Esterarbók 3Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Esterarbók 3

Eftir þessa atburði veitti Ahasverus konungur Haman Hamdatasyni Agagíta mikinn frama og hóf hann til vegs og setti stól hans ofar öllum stólum höfðingja þeirra, er með honum voru.

Og allir þjónar konungs, þeir er voru í litiði konungs, féllu á kné og lutu Haman, því að svo hafði konungur um hann boðið. En Mordekai féll hvorki á kné né laut honum.

Þá sögðu þjónar konungs, þeir er voru í konungshliði, við Mordekai: Hví brýtur þú boð konungs?

Höfðu þeir daglega orð á þessu við hann, en hann hlýddi þeim ekki; sögðu þeir þá Haman frá því, til þess að sjá, hvort orð Mordekai yrðu tekin gild, því að hann hafði sagt þeim, að hann væri Júði.

Og er Haman sá, að Mordekai féll eigi á kné né laut honum, þá fyllist Haman reiði.

En honum þótti einskis vert að leggja hendur á Mordekaí einan, því að menn höfðu sagt honum frá, hverrar þjóðar Mordekaí var, og leitaðist Haman því við að gjöreyða öllum Júðum, sem voru í öllu ríki Ahasverusar, samlöndum Mordekaí.

í fýrsta mánuðinum — það er mánuðurinn nísan á tólfta ríkisári Ahasverusar konungs var varpað púr, það er hlutkesti, í viðurvist Hamans, frá einum degi til annars og frá einum mánuði til annars, og féll hlutkestið á þrettánda dag hins tólfta mánaðar — það er mánuðurinn adar.

Og Hafnan sagði við Ahasverus konung: Ein er súþjóð, sem lifir dreifð og fráskilin meðal þjóðanna í öllum skattlöndum ríkis þíns; og lög þeirra eru frábrugðin lögum allra annara þjóða, og lög konungs hakla þeir ekki, og hlýðir eigi að konungur láti þá afskiftalausa.

Ef konungi þóknast svo, þá verði skriflega fyrirskipað að afmá þá; en tíu þúsund talentur silfurs skal eg vega í hendur fjárgæzlumönnunum, svo að þeir flytji það í féhirzlur konungs.

Þá dró konungur innsiglishring sinn af hendi sér og fékk hann Haman Hamdatasyni Agagíta, fjandmanni Júða.

Síðan sagði konungur við Haman: Silfrið er þér gefið, og með þjóðina mátt þú fara svo sem þér vel líkar.

Þá var skrifurum konungs stefnt saman, þrettánda dag hins fyrsta mánaðar; og var nú skrifað með öllu svo sem Haman mælti fyrir til jarla konungs og til landstjóranna í öllum skattlöndunum og til höfðingja allra þjóðanna, í hvert skattland með skrift þess lands og til hverrar þjóðar á hennar tungu. Var þetta skrifað í nafni Ahasverusar konungs og innsiglað með innsiglishring konungs.

Og bréfin voru send með hraðboðum í öll skattlönd konungs, þess efnis, að eyða skyldi, deyða og tortíma öllum Júðum, bæði ungum og gömlum, börnum og konum, á einum degi, þrettánda dag hins tólfta mánaðar — það er mánuðurinn adar —, og ræna fjármunum þeirra.

Eftirrit af bréfinu skyldi gefið út sem lög í hverju skattlandi, til þess að gjöra þetta kunnugt öllum þjóðunum, svo að þær gætu verið viðbúnar þennan dag.

Hraðboðarnir fóru af stað í skyndi að boði konungs, þegar er lögin voru útgefin í borginni Súsan. Og konungur og Haman settust að drykkju, en felmt sló á bæinn Súsan.