Krossferillinn fylgir leið Jesú frá dómi Pílatusar til grafarinnar. Hann er beðinn saman í kirkju, einkum á föstunni, en má einnig biðja einn.
P. = prestur · L. = lesari · A. = allir
Jesús er dæmdur til dauða
- P.
- Vér tilbiðjum þig, Drottinn Jesús Kristur, og vegsömum þig.
- A.
- Því að með þínum helga krossi hefur þú endurleyst heiminn.
- L.
- Sá, er dæma mun veröld alla á dómsdegi, stendur andspænis dómara úr hópi manna. Í heiftarham krefst múgurinn dauða Drottins. Óttasleginn kveður Pílatus upp ranglátan dóm sinn. En Jesús stendur þar þögull hjá í fjötrum.
- P.
- Hann lastmælti engum, þá honum var lastmælt, og ekki hafði hann í hótunum, þá hann leið.
- A.
- Hann gaf sig á vald þeim, er ranglega dæmdu hann.
- P.
- Hann kaus sjálfur að sér skyldi fórnað.
- A.
- Hann lauk ekki upp munni sínum.
- L.
- Hversu oft lýsum vér menn ekki sök á hendur Guði enn þann dag í dag, þegar hugmyndir hans eru eigi vorar hugmyndir, vegir hans eigi vorir vegir!
- P.
- Drottinn Jesús, oss til lausnar hefur þú þögull hlítt dauðadómi Pílatusar. Vér biðjum þig:
- A.
- Vertu oss syndugum líknsamur.
Og um hennar hyggju skarða,
harmi lostna, böli marða,
eggjabrandur bitur gekk.
Jesús axlar krossinn
- P.
- Vér tilbiðjum þig, Drottinn Jesús Kristur, og vegsömum þig.
- A.
- Því að með þínum helga krossi hefur þú endurleyst heiminn.
- L.
- Hermennirnir koma með krosstréð. Af frjálsum vilja tekur Drottinn það á herðar sér. Hann kýs að drekka bikarinn, sem Faðirinn hefur að honum rétt.
- P.
- Vorar þjáningar voru það, sem hann bar.
- A.
- Og vor harmkvæli, sem hann á sig lagði.
- P.
- Eins og lamb, sem leitt er til slátrunar.
- A.
- Eins og sauður þegir fyrir þeim, sem klippa hann, lauk hann eigi upp munni sínum.
- L.
- Sá einn, sem tekur upp kross sinn og fylgir Jesú, getur orðið lærisveinn hans, í dagsins önn og amstri, í kvölum og krossi.
- P.
- Drottinn Jesús, viljugur hefur þú borið krossinn, sem synd mannkyns lagði þér á herðar. Vér biðjum þig.
- A.
- Vertu oss syndugum líknsamur.
Ó, hve hrelld og hrygg til dauða himna drottins var hin auða einkasonar móðir mær.
Jesús hnígur fyrsta sinni undan krossinum
- P.
- Vér tilbiðjum þig, Drottinn Jesús Kristur, og vegsömum þig.
- A.
- Því að með þínum helga krossi hefur þú endurleyst heiminn.
- L.
- Þung er byrðin, vegurinn grýttur og Drottinn að niðurlotum kominn. Hann bugast og hnígur niður. Þó er hann reistur á fætur og neyddur til að halda áfram göngu sinni.
- P.
- Vér álitum honum refsað, hann sleginn af Guði og lítillættan vegna synda vorra.
- A.
- Hann var særður vegna vorra synda og kraminn vegna vorra misgjörða.
- P.
- Hann var hvorki fagur né glæsilegur á að líta.
- A.
- Harmkvælamaður og kunnugur þjáningum.
- L.
- Hversu oft bregðumst vér menn ekki köllun vorri. En Guð vill að vér göngum á leiðarenda.
- P.
- Drottinn Jesús, eftir að hafa hnigið niður fyrsta sinni reist þú á fætur og rogaðist áfram með byrði þína. Vér biðjum þig:
- A.
- Vertu oss syndugum líknsamur.
Sem réð fanga sorg og stranga sút, er hanga kvöl við langa sinn leit mæra soninn skær.
Jesús mætir móður sinni
- P.
- Vér tilbiðjum þig, Drottinn Jesús Kristur, og vegsömum þig.
- A.
- Því að með þínum helga krossi hefur þú endurleyst heiminn.
- L.
- Móðirin stendur við veginn, sem sonurinn gengur með sinn þunga kross. Þau horfast í augu. Hún kennir kvöl hans og ber allar þjáningar með honum.
- P.
- Augu mín daprast af gráti.
- A.
- Því frá mér fór huggarinn, er hressti sál mína.
- P.
- Ástin er sterk eins og dauðinn.
- A.
- Mikil vötn geta ekki slökkt hana.
- L.
- Ennþá þjáist Kristur í heimi vorum, í limum líkama síns, í bræðrum sínum og systrum. Með þeim þjáist einnig María móðir hans og móðir vor.
- P.
- Drottinn Jesús, þú leist móður þína, þar sem hún stóð við veginn og kvaldist. Vér biðjum þig:
- A.
- Vertu oss syndugum líknsamur.
Hverjir gráta menn ei mundu móður Krists á þeirri stundu,
ef að horfðu hrelling á?
Símon frá Kýrene hjálpar Jesú að bera krossinn
- P.
- Vér tilbiðjum þig, Drottinn Jesús Kristur, og vegsömum þig.
- A.
- Því að með þínum helga krossi hefur þú endurleyst heiminn.
- L.
- Drottinn megnar eigi lengur að bera krossbyrði sína. Hermennirnir neyða þá mann nokkurn, er kom af akri og átti leið framhjá, að bera krossinn á eftir Jesú.
- P.
- Sá, sem vill vera lærisveinn minn, afneiti sjálfum sér.
- A.
- Hann taki upp kross sinn og fylgi mér.
- P.
- Berið hver annars byrðar.
- A.
- Og uppfyllið þannig lögmál Krists.
- L.
- Oss mönnum stendur ótti af krossinum. Jafnvel Pétur, lærisveinn Jesú, skelfdist hann. Og þó er hjálpræði í engu merki öðru en krossinum.
- P.
- Drottinn Jesús, þú hefur þegið hjálp Símonar frá Kýrene til að bera krossinn með þér. Vér biðjum þig:
- A.
- Vertu oss syndugum líknsamur.
Hver svo hjartað herða mætti hans að eigi lundu grætti góðrar móður sorg að sjá?
Veróníka réttir Jesú sveitadúkinn
- P.
- Vér tilbiðjum þig, Drottinn Jesús Kristur, og vegsömum þig.
- A.
- Því að með þínum helga krossi hefur þú endurleyst heiminn.
- L.
- Veróníka sér kvöl Jesú og ruddaskap hermannanna. Hún skeytir ekki um það, hvað aðrir kunna að hugsa. Hugrökk olnbogar hún sig gegnum mannþröngina og færir Drottni sveitadúk, sem hann felur andlit sitt í.
- P.
- Til þín mælir hjarta mitt: Ég leita auglits þíns.
- A.
- Sýn oss auglit þitt og vér munum hólpnir verða.
- P.
- Vísa þjóni þínum eigi frá í reiði.
- A.
- Hyl eigi auglit þitt fyrir oss.
- L.
- Fær kvöl annarra snortið oss? Greinum vér svívirta ásýnd Krists í líðandi bræðrum vorum og systrum?
- P.
- Drottinn Jesús, fullur gæsku hefur þú mótað mynd helgrar ásjónu þinnar í sveitadúk Veróníku. Vér biðjum þig:
- A.
- Vertu oss syndugum líknsamur.
Fyrir þjóðar sinnar syndir sá hún Jesú dreyra lindir,
kross á gálga hengdan hann.
Jesús hnígur öðru sinni undan krossinum
- P.
- Vér tilbiðjum þig, Drottinn Jesús Kristur, og vegsömum þig.
- A.
- Því að með þínum helga krossi hefur þú endurleyst heiminn.
- L.
- Stöðugt dregur úr þreki Drottins og þjáningarnar aukast. Hann hnígur niður öðru sinni, af meiri þunga og sársauka en áður. Með erfiðismunum rís hann á fætur til að ljúka fórn sinni að fullu.
- P.
- Ég er maðkur og eigi maður.
- A.
- Til háðungar fyrir menn og fyrirlitinn af lýðnum.
- P.
- Allir þeir, er sjá mig gera gys að mér.
- A.
- Bregða grönum og hrista höfuðið.
- L.
- Hversu oft föllum vér ekki í gamla freistni. Oss skortir þrek og þolgæði í trúarinnar góðu baráttu.
- P.
- Drottinn Jesús, yfirkominn af kvölum hneigst þú öðru sinni til jarðar undan krossinum. Vér biðjum þig:
- A.
- Vertu oss syndugum líknsamur.
Varð að líta sinn hinn sæta soninn kvölum einan mæta,
meðan lífið láta vann.
Jesús mætir grátandi Jerúsalemsdætrum
- P.
- Vér tilbiðjum þig, Drottinn Jesús Kristur, og vegsömum þig.
- A.
- Því að með þínum helga krossi hefur þú endurleyst heiminn.
- L.
- Við vegarbrúnina standa konur, sem gráta hinn þjáða Drottin. En samúðarfullum verður honum hugsað til þeirrar ógæfu, sem yfir þær mun koma.
- P.
- Grátið ekki yfir mér.
- A.
- En grátið yfir sjálfum yður og börnum yðar.
- P.
- Þér munuð segja við fjöllin: Hrynjið yfir oss.
- A.
- Og við hálsana: Hyljið oss.
- L.
- Vér komum aðeins auga á hina ytri kvöl en oss sést yfir þá neyð, er dýpra liggur og syndin veldur. Vér greinum einungis eigin þjáningar en erum blindir á annarra neyð.
- P.
- Drottinn Jesús, á meðan þú sjálfur kvaldist varð þér hugsað til allra þeirra þrenginga, sem börn og mæður þjóðar þinnar áttu í vændum. Vér biðjum þig:
- A.
- Vertu oss syndugum líknsamur.
Eia móðir, mér að finna meginsorga byrði þinna kenndu, lindin kærleikans.
Jesús hnígur þriðja sinni undan krossinum
- P.
- Vér tilbiðjum þig, Drottinn Jesús Kristur, og vegsömum þig.
- A.
- Því að með þínum helga krossi hefur þú endurleyst heiminn.
- L.
- Drottinn er örmagna af þreytu og kiknar undan krossbyrðinni þriðja sinni. En hann vill ljúka því verki, sem Faðirinn hefur falið honum. Þess vegna bítur hann á jaxlinn og tekur á öllu því þreki, sem hann á eftir.
- P.
- Sál mín er beygð í duftið.
- A.
- Líkami minn troðinn til jarðar.
- P.
- Sekt mannanna hrannast yfir mig.
- A.
- Hún íþyngir mér, eins og þung byrði.
- L.
- Einnig vér erum ókomnir á leiðarenda. Vér erum á leiðinni, gjarna einir og yfirgefnir. Sú stund, þegar allt virðist til einskis og síðasti kjarkurinn brestur, kann einnig að mæta oss.
- P.
- Drottinn Jesús, þriðja sinni féllst þú til jarðar undan oki synda vorra. En á ný hertir þú upp hugann.
- Vér biðjum þig:
- A.
- Vertu oss syndugum líknsamur.
Lát mig gráta með þér, mæta míns og Jesú krossins gæta,
meðan fjör í æðum er.
Jesús er rændur klæðum
- P.
- Vér tilbiðjum þig, Drottinn Jesús Kristur, og vegsömum þig.
- A.
- Því að með þínum helga krossi hefur þú endurleyst heiminn.
- L.
- Örmagna af þreytu kom Drottinn á Golgatahæð. Í allra augsýn fletta hermennirnir líkama hans klæðum og aftur tekur að blæða úr hýðingarsárum hans.
- P.
- Þeir skipta með sér klæðum mínum.
- A.
- Og kasta hlut um kyrtil minn.
- P.
- Frá hvirfli til ilja er ekkert heilt.
- A.
- Tómar skrámur og undir.
- L.
- Hversu oft sýnum vér ekki náunga vorum lítilsvirðingu? Vér berskjöldum hann og þykjumst ekkert gott sjá í fari hans.
- P.
- Drottinn Jesús, fyrir oss kaust þú einnig að bera smán sakamannsins.
- Vér biðjum þig:
- A.
- Vertu oss syndugum líknsamur.
Því að engin mér skal mærri mæðubót, né huggun stærri,
en að tárast þar með þér.
Jesús er krossfestur
- P.
- Vér tilbiðjum þig, Drottinn Jesús Kristur, og vegsömum þig.
- A.
- Því að með þínum helga krossi hefur þú endurleyst heiminn.
- L.
- Hermennirnir hrinda Jesú til jarðar. Þeir gegnumreka hendur hans og fætur og krossfesta hann. Síðan reisa þeir upp krossinn. Nú rættist orðið, sem Jesús sagði: „Þegar ég verð upphafinn frá jörðu, mun ég draga alla til mín.”
- P.
- Þeir hafa gegnumstungið hendur mínar og fætur.
- A.
- Þeir hafa talið öll mín bein.
- P.
- Þeir fengu mér malurt til matar.
- A.
- Og við þorstanum gáfu þeir mér vínsýru.
- L.
- Einnig vér erum einatt upp á aðra komnir. Vér erum njörvaðir niður við skylduverk, sem vér vildum gjarnan losna undan. En Kristur veitir oss kraftinn til að rækja þau í frelsi kærleikans.
- P.
- Drottinn Jesús, fyrir oss hefur þú látið neglast á kross.
- Vér biðjum þig:
- A.
- Vertu oss syndugum líknsamur.
Allra skírust mærin meyja,
mig ei láttu einan þreyja,
en þér harma æ við hlið.
Jesús deyr á krossinum
- P.
- Vér tilbiðjum þig, Drottinn Jesús Kristur, og vegsömum þig.
- A.
- Því að með þínum helga krossi hefur þú endurleyst heiminn.
- L.
- Drottin hangir negldur á krosstrénu. Hann biður fyrir kvalamönnum sínum. Á níundu stundu hrópar hann hárri röddu: „Guð minn, Guð minn, hví hefur þú yfirgefið mig?“ Og að dauða kominn mælir hann þessi bænarorð: „Það er fullkomnað. Faðir, í þínar hendur fel ég anda minn.“
- P.
- Vér tilbiðjum kross þinn, Drottinn, og lofum og vegsömum helga upprisu þína.
- A.
- Því að fyrir krosstréð er gleði veitt gervöllum heimi.
- P.
- Guð sé oss náðugur og blessi oss.
- A.
- Hann láti sína ásjónu lýsa yfir oss og sé oss líknsamur.
- L.
- Í augum kristins manns eru eigi framar til marklausar þjáningar. Jafnvel í dýpstu hyldýpisgjá stendur hinn krossfesti hjá honum.
- P.
- Drottinn Jesús, af auðsveipni við vilja Föðurins léstu lífið á krossi, mönnunum til hjálpræðis. Vér biðjum þig:
- A.
- Vertu oss syndugum líknsamur.
Lát mig kenna Drottins dauða,
dýr, og finna hlutann nauða,
hans og bölið berjast við.
Jesús er tekinn ofan af krossinum og lagður í skaut móður sinnar
- P.
- Vér tilbiðjum þig, Drottinn Jesús Kristur, og vegsömum þig.
- A.
- Því að með þínum helga krossi hefur þú endurleyst heiminn.
- L.
- Þjáningar Drottins eru á enda. Harmi sleginn og lotningarfullur tekur Jósef frá Arímaþeu líkama Drottins ofan af krossinum. Síðan er Jesús lagður í skaut sorgbitinnar móður sinnar.
- P.
- Allir þér, sem fram hjá farið, gætið að.
- A.
- Og sjáið, hvort til er eins kvöl og mín.
- P.
- Sjá, ég er ambátt Drottins.
- A.
- Verði mér eftir orði þínu.
- L.
- Einnig vér mætum dauðanum hvað eftir annað. Fólk, sem er oss nákomið deyr. Vor eigin dauði gengur óhjákvæmilega til móts við oss á lífsgöngu vorri.
- P.
- Drottinn Jesús, andvana líkami þinn var lagður í skaut móður þinnar.
- Vér biðjum þig:
- A.
- Vertu oss syndugum líknsamur.
Lát mig hörðum höggum særa,
hans að krossi glaðan færa,
fyrir sakir sonar þín.
Líkami Jesú er lagður í gröfina
- P.
- Vér tilbiðjum þig, Drottinn Jesús Kristur, og vegsömum þig.
- A.
- Því að með þínum helga krossi hefur þú endurleyst heiminn.
- L.
- Líkami Drottins er lagður í gröfina Þó fá helgreipar eigi haldið honum. Úr gröfinni rís lífið. Hin nýja sköpun er komin til sögunnar.
- P.
- Nema hveitikornið falli til jarðar og deyi, verður það einsamalt.
- A.
- En ef það deyr, ber það ríkulegan ávöxt.
- P.
- Sáð er forgengilegu, en upp rís óforgengilegt.
- A.
- Sáð er í veikleika, en upp rís í styrkleika.
- L.
- Vér eigum ekki að syrgja og sýta, eins og hinir, sem enga von hafa. Því Kristur er uppvakinn frá dauðum sem frumgróði þeirra, sem sofnaðir eru. Og eins og allir deyja í Adam, þannig verða allir lifandi gerðir í Kristi.
- P.
- Drottinn Jesús, þú hefur deilt með oss örlögum gínandi grafar. En á þriðja degi ert þú upp risinn frá dauðum. Vér biðjum þig:
- A.
- Vertu oss syndugum líknsamur.
- P.
- Heilagi Guð!
- A.
- Miskunna þú oss.
- A.
- Amen.
Vek mér eld og ást í huga,
að mér megi traust þitt duga þegar dómadagur skín.
Amen.
Heilagi, sterki Guð!
Heilagi, ódauðlegi Guð!
LOKABÆN Almáttugi, eilífi Guð, vér þökkum þér, að með dauða og upprisu Sonar þíns hefur þú endurnýjað líf vort. Gef, að fyrir þátttöku í þjáningarferli hans, séum vér reiðubúnir að bera kross vorn af þolinmæði og þrautseigju, og að þjóna þér af trúmennsku. Veit náð þína öllum þeim, sem vér höfum minnst í bænum vorum og leið framliðna ástvini vora til upprisunnar.
Fyrir páfanum og fyrirbænum hans:
Faðir vor…, Maríubæn, Dýrð sé…













