Fimmta Mósebók 10Krans-útgáfa

Gamla testamentiðLögmálið

Fimmta Mósebók 10

Í það sama sinn sagði Drottinn við mig: Högg þér tvær töflur af steini, eins og hinar fyrri voru, og kom til mín upp á fjallið; þú skalt og gjöra þér örk af tré.

Eg ætla að rita á töflurnar þau orð, sem stóðu á hinum fyrri töflunum, er þú brauzt í sundur, og skalt þú síðan leggja þær í örkina.

Eg gjörði þá örk af akasíuviði og hjó tvær töflur af steini, eins og hinar fyrri, gekk því næst upp á fjallið með báðar töflurnar í hendi mér.

Þá ritaði hann á töflurnar, með sama letri og áður, tíu boðorðin, þau er Drottinn hafði talað bl yðar á fjallinu út úr eldinum daginn sem þér voruð þar saman komnir; síðan fékk Drottinn mér þær.

Þá sneri eg á leið og gekk ofan af fjallinu og lagði töflurnar í örkina, er eg hafði gjört, og þar voru þær geymdar, eins og Drottinn hafði fyrir mig lagt.

Og Ísraelsmenn fóru frá Beerót-Bene-Jaakan til Mósera. Þar dó Aron og var jarðaður þar, og Eleasar sonur hans varð prestur í hans stað.

Þaðan fóru þeir til Gúdgóda, og frá Gúdgóda til Jotbata, þar sem gnægð er vatnslækja.

Þá skildi Drottinn ættkvísl Leví frá til þess að bera sáttmálsörk Drottins, til þess að standa frammi fyrir Drottni og þjóna honum, og til að blessa í hans nafni, og er svo enn í dag.

Fyrir því fékk Leví eigi hlut né óðal með bræðrum sínum; Drottinn er óðal hans, eins og Drottinn, Guð þinn, hefir heitið honum.

En eg dvaldi á fjallinu fjörutíu daga og fjörutíu nætur, eins og hið fyrra sinnið, og Drottinn bænheyrði mig einnig í þetta skiftið: Drottinn vildi ekki tortíma þér.

Og Drottinn sagði við mig: Tak þig upp og hald af stað, til þess að þú megir fara fyrir lýðnum, er hann leggur upp, svo að þeir komist inn í og fái til eignar land það, sem eg sór feðrum þeirra að gefa þeim. Áminning um að halda boð Drottins trúlega.

Og nú, Ísrael, hvers krefst Drottinn, Guð þinn, af þér nema þess, að þú óttist Drottin, Guð þinn, og gangir því ávalt á hans vegum, og að þú elskir hann og að þú þjónir Drottni, Guði þínum, af öllu hjarta þínu og af allri sálu þinni,

með því að halda skipanir Drottins og lög hans, þau er eg legg fyrir þig í dag, og þér er fyrir beztu?

Sjá, Drottni, Guði þínum, heyrir himininn og himnanna himnar, jörðin og alt, sem á henni er;

og þó hneigðist Drottinn að feðrum þínum einum, Svo að hann elskaði þá, og hann útvaldi yður, niðja þeirra, eftir þá af öllum þjóðum, og er svo enn í dag.

Umskerið því yfirhúð hjarta yðvars, og verið ekki lengur harðsvíraðir.

Því að Drottinn, Guð yðar, hann er Guð guðanna og Drottinn drotnanna, hinn mikli, voldugi og Ptalegi Guð, sem eigi gjörir sér mannamun og þiggur eigi mútur.

Hann rekur réttar munaðarleysingjans og ekkjunnar og elskar útlendinginn, svo að hann gefur honum fæði og klæði.

Elskið því útlendinginn, því að þér voruð sjálfir útlendingar í Egiptalandi.

Drottinn, Guð þinn, skalt þú óttast, hann skalt þú dýrka, við hann skalt þú halda þér fast og við nafn hans skalt þú sverja.

Hann er þinn lofstír og hann er þinn Guð, sá er gjört hefir fyrir þig þessa miklu og ótlalegu hluti, sem augu þín hafa séð.

sjötíu að tölu voru feður þínir, þá er þeir fóru til Egiptalands, en nú hefir Drottinn, Guð þinn, gjört þig að fjölda til sem stjörnur himins.