Gamla testamentiðSaga
En Efraím-mönnum var stefnt saman; þeir héldu í norður og —— sögðu við Jefta: Hví hefir þú farið að berjast við Ammóníta, og eigi kvatt oss þér til fylgdar? Nú munum vér leggja eld í hús þitt yfir þér.
Þá sagði Jefta við þá: Eg og þjóð mín áttum í miklum deilum við Ammóníta; beiddist eg þá liðs hjá yður, en þér hjálpuðuð mér ekki úr höndum þeirra.
Og er eg sá, að þú ætlaðir ekki að hjálpa mér, þá lagði eg líf mitt í hættu og fór í móti Ammónítum, og Drottins gaf þá í hendur mér. Hvers vegna komið þér þá í dag til mín, til þess að berjast við mig?
Og Jefta safnaði saman öllum mönnum í Gíleað og barðist við Efraímíta, og unnu Gíleaðs-menn sigur á Efraimítum, því að þeir höfðu sagt: Þér eruð flóttamenn frá Efraím; Gíleað liggur mitt í Efraím, mitt í Manasse.
Gíleaðitar settust um Jórdan-vöðin yfir til Efraím. Og þegar flóttamenn úr Efraím sögðu: Leyf mér yfir um! þá sögðu Gíleað-menn við hann: Ert þú Efraímíti? Ef hann svaraði: Nei!
þá sögðu þeir við hann: Segðu »Sjibbólet«. Ef hann þá sagði: »Sibbólet«, og gætti þess eigi, að bera það rétt fram, þá gripu þeir hann og drápu hann við Jórdan-vöðin. Féllu þá í það mund af Efraím fjörutíu og tvær þúsundir.
Og Jefta var dómari í Ísrael í sex ár. Síðan andaðist Jefta Gíleaðíti og var grafinn í einni af Gíleaðs borgum.
Eftir hann var Íbzan frá Betlehem dómari í Ísrael.
Hann átti Þrjátíu sonu, og þrjátíu dætur gifti hann burt frá sér, og þrjátíu dætur færði hann sonum sínum annarstaðar að. Hann var dómari í Ísrael Í sjö ár;
síðan andaðist Íbzan og var grafinn í Betlehem.
Eftir hann var Elón Sebúloníti dómari í Ísrael; hann var dómari í Ísrael í tíu ár;
Síðan andaðist Elón Sebúloníti og var grafinn í Ajalon í Sebúlonslandi.
Eftir hann var Abdón Hiíllelsson Píratóniti dómari í Ísrael.
Hann átti fjörutíu sonu og þrjátíu sonasonu, sem riðu sjötíu ösnufolum; hann var dómari í Ísrael í átta ár;
síðan andaðist Abdón Híllelsson Píratóniti og var grafinn í Píratón í Efraím-landi á Amalekta-fjöllum. E Simson fæðist.