Matt 25:14-30
Talenturnar
Tveir ávöxtuðu, einn gróf.
Maður nokkur var að leggja af stað í ferð úr landi. Hann kallaði þjóna sína til sín og fékk þeim eigur sínar í hendur: einum fékk hann fimm talentur, öðrum tvær og þeim þriðja eina, hverjum eftir kröftum hans, og fór síðan.
Sá sem fengið hafði fimm talentur fór þegar í stað og verslaði með þær og græddi aðrar fimm. Sá sem fékk tvær græddi á sama hátt aðrar tvær.
En sá sem hafði fengið eina fór og gróf gryfju í jörðina og faldi þar fé húsbónda síns.
Eftir langan tíma kom húsbóndinn heim og gerði reikning við þá.
Sá fyrsti kom með aðrar fimm talentur og sagði honum hvað hann hefði grætt. Húsbóndinn sagði við hann að hann væri góður og trúr þjónn: yfir litlu hefði hann verið trúr og því myndi hann setja hann yfir mikið, og bauð honum inn til fagnaðar síns. Sá sem hafði fengið tvær kom með aðrar tvær, og honum var svarað eins.
Þá kom sá sem hafði fengið eina. Hann sagðist hafa þekkt húsbóndann sem harðan mann, er uppskæri þar sem hann sáði ekki og safnaði þar sem hann stráði ekki, og að hann hefði orðið hræddur og því grafið talentuna í jörðu. Hér væri hún.
Húsbóndinn kallaði hann illan og latan þjón. Fyrst hann vissi þetta um sig hefði honum borið að leggja féð í hendur víxlurum, svo að húsbóndinn hefði fengið sitt aftur með vöxtum þegar hann kom. Talentan skyldi tekin af honum og fengin þeim sem hafði tíu, því að þeim sem hefur mun gefið verða og hann hafa gnægð, en frá þeim sem ekki hefur mun jafnvel tekið það sem hann hefur.
Og hinum ónýta þjóni skyldi kastað út í myrkrið fyrir utan, þar sem grátur er og gnístran tanna.
Sögur sem þú tendrar birtast í Vistað.
Þetta eru endursagnir á okkar eigin orðum, ekki texti Biblíunnar. Tilvísunin neðst leiðir þig í ritninguna sjálfa.
Í yfirlestri