2 Mós 7-11
Plágurnar tíu
Tíu sinnum spurt, tíu sinnum neitað.
Móse og Aron gengu fyrir faraó og báðu hann að sleppa þjóðinni út í eyðimörkina til að þjóna Drottni. Aron kastaði staf sínum niður frammi fyrir honum og stafurinn varð að höggormi; töframenn Egypta gerðu hið sama, en stafur Arons gleypti þeirra stafi. Faraó lét sér ekki segjast.
Þá laust Aron vatnið í ánni og það varð að blóði. Fiskarnir drápust, áin fúlnaði og Egyptar urðu að grafa meðfram henni til að finna vatn sem hægt væri að drekka. Sjö dagar liðu.
Næst komu froskar upp úr vatninu og skriðu inn í húsin, upp í rúmin og í baksturofnana. Faraó bað um að þeir yrðu teknir burt og lofaði fararleyfi, en þegar froskarnir lágu dauðir í haugum og daunninn lá yfir landinu herti hann hjarta sitt á ný.
Aron laust duft jarðarinnar og það varð að mýi á mönnum og fénaði. Töframennirnir reyndu hið sama og gátu ekki, og sögðu faraó að hér væri fingur Guðs á ferð. Hann hlustaði ekki.
Svo fyltust hús Egypta af flugum, en í Gósenlandi, þar sem Ísraelsmenn bjuggu, kom engin fluga. Eftir það drapst kvikfénaður Egypta úti í haganum meðan ekki ein skepna Ísraelsmanna dó, og næst kom bólga með kýlum á menn og skepnur, svo að töframennirnir gátu ekki einu sinni staðið frammi fyrir Móse.
Þá kom hagl með þrumum og eldingum, stærra en nokkur maður mundi, og braut tré og akra um allt landið nema þar sem Ísraelsmenn bjuggu. Daginn eftir bar austanvindur engisprettur inn yfir landið í slíkum aragrúa að þær átu upp það sem haglið hafði skilið eftir, og ekkert grænt varð eftir.
Síðan rétti Móse hönd sína til himins og myrkur lagðist yfir Egyptaland í þrjá daga, svo þétt að enginn greindi annan og enginn hreyfði sig úr stað; en hjá Ísraelsmönnum var bjart.
Loks sagði Móse faraó að um miðnætti myndi Drottinn fara um landið og frumburðirnir deyja, frá syni faraós í hásætinu til frumburðar ambáttarinnar við kvörnina, og að þá myndu þjónar faraós sjálfir koma til hans og biðja hann að fara. Svo gekk hann út frá faraó, og hann var reiður.
Drottinn hafði sagt Móse fyrir fram að faraó myndi ekki láta að orðum þeirra, svo að stórmerkin yrðu mörg í Egyptalandi. Þeir Móse og Aron gerðu öll þessi tákn frammi fyrir honum, og hann leyfði Ísraelsmönnum ekki að fara burt úr landinu.
Sögur sem þú tendrar birtast í Vistað.
Þetta eru endursagnir á okkar eigin orðum, ekki texti Biblíunnar. Tilvísunin neðst leiðir þig í ritninguna sjálfa.
Í yfirlestri