Fimmta Mósebók 11Krans-útgáfa

Gamla testamentiðLögmálið

Fimmta Mósebók 11

Fyrir því skalt þú elska Drottin, Guð þinn, og varðveita í oðorð hans, lög, ákvæði og skipanir alla daga;

og viðurkennið í dag — því að ekki á eg orðastað við börn yðar, sem eigi hafa þekt það né séð —, viðurkennið ögun Drottins, Guðs yðar, mikilleik hans, hina sterku hönd hans og útréttan armlegg hans,

tákn hans og verk, sem hann gjörði í Egiptalandi á Faraó, Egiptalands konungi, og öllu landi hans,

hversu hann fór með herlið Egipta, hesta þeirra og vagna, hversu hann lét vötn Rauðahafs flæða yfir þá, er þeir veittu yður eftirför, og tortímdi þeim fram á þennan dag,

og hversu hann gjörði til yðar í eyðimörkinni alt til þess er þér komuð hingað,

og hversu hann fór með Datan og Abíram, sonu Elíabs Rúbenssonar, hversu jörðin lauk upp munni sínum og svalg þá mitt á meðal allra Ísraelsmanna, ásamt fjölskyldum þeirra og tjöldum og öllum lifandi skepnum, sem voru Í fylgd með þeim.

Því að augu yðar hafa séð öll hin miklu verk, sem Drottinn hefir gjört.

Fyrir því skuluð þér varðveita allar þær skipanir, sem eg legg fyrir þig í dag, til þess að þér verðið sterkir, komist inn í og fáið til eignar land það, er þér haldið nú yfir tl, tl þess að taka það til eignar,

og til þess að þér megið lifa langa æfi í landinu, sem Drottinn sór feðrum yðar að gefa þeim og niðjum þeirra, — landi, sem flýtur í mjólk og hunangi.

Því að landið, sem þú heldur nú inn í, til þess að taka það til eignar, það er ekki eins og Egiptaland, þaðan sem þér fóruð, þar sem þú sáðir sæði þínu og vökvaðir landið með fæti þínum eins og kálgarð,

heldur er land það, er þér haldið nú yfir til, til þess að taka það tl eignar, fjallaland og dala, og drekkur vatn af himnum þegar rignir,

land, sem Drottinn, Guð þinn, annast; stöðuglega hvíla augu Drottins, Guðs þíns, yfir því frá ársbyrjun til ársloka.

Ef þér hlýðið skipunum mínum trúlega, þeim er eg legg fyrir yður í dag: að elska Drottin, Guð yðar, og þjóna honum af öllu hjarta yðar og af allri sálu yðar,

þá mun eg gefa landi yðar regn á réttum tíma, haustregn og vorregn, svo að þú megir hirða korn þitt, aldinlög þinn og olíu þína.

Þá mun eg og láta gras spretta í högum þínum handa skepnum þínum, svo að þú megir eta og saddur verða.

Gætið yðar, að hjarta yðar láti ekki tælast og þér víkið ekki af leið og dýrkið aðra guði og fallið fram fyrir þeim;

ella mun reiði Drottins upptendrast í gegn yður, og hann mun loka himninum, svo að eigi komi regn og jörðin gefi eigi ávöxt sinn, og þér munuð skjótlega eyðast úr landinu góða, sem Drottinn gefur yður.

Fyrir því skuluð þér leggja þessi orð mín á hjarta yðar og huga, og þér skuluð binda þau til merkis á hönd yðar og hafa þau sem minningarbönd á milli augna yðar.

Og þér skuluð kenna þau börnum yðar, með því að tala um þau, þegar þú ert heima og þegar þú ert á ferðalagi, þegar þú legst til hvíldar og þegar þú fer á fætur.

Og þú skalt skrifa þau á dyrustafi húss þíns og á borgarhlið þín,

til þess að þér og börn yðar megið lifa í landinu, sem Drottinn sór feðrum yðar að gefa þeim, svo lengi sem himinn er yfir jörðu.

Því að ef þér varðveitið kostgæfilega allar þessar skipanir, sem eg legg fyrir yður að halda: að elska Drottin, Guð yðar, að ganga ávalt á hans Vegum og halda yður fast við hann,

þá mun Drottinn stökkva burt undan yður öllum þessum þjóðum, og þér munuð leggja undir yður þjóðir, sem eru stærri og voldugri en þér.

Hver sá staður, er þér Stigið fæti á, skal verða yðar eign, frá eyðimörkinni alt til Líbanon, frá fljótinu, Eyfratfljótinu, alt til vesturhafsins skal land yðar ná.

Enginn mun standast fyrir yður; ótta við yður og skelfingu mun Drottinn, Guð yðar, láta koma yfir hvert það land, er þér stigið fæti á, eins og hann hefir heitið yður.

Sjá, eg legg fyrir yður í dag blessun og bölvun:

blessunina, ef þér hlýðið skipunum Drottins, Guðs yðar, sem eg býð yður í dag,

en bölvunina, ef þér hlýðið ekki skipunum Drottins, Guðs yðar, og víkið af þeim vegi, sem eg býð yður í dag, til þess að elta aðra guði, sem þér eigi hafið þekt.

Og þegar Drottinn, Guð þinn, leiðir þig inn í landið, sem þú heldur nú inn í, til þess að taka það til eignar, þá skalt þú leggja blessunina á Garísim-fjall og bölvunina á Ebal-fjall.

En þau eru hinumegin Jórdanar, vestanvert við sólarlagsveginn, í landi Kanaanítanna, þeirra er búa á sléttlendinu, gegnt Gilgal, hjá Móre-lundi.

Því að þér farið nú yfir Jórdan, til þess að komast inn í og taka til eignar landið, sem Drottinn, Guð yðar, gefur yður; og Þér munuð fá það til eignar og setjast að í því.

Gætið þess þá að halda öll þau lög og ákvæði, sem eg legg fyrir yður í dag.