Efesusbréfið 6Krans-útgáfa

Efesusbréfið 6

Þér börn, hlýðið foreldrum yðar í drotni, því að það er rétt.

Heiðra föður þinn og móður, — það er hið fyrsta boðorð með fyrirheiti —

til þess að þér vegni vel og þú verðir langlífur í landinu.

Og þér feður, reitið ekki börn yðar til reiði, heldur uppalið þau með aga og umvöndun Drottins.

Þér þjónar, hlýðið þeim, sem eftir holdinu eru drotnar yðar, með lotningu og ótta, í einlægni hjarta yðar, eins og Kristi,

ekki með augnaþjónustu, eins og þeir er mönnum vilja þóknast, heldur eins og þjónar Krists, er gjöra vilja Guðs af alhuga,

og þjónið þeim með fúsu geði, eins og drotni og ekki mönnum,

með því að þér vitið, að hvað gott sem hver gjörir, það mun hann fá aftur af drotni, hvort sem hann er þræll eða frjáls maður.

Og þér drotnar, breytið eins við þá, og látið af hótunum, með því að þér vitið, að bæði þeirra og yðar Drottinn er á himnum, og að hjá honum er ekkert manngreinarálit.

Að öðru leyti styrkist í drotni og í krafti máttar hans;

íklæðist alvæpni Guðs, til þess að þér getið staðist vélabrögð djöfulsins,

því að baráttan, sem vér eigum í, er ekki við blóð og hold, heldur við völdin, við yfirráðin, við heimsdrotna þessa myrkurs, við vonskunnar anda í himingeiminum.

Fyrir því skuluð þér taka alvæpni Guðs, til þess að þér getið veitt mótstöðu á hinum vonda degi, og getið staðist, er þér hafið framkvæmt alt.

Standið því gyrtir sannleika um lendar yðar og íklæddir brynju réttlætisins

og skóaðir á fótunum með viðbúinleik fagnaðarboðskaps friðarins,

og takið jafnframt upp skjöld trúarinnar, sem þér munuð geta slökt með öll hin eldlegu skeyti hins vonda,

og takið hjálm hjálpræðisins og sverð andans, sem er Guðs orð;

og með alls konar bæn og heiðni skuluð þér biðja á hverri tíð í andanum og vera árvakrir við það með allri kostgæfni og beiðni fyrir öllum heilögum,

og fyrir mér, til þess að mér verði gefin orð, þá er eg lýk upp munni mínum, til þess að boða með djörfung leyndardóm fagnaðarboðskaparins,

sem eg er sendiboði fyrir í fjötrum, til þess að eg megi flytja hann með djörfung, eins og mér ber að tala.

En til þess að þér einnig fáið að vita um mína hagi, hvernig mér líður, þá mun Týkíkus, hinn elskaði bróðir og trúi þjónn í drotni, skýra yður frá öllu.

Og hann sendi eg til yðar einmitt í þeim tilgangi, til þess að þér fáið að vita um vora hagi, og hann geti huggað hjörtu yðar.

Friður sé með bræðrunum og kærleiki með trú af Guði föður og drotni Jesú Kristi.

Náðin sé með öllum þeim, sem elska Drottin vorn Jesúm Krist í óforgengileik!