Spurt og svarað

Hvernig biður maður morgunbæn og kvöldbæn?

Morgunbæn er sögð þegar dagurinn hefst og kvöldbæn áður en gengið er til hvílu. Í morgunbæninni er þakkað fyrir nóttina og beðið um að dagurinn verði Guði að skapi. Í kvöldbæninni er þakkað fyrir daginn, beðið fyrirgefningar á því sem miður fór og beðið um vernd yfir nóttina.

Í yfirlestri

Morgunbænin

Morgunbænin í Krans er í þremur stuttum hlutum. Fyrst er þakkað fyrir nóttina sem leið og daginn sem er að hefjast. Þá er beðið um að ganga daginn í ljósi Guðs, svo orð og verk verði honum að skapi og öðrum til góðs. Hún endar í Jesú nafni.

Morgunbænina má lengja með bænum sem maður kann, eins og Faðir vor eða Maríubæn, eða stytta hana í eina setningu á annasömum morgni.

Kvöldbænin

Kvöldbænin lítur til baka. Þakkað er fyrir daginn og allt sem hann færði. Síðan er beðið um fyrirgefningu, bæði á því sem var gert og hefði ekki átt að gera og á því sem var látið ógert.

Í lokin er beðið um að Guð vaki um nóttina yfir þeim sem biður og öllum sem hann ann, og að hann fái að vakna aftur í friði Guðs.

Morgunbænin og kvöldbænin í Krans eru samdar af Krans. Þær eru ekki úr bænabók biskupsdæmisins, og hver og einn getur farið með þær með sínum eigin orðum eða beðið aðrar bænir í þeirra stað.

Báðar má merkja með bókamerki í Bænasafninu, og þá birtast þær á listanum Utanbókar þar til maður kann þær.

Morgunn og kvöld á hverjum degi

Morgunninn og kvöldið eru auðveldustu tímarnir til að muna eftir bæninni, því þeir koma á hverjum degi hvað sem annað gerist. Greinin um bænina í Fræðslu Krans ráðleggur einmitt fastan tíma frekar en að bíða eftir réttu skapi.

Á milli morguns og kvölds eru fleiri stuttar bænir í Bænasafninu: borðbæn fyrir og eftir máltíð, ferðabæn áður en lagt er af stað og Engill Drottins, miðdegisbænin.

Tíðabænir kirkjunnar

Kirkjan á líka sína eigin bæn fyrir morgun og kvöld, tíðabænirnar. Í Krans eru þrjár tíðir úr tíðabókinni frá 2007: efri óttusöngur að morgni, aftansöngur síðdegis og náttsöngur áður en gengið er til hvílu.

Tíðirnar eru lengri en morgunbænin og kvöldbænin. Hver þeirra er sett saman úr sálmum, stuttum ritningarlestri, lofsöng úr guðspjalli, fyrirbænum, Faðir vor og lokabæn, og þær breytast eftir degi og tíma kirkjuársins. Náttsöngurinn endar á andstefi til Maríu.

Í Krans má ýmist biðja tíðirnar eða syngja þær, og tíð dagsins í dag er sýnd fyrst. Náttsöngurinn er síðasta tíð dagsins og endar í Krans á orðunum „Góða nótt.“

Lesa meira

MorgunbænÞegar dagurinn hefst — og kvöldbænin við hlið hennar.