Gamla testamentiðLögmálið
Eigi skulu Levíta-prestarnir, öll kynkvísl Leví, fá hlut og óðal með Ísrael; á eldfórnum Drottins og erfðahluta hans skulu þeir lifa.
En óðal skulu þeir eigi fá meðal bræðra sinna; Drottinn er óðal þeirra, eins og hann hefir heitið þeim.
Og þessi skulu vera réttindi prestanna af hálfu lýðsins, af hálfu þeirra manna, er fórna sláturfórn, hvort heldur er nauti eða sauð: presti skal gefa bóginn, báða kjammana og vinstrina.
Frumgróðann af korni þínu, aldinlegi þínum og olíu þinni og fyrsta ullina, sem þú klippir af sauðfé þínu, skalt þú gefa honum.
Því að Drottinn, Guð þinn, hefir útvalið hann af öllum kynkvíslum þínum, til þess að hann og synir hans gegni þjónustu Í nafni Drottins alla daga.
Nú kemur Levíti úr einhverri af borgum þínum í öllum Ísrael, þar er hann dvelur sem útlendingur — og hann má koma eftir vild sinni — til þess staðar, er Drottinn vetur,
og má hann þá gegna þjónustu í nafni Drottins, Guðs síns, eins og allir bræður hans, Levítarnir, er standa þar frammi fyrir Drottni.
Þeir skulu fá jafnan hlut til viðurværis, án tillits til þess, er hann fær fyrir selda séreign sína.
Þegar þú kemur inn í landið, sem Drottinn, Guð þinn, gefur þér, þá skalt þú ekki taka upp svívirðingar þessara þjóða.
Eigi skal nokkur finnast hjá þér, sá er láti son sinn eða dóttur ganga gegn um eldinn, eða sá er fari með galdur eða spár eða fjölkyngi, eða töframaður,
eða gjörningamaður eða særingamaður eða spásagnamaður, eða sá er leiti frétta af framliðnum.
Því að hver sá, er slíkt gjörir, er Drottinn andslyggilegur, og fyrir slíkar svívirðingar rekur Drottinn, Guð þinn, þá burt undan þér.
Þú skalt vera grandvar gagnvart Drottni, Guði þínum.
Því að þessar þjóðir, er þú rekur nú burt, hlýða á spásagnamenn og galdramenn, en þér hefir Drottinn, Guð þinn, eigi leyft slíkt.
Spámann mun Drottinn, Guð þinn, upp vekja meðal þín, af bræðrum þínum, slíkan sem eg er; á hann skuluð þér hlýða.
SMun þannig fyllilega rætast það, er þú baðst Drottinn, Guð þinn, um hjá Hóreb, daginn sem þér Voruð þar saman komnir, er þú sagðir: Eigi vildi eg lengur þurfa að heyra raust Drottins, Guðs míns, né oftar að sjá þennan mikla eld, svo að eg deyi ekki.
Þá sagði Drottinn við mig: Vel er það mælt, sem þeir segja.
TSEg vil upp vekja þeim spámann meðal bræðra þeirra, slíkan Sem þú ert; og eg mun leggja honum mín orð í munn og hann skal Mæla til þeirra alt það, er eg býð honum.
Og hvern þann, er eigi Vill hlýða á orð mín, þau er hann mun flytja í mínu nafni, hann mun eg krefja reikningsskapar.
En sá spámaður, sem dirfist að tala í mínu nafni það, er eg hefi eigi boðið honum að tala, og sá sem talar í nafni annara guða — sá spámaður skal deyja.
Og ef þú segir í hjarta þínu: Hvernig fáum vér þekt úr þau orð, er Drottinn hefir ekki talað?
þá vit, að þegar spámaður talar í nafni Drottins og það rætist eigi né kemur fram, þá eru það orð, sem Drottinn hefir eigi talað; af Ofdirfsku sinni hefir spámaðurinn talað það; þú þarft ekki að hræðast hann.! Um manndráp.