Esterarbók 2Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Esterarbók 2

Eftir þessa atburði, þá er Ahasverusi konungi var runnin reiðin, mintist hann Vastí og þess, er hún hafði gjört, svo og þess, hver dómur hafði yfir hana gengið.

Þá sögðu menn konungs, þeir er honum þjónuðu: Leiti menn að ungum, fríðum meyjum handa konunginum,

og konungur setji til menn um öll skattlönd ríkis síns, er safni saman öllum ungum, fríðum meyjum til borgarinnar Súsan, í kvennabúrið, undir umsjá Hege, geldings konungs, þess er geymir kvennanna, svo að hann annist um hreinsunar-undirbúning þeirra;

og sú stúlka, sem þóknast konungi, verði drotning í stað Vastí. Þetta líkaði konungi vel, og hann gjörði svo.

En í borginni Súsan var Júði nokkur, að nafni Mordekai Jaírsson, Símeísonar, Kíssonar, Benjamíníti,

er fluttur hafði verið frá Jerúsalem með þeim hernumdu, er fluttir voru burt með Jekonja Júda-konungi, þeim er Nebúkadnezar Babel-konungur flutti burt.

Og hann var fósturfaðir Hadassa, það er Esterar, dóttur föðurbróður hans, því að hún var föður- og móðurlaus. Og stúlkan var fagurvaxin og fríð sýnum, og er faðir hennar og móðir önduðust, þá hafði Mordekai tekið hana sér í dóttur stað.

En er boð konungs og tilskipun hans varð kunn, og safnað var saman mörgum stúlkum til borgarinnar Súsan undir umsjá Hegaí, þá var og Ester tekin til konungshallarinnar, undir umsjá Hegaí kvennavarðar.

Og stúlkan geðjaðist honum og fann náð fyrir augum hans; fyrir því flýtti hann sér að fá henni það, er hún þurfti til hreinsunar-undirbúnings síns, og þann mat, er henni bar, svo og að fá henni þær sjö þernur, úr konungshöllinni, er henni voru ætlaðar; og hann fór með hana og þernur hennar á bezta staðinn í kvennabúrinu.

Ester hafði ekki sagt, hverrar þjóðar hún væri, né frá ætt sinni; því að Mordekai hafði boðið henni að segja eigi frá því.

En Mordekai gekk á degi hverjum fyrir framan forgarð kvennabúrsins, til þess að vita, hvernig Ester liði og hvað um hana yrði.

Og er röðin kom að hverri stúlku um sig, að hún skyldi ganga inn fyrir Ahasverus konung eftir tólf mánaða undirbúnings-frest, samkvæmt kvenna-lögunum — því að svo langur tími gekk til hreinsunar-undirbúnings þeirra: sex mánuðir með myrru-olíu og sex mánuðir með ilmsmyrslum og öðru því, er til undirbúnings kvenna heyrir —:

þegar stúlkan þá gekk inn fyrir konung, var henni fengið alt, er hún bað um, að það færi með henni úr kvennabúrinu til konungshallarinnar.

Um kveldið gekk hún inn, en að morgni sneri hún aftur í hið annað kvennabúr, undir umsjá Saasgasar, geldings konungs, þess er geymdi hjákvennanna; mátti hún þá eigi framar koma inn fyrir konung, nema ef konungi hafði geðjast vel að henni og hún væri sérstaklega kölluð.

Þegar nú röðin kom að Ester, dóttur Abíhaíls, föðurbróður Mordekai, er hann hafði tekið sér í dóttur stað, að hún skyldi inn ganga fyrir konung, þá bað hún ekki um neitt, nema það sem Hegaí geldingur konungs, kvennavörðurinn, tiltók. Og Ester fann náð í augum allra þeirra, er hana sáu.

Og Ester var tekin inn til Ahasverusar konungs, inn í hina konunglegu höll hans, í tíunda mánuðinum — það er tebet-mánuður — á sjöunda ríkisstjórnarári hans.

Og konungur fékk meiri ást á Ester en öllum öðrum konum, og hún ávann sér náð hans og þokka, meir en allar hinar meyjarnar. Og hann setti hina konunglegu kórónu á höfuð henni og gjörði hana að drotningu í stað Vastí.

Og konungur hélt mikla veizlu öllum höfðingjum sínum og þjónum, Esterar-veizlu, lét halda hvíldardag í skattlöndunum og gaf gjafir með konunglegu örlæti. Mordekai kemst fyrir samsæri gegn konungi.

Þá er meyjum var í annað sinn saman safnað og Mordekaí sat í konungshliði, —

en Ester hafði ekki sagt frá ætt sinni eða hverrar þjóðar hún væri, svo sem Mordekai hafði boðið henni, með því að Ester hlýddi fyrirmælum Mordekai, eins og þegar hún var í fóstri hjá honum

í þann tíma, þá er Mordekai sat í konungshliði, reiddust Bigtan og Teres, tveir geldingar konungs, af þeim er geymdu þröskuldarins, og leituðu eftir að leggja hendur á Ahasverus konung.

Þessa varð Mordekai áskynja og sagði Ester drotningu frá því, en Ester sagði konungi frá í nafni Mordekai.

Og er málið var rannsakað og þetta reyndist satt að vera, þá voru þeir báðir festir á gálga. Og þetta var ritað í árbókina í viðurvist konungs. Haman ákveður að láta myrða alla Júða í Persíu.