Gamla testamentiðSaga
Jefta Gíleaðíti var kappi mikill, en hann var skækju-son; Gíleað hafði getið Jefta;
og er kona Gíleaðs fæddi honum sonu og synir konunnar uxu upp, þá ráku þeir Jefta burt og sögðu við hann: Eigi skalt þú taka arf í ætt vorri, því að þú ert sonur annarar konu.
Þá flýði Jefta burt frá bræðrum sínum og settist að í landinU Tób. Þá söfnuðust til Jefta lausingjar og fylgdu þeir honum.
Nokkurum tíma eftir þetta hófu Ammónítar hernað á hendur Ísrael.
En er Ammónítar herjuðu á Ísrael, lögðu öldungarnir í Gíleað af stað, til þess að sækja Jefta í landið Tób.
Og þeir sögðu við Jefta: Kom þú Og ver þú fyrirliði vor, og munum vér berjast við Ammóníta.
En Jefta sagði við öldungana í Gíleað: Hafið þér ekki lagt hatur á mig og rekið mig burt úr ætt minni? Hví komið þér þá nú til mín, þá er þér eruð í nauðum staddir?
Og öldungarnir í Gíleað sögðu við Jefta: Fyrir því erum vér nú aftur komnir til þín, og ef þú fer með Oss og berst við Ammóníta, þá skalt þú vera höfðingi vor, allra þeirra er búa í Gíleað.
Þá sagði Jefta við öldungana í Gíleað: Ef þér sækið mig aftur, til þess að berjast við Ammóníta, og Drottins gefur þá á mitt Vald, þá vil eg vera höfðingi yfir yður!
’á sögðu öldungarnir í óíleað við Jefla: Drottinn veri heyrnarvottur að tali voru og hegni oss, í vér eigi gjörum það, sem þú hefir mælt.
Og Jefta fór með öldungunum í Gíleað og lýðurinn tók hann til höfðingja yfir sig og fyrirliða; og Jefta talaði öll orð sín frammi fyrir Drottni í Mizpa.
Þá gjörði Jefta sendimenn á fund konungs Ammóníta og lét Segja honum: Hvað er þér á höndum við mig, er þú hefir farið í móti Mér, til þess að herja á land mitt?
Konungur Ammóníta svaraði sendimönnum Jefta: Ísrael lagði undir sig land mitt, þá er hann fór af Egiptalandi, frá Arnon til Jabbok og að Jórdan; skila þú þeim nú aftur með góðu!
En Jefta gjörði enn menn á fund Ammóníta konungs
og lét segja honum: Svo segir Jefta: Ísrael lagði ekki undir sig Móabsland né land Ammóníta;
því að þegar þeir fóru af Egiptalandi og Ísrael hafði farið um eyðimörkina að Rauðahafi og var kominn til Kades,
þá gjörði Ísrael menn á fund Edóm-konungs og lét Segja honum: Leyf mér að fara um land þitt! En Edóm-konungur daufheyrðist við. Þá sendi hann og til Móabs-konungs, en hann vildi Ekki, Hélt Ísrael nú kyrru fyrir í Kades;
hélt síðan áfram um eyðimörkina og fór í bug kring um Edóm-land og Móabsland og kom austan að Móabslandi og setti búðir sínar hinumegin Arnon; en inn yfir landamæri Móabs komu þeir ekki, því að Arnon ræður landamærum Móabs.
Þá gjörði Ísrael sendimenn á fund Síhons Amórita Konungs, konungs í Hesbon, og Ísrael lét segja honum: Leyf oss að Ára um land þitt, þangað sem ferðinni er heitið.
En Síhon treysti hl Ísrael svo, að hann vildi leyfa honum að fara um land sitt, A€ldur safnaði Síhon öllu liði sínu, og settu þeir herbúðir sínar í Jahza, ið hann barðist við Ísrael.
En Drottinn, Ísraels Guð, gaf Síhon og alt hans lið í hendur Ísraels, svo að þeir unnu sigur á þeim; og lagði Ísrael undir sig alt land Amóríta, er bygðu það land.
Lögðu þeir þannig undir sig alt land Amóríta frá Arnon að Jabbok, og frá eyðimörkinni að Jórdan.
Drottinn, Guð Ísraels, hefir því stökt Amórítum. í ondan lýð sínum Ísrael, og nú ætlar þú að taka land hans til gnar?
Hvort tekur þú ekki til eignar það, sem Kamos, guð þinn, fær þér til eignar? Svo tökum vér og til eignar land allra þeirra, er Drottinn, Guð vor, stökkvir burt undan oss.
Og hvort munt þú nú vera nokkuru betri en Balak Zippórsson, konungur í Móab? Átti hann í deilum við Ísrael eða fór hann með hernað á hendur þeim?
Þar sem Ísrael hefir búið í Hesbon og smáborgunum, er að liggja, og í Aróer og smáborgunum, er að liggja, og í öllum borgunum, sem liggja með fram Arnon báðumegin, í þrjú hundruð ár, hvers vegna hafið þér þá ekki náð þeim aftur allan þennan tíma?
Eg hefi ekki gjört þér neitt mein, en þú beitir mig ranglæti, er þú herjar á mig; Drottinn, dómarinn, dæmi í dag milli Ísraelsmanna og Ammóníta!
En konungur Ammóníta sinti ekki orðum Jefta, þeim er hann lét færa honum.
Þá kom andi Drottins yfir Jefta, og hann fór um Gíleað og Manasse og hann fór til Mizpe í Gíleað, og frá Mizpe Í Gíleað fór hann í móti Ammónítum.
Og Jefta gjörði Drottinn heit og sagði: Ef þú gefur Ammóníta í hendur mér,
þá skal sá, er fyrstur gengur út úr dyrum húss míns í móti mér, er eg sný aftur heilu og höldnu frá Ammónítum, heyra Drottin, og skal eg fórna honum að brennifórn,
Síðan fór Jefta í móti Ammónítum, til þess að berjast við þá, og Drottinn gaf þá í hendur honum.
Hann vann mjög mikinn sigur á þeim frá Aróer alla leið til Minnít — tuttugu borgir — og tij AbelKeramím. Þannig urðu Ammónítar að lúta í lægra haldi fyrir Ísraelsmönnum.
En er Jelfta kom heim til húss síns í Mizpa, sjá, þá gekk dóttir hans út í móti honum með bumbum og dansi; hún var einkabarnið hans; hann átti engan sön né dóttur, nema hana.
Og er hann sá hana, reif hann klæði sín og sagði: Æ, dóttir mín, mjög beygir þú mig nú; sjálf veldur þú mér nú sárustum trega. Eg hefi upp lokið munni mínum gagnvart Drottni, og eg get ekki tekið það aftur.
En hún sagði við hann: Faðir minn, ef þú hefir upp lokið munni þínum gagnvart Drottni, þá gjör þú við mig eins og fram gengið er af munni þínum, fyrst Drottinn hefir látið þig koma fram hefndum á óvinum þínum,
Og enn sagði hún við föður sinn: Gjör þetta fyrir mig: lát mig fá tveggja mánaða frest, svo að eg geti farið hér ofan í fjöllin og grátið það með stallsystrum mínum, að eg verð að deyja ung mær.
Hann sagði: Far þú! og lét hana burt fara í tvo mánuði. Fór hún þá burt með stallsystrum sínum og grét það á fjöllunum, að hún varð að deyja ung mær.
En að tveim mánuðum liðnum sneri hún aftur til föður síns, og hann gjörði við hana samkvæmt heiti því, er hann hafði unnið. En hún hafði aldrei karlmann kent. Og varð það siður í Ísrael:
ár frá ári fara Ísraels dætur að lofsyngja dóttur Jefta Gíleaðíta, fjóra daga á ári hverju.