Gamla testamentiðLögmálið
Þegar Drottinn, Guð þinn, upprætir þær þjóðir, hverra land Drottins, Guðs þinn, gefur þér, og er þú hefir lagt þær undir þig og ert Seztur að í borgum þeirra og húsum,
þá skalt þú skilja frá þrjár borgir í landi þínu, því er Drottinn, Guð þinn, gefur þér til eignar.
Þú Skalt leggja veg að þeim og skifta gjörvöllu landi þínu, því er Drottinn, Guð þinn, lætur þig eignast, í þrjá hluti, og skal það vera til þess, að Þangað megi flýja hver sá, er mann vegur.
En svo skal vera um Veganda þann, er þangað flýr, til þess að forða lífi sínu: Ef maður Árepur náunga sinn óviljandi og hefir eigi verið óvinur hans áður,
svo sem þegar maður fer með náunga sínum í skóg að fella tré, og hann eiðir upp öxina til að höggva tréð, en öxin brýtur af skaftinu og lendir af náunga hans, svo að hann fær bana af — sá maður má flýja í einhverja af borgum þessum og forða svo lífi sínu,
til þess að hefndarmaðurinn elti ekki vegandann meðan móðurinn er á honum og nái honum, af því að vegurinn er langur, og drepi hann, þótt hann sé ekki dauðasekur, með því að hann var ekki óvinur hans áður.
Fyrir því býð eg þér og segi: þú skalt skilja þrjár borgir frá.
Og ef Drottinn, Guð þinn, færir út landamerki þín, eins og hann hefir svarið feðrum þínum, og hann gefur þér gjörvalt landið, sem hann hét að gefa feðrum þínum,
svo framarlega sem þú gætir þess að halda allar þessar skipanir, sem eg legg fyrir þig í dag, með því að elska Drottin, Guð þinn, og ganga á hans vegum alla daga, þá skalt þú enn bæta þrem borgum við þessar þrjár,
til þess að saklausu blóði verði eigi úthelt fa þínu, því er Drottinn, Guð þinn, gefur þér til eignar, og blóðsök í eigi á þig.
En ef maður hatast við náunga sinn og situr um hann, ræðst á hann og lýstur hann til bana og flýr síðan í einhverja af borgum Þessum,
þá skulu öldungar þeirrar borgar, er hann á heima í, senda lngað og sækja hann og selja í hendur hefndarmanni til lífláts.
Þú skalt ekki líta hann vægðarauga, heldur útrýma saklausu blóði úr Ísrael, svo að þér vegni vel.
Þú skalt eigi færa úr stað landamerki náunga þíns, þau er forfeðurnir hafa sett, á arfleifð þinni, er þú munt eignast í landinu, sem Drottinn, Guð þinn, gefur þér til eignar.
Eigi skal eitt vitni koma fram gegn manni, þá er um einhvern glæp eða einhverja synd er að ræða — hvaða synd sem það nú er, sem hann hefir drýgt; því að eins skal framburður gildur vera, að tveir eða þrír vottar beri.
Nú rís falsvottur gegn einhverjum og ber á hann lagabrot,
og skulu þá báðir þeir, er kærumálið eiga saman, ganga fram fyrir Drottni, fyrir prestana og dómarana, sem þá eru í þann tíma,
og dómararnir skulu rannsaka það rækilega, og ef þá reynist svo, að votturinn er ljúgvottur, að hann hefir borið lygar á bróður sinn,
þá skuluð þér gjöra svo við hann sem hann hafði hugsað að gjöra við bróður sinn, og þannig skalt þú útrýma hinu illa burt frá þér.
Og hinir munu heyra það og skelfast og eigi framar hafast að slíkt ódæði þín á meðal.
Eigi skalt þú líta slíkt vægðarauga: líf fyrir líf, auga fyrir auga, tönn fyrir tönn, hönd fyrir hönd, fót fyrir fót.