Undirbúningsbænir
Í yfirlestri · afritun í yfirlestri
- Við stöndum
- Prestur
- Í nafni Föðurins og Sonarins og hins Heilaga Anda.
- Söfnuður
- Amen.
- Prestur
- Drottinn sé með yður.
- Söfnuður
- Og með þínum anda.
- Prestur
- Bræður og systur, viðurkennum syndir vorar, svo að vér séum þess verðug að hafa um hönd hina helgu leyndardóma.
- Söfnuður
- ÉG JÁTA fyrir almáttugum Guði og yður, bræður og systur, að ég hef syndgað mjög í hugsun, orði, athöfn og vanrækslu: mín sök, mín sök, mín mikla sök. Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey, alla engla og dýrlinga og yður, bræður og systur, að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.
- Prestur
- Almáttugur Guð miskunni oss, fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.
- Söfnuður
- Amen.

