Amosbók 7Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Amosbók 7

Drottinn Guð lét þessa sýn bera fyrir mig: Það voru komnar engisprettulirfur, þá er háin tók til að spretta, en flysjarar eftir konungsslátt.

En er þær höfðu gjörefið grasið af jörðinni, sagði eg: Drottinn Guð, æ fyrirgef! Hversu má Jakob standast? Hann er svo vesall!

Þá iðraði Drottinn þessa. Það skal ekki verða! sagði Drottinn.

Drottinn Guð lét þessa sýn bera fyrir mig: Drottinn Guð kom, til þess að hegna með eldi; og hann svalg hið mikla djúp og eyddi landið.

Þá sagði eg: Æ, Drottinn Guð, lát af! Hversu má Jakob standast? Hann er svo vesall! Þá iðraði Drottinn þessa.

elta skal ekki heldur verða! sagði Drottinn.

Hann lét þessa sýn bera fyrir mig: Sjá, Drottinn stóð uppi á lóðréttum múrvegg og hélt á lóði.

SOg Drottins sagði við mig: Hvað sér þú, Amos? Eg svaraði: Lóð. Þá sagði Drottinn: Sjá, eg mun lóð nota mitt á meðal lýðs míns Ísraels; eg vil eigi lengur umbera hann.

Hæðir Ísaks skulu í eyði lagðar verða og helgidómar Ísraels eyddir verða og eg vil rísa gegn Jeróbóams ætt með reiddu sverði.

Þá sendi Amazía prestur í Betel til Jeróbóams Ísraelskonungs og lét segja: Amos kveikir uppreisn gegn þér mitt í Ísraelsríki; landið fær eigi þolað öll orð hans.

Því að svo hefir Amos sagt: Jeróbóam mun fyrir sverði falla og Ísrael mun herleiddur verða burt úr landi sínu.

Síðan sagði Amazía við Amos: Haf þig á burt, vitranamaður, flý til Júdalands! Afla þér þar viðurværis og spá þú þar!

En í Betel mátt þú eigi framar koma fram sem spámaður, því að það er konunglegur helgidómur og ríkismusteri.

Þá svaraði Amos og sagði við Amazía: Eg er enginn spámaður og eg er ekki af spámannaflokki, heldur er eg hjarðmaður og rækta mórber.

En Drottinn tók mig frá hjarðmenskunni og Drottinn sagði við mig: Far þú og spá þú hjá lýð mínum Ísrael.

Og heyr því orð Drottins: Þú segir: Þú mátt eigi spá gegn Ísrael, né láta orð þín streyma yfir Ísaks niðja.

Fyrir því segir Drottinn svo: Konan þín skal verða skækja hér í borginni, og synir þínir og dætur skulu fyrir sverði falla. Jörð þinni skal sundur skift verða með mælivað, og þú sjálfur skalt deyja í óhreinu landi. Og Ísraelsmenn skulu fara herleiddir af landi sínu.