Gamla testamentiðSpámennirnir
Vei hinum andvaralausu á Zíon og hinum öruggu á Samaríufjalli, aðalsmönnum hinnar ágætustu meðal þjóðanna, og þeim, er Ísraels hús streymir til.
Farið til Kalne og litist um, og haldið þaðan til Hamat hinnar miklu og farið ofan til Gat í Filisteu. Eruð þér betri en þessi konungsríki, eða er land yðar stærra en land þeirra?
Þeir ímynda sér, að hinn illi dagur sé hvergi nærri, og efla yfirdrotnun ranglætisins.
Þeir hvíla á legubekkjum af fílsbeini og liggja ílatir á hvílbeðjum sínum. Þeir eta lömb af sauðahjörðinni og ungneyti úr ali-- stíunni.
Þeir raula undir með hörpunni, setja saman ljóð eins. og: Davíð.
Þeir drekka vínið úr skálum og smyrja sig með úrvals-olíu — en eyðing Jósefs rennur þeim ekki til rifja.
Fyrir því skulu þeir nú: herleiddir verða í fararbroddi hinna herleiddu, og þá skal fagnaðaróp flatmagandi sælkeranna þagna.
Drottinn Guð hefir svarið við sjálfan sig, segir Drottinn, Guð hersveitanna: Eg hefi viðbjóð á ofmetnaði Jakobs, eg hata haltir hans og framsel borgina og alt, sem í henni er.
Og ef tíu menn eru þá eftir í einu húsi, skulu þeir deyja;
og ef frændi hans og líkbrennumaður tekur hann þá upp, til þess að bera beinin út úr húsinu, og segir við þann, sem er Í insta afkyma hússins: Er nokkur eftir hjá þér? og hinn segir: Nei! þá mun hann segja: Þei, þei!. því að nafn Drottins má ekki nefna.
Því sjá, Drottinn býður að slá: skuli stóru húsin, þar til er þau hrynja, og litlu húsin, þar til er þau: rifna.
Hlaupa hestar yfir kletta, eða erja menn sjóinn með uxum, úr því þér umhverfið réttinum í eitur og ávöxtum réttlætisins í malurt?
Þér gleðjist yfir Lódebar, þér segið: Höfum vér ekki fyrir eigin rammleik unnið Karnaím?
Já, sjá: gegn yður, Ísraelsmenn, segir Drottinn, Guð hersveitanna, mun eg hefja þjóð og hún skal kreppa að yður þaðan frá, er leið liggur til Hamat, alt að læknum á sléttlendinu.