Esterarbók 16Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Esterarbók 16

„Artaxerxes hinn mikli konungur, frá Indlandi til Eþíópíu, sendir landstjórum og höfðingjum hundrað tuttugu og sjö héraða, sem hlýða boði voru, heilsan.

Margir hafa misnotað til drambs gæsku höfðingja og þann heiður, sem þeim hefir veittur verið,

og leitast eigi aðeins við að kúga þegna konungsins, heldur bera þeir eigi þá dýrð, sem þeim er gefin, og taka sér fyrir hendur að vinna og gegn þeim, sem hana gáfu.

Og eigi láta þeir sér nægja að þakka eigi fyrir þegnar velgjörðir og að brjóta í sjálfum sér lög mannúðarinnar, heldur hyggja þeir, að þeir megi og komast undan réttlæti Guðs, sem alla hluti sér.

Og þeir brjótast út í svo mikið æði, að þeir leitast við að grafa undan með lygum þeim, sem gæta kostgæfilega þeirra embætta, sem þeim eru falin, og gjöra alt með þeim hætti, að þeir séu allra manna lofs verðir,

meðan þeir svíkja með slægum brögðum eyru þeirra höfðingja, sem vel meina og dæma um aðra eftir sínu eigin eðli.

Nú er þetta sannað bæði af fornum sögum og af því, sem daglega gjörist, hvernig góðar fyrirætlanir konunga eru spilltar af illum ábendingum vissra manna.

Fyrir því verðum vér að sjá fyrir friði allra héraða.

Og eigi skuluð þér halda, ef vér bjóðum ólíka hluti, að það komi af hviklyndi hugar vors, heldur að vér kveðum upp dóm eftir eðli og nauðsyn tímanna, eins og gagn ríkisins krefur.

Og til þess að þér megið enn skýrar skilja það, sem vér segjum: Haman, sonur Amadatí, Makedóníumaður bæði að hug og landi og hafði ekkert af persnesku blóði, en flekkaði gæsku vora með grimmd sinni, var af oss tekinn sem útlendingur;

og hann fann mannúð vora svo mikla við sig, að hann var kallaður faðir vor og var af öllum tilbeðinn sem næsti maður eftir konunginn.

En hann var svo uppblásinn af hroka, að hann tók sér fyrir hendur að svipta oss ríki voru og lífi.

Því að með vissum nýjum og óheyrðum ráðabruggum hefir hann leitað eyðingar Mordekaí, fyrir hvers trúfesti og góða þjónustu líf vort var frelsað, og Esterar, sem hluttakandi er í ríki voru, ásamt allri þjóð þeirra,

og hugði, að eftir að þau væru drepin, mætti hann vinna svik gegn oss, sem eftir stæðum einir án vina, og flytja ríki Persa til Makedóníumanna.

En vér höfum komist að því, að Gyðingarnir, sem af þessum óguðlegasta manni voru ætlaðir til dauða, eru að engu sekir, heldur nota þeir þvert á móti réttlát lög

og eru börn hins hæsta og mesta og eilíflega lifandi Guðs, fyrir hvers velgjörð ríkið var gefið bæði feðrum vorum og oss og er varðveitt alt til þessa dags.

Fyrir því vitið, að þau bréf, sem hann sendi í voru nafni, eru ógild og að engu hafandi.

Fyrir hvern glæp hanga bæði hann sjálfur, sem það hugsaði upp, og alt frændlið hans á gálgum fyrir hliðum þessarar borgar Súsan — eigi vér, heldur Guð, sem endurgeldur honum sem hann verðskuldaði.

En þessi tilskipun, sem vér nú sendum, skal birt í öllum borgum, að Gyðingar megi frjálsir fylgja sínum eigin lögum.

Og þér skuluð liðsinna þeim, að þeir megi drepa þá, sem búið höfðu sig til að drepa þá, á hinum þrettánda degi hins tólfta mánaðar, sem Adar heitir.

Því að hinn almáttugi Guð hefir snúið þessum degi sorgar og harms þeim í gleði.

Fyrir því skuluð þér og telja þennan dag meðal annarra hátíðisdaga og halda hann með allri gleði, að hann megi og kunnur verða á komandi tímum,

að allir þeir, sem trúlega hlýða Persum, hljóti verðug laun fyrir trúfesti sína; en þeir, sem svikarar eru við ríki þeirra, farist fyrir illsku sína.

Og hvert það hérað og hver sú borg, sem eigi vill hluttakandi verða í þessari hátíð, farist fyrir sverði og eldi og verði svo eydd, að hún verði ófær bæði mönnum og dýrum, til dæmis um fyrirlitningu og óhlýðni.“