vitni gegn honum, því að það mun eigi gleymast í munni niðja hans; því að eg veit, hvað þeim býr innan brjósts nú þegar, áður en eg hefi leitt þá inn í landið, sem eg sór feðrum þeirra.

Og Móse skrifaði upp kvæði þetta þann hinn sama dag og kendi það Ísraelsmönnum.

Og hann lagði skipanir sínar fyrir Jósúa Núnsson og sagði: Vertu hughraustur og öruggur, því að þú munt leiða Ísraelsmenn inn í landið, sem eg sór þeim, og eg mun vera með þér.

Þegar Móse hafði algjörlega lokið því að rita orð þessa lögmáls í bók,

þá bauð Móse Levítunum, sem bera sáttmálsörk Drottins, og sagði:

Takið lögmálsbók þessa og leggið hana við hliðina á sáttmálsörk Drottins, Guðs yðar, svo að hún geymist þar til vitnisburðar gegn þér.

Því að eg þekki mótþróa þinn og þrjózku; sjá, meðan eg enn er lifandi hjá yður í dag, hafið þér óhlýðnast Drottinn, og hvað mun þá síðar verða að mér dauðum!

Safnið saman til mín öllum öldungum ættkvísla yðar og tilsjónarmönnum yðar, að eg megi flytja þeim þessi orð í heyranda hljóði og kveðja himin og jörð til vitnis móti þeim.

Því að eg veit, að eftir dauða minn munuð þér gjörsamlega fara afleiðis og víkja af þeim vegi, sem eg hefi boðið yður, og ógæfan mun koma yfir yður á komandi tímum, er þér gjörið það sem ilt er í augum Drottins, svo að þér egnið hann til reiði með athæfi yðar.

Móse flutti þá öllum söfnuði Ísraels orð þessa kvæðis, unz því var lokið.