Smurning sjúkra

Smurning sjúkra

Nicolas Poussin, 1636

Ekki aðeins síðasta smurningin

Þetta sakramenti var lengi kallað síðasta smurningin og margir halda enn að það sé eingöngu fyrir þá sem eru að deyja. Það er ekki rétt. Það er fyrir hvern þann sem er alvarlega veikur, fyrir aldraða sem eru orðnir hrumir og fyrir þann sem á fyrir höndum stóra aðgerð.

Það má taka á móti því oftar en einu sinni, til dæmis ef veikindi versna.

Óstaðfestur texti

Hvernig hún fer fram

Æskilegt er að allir kaþólskir menn meðtaki sakramentin fyrir andlát. Smurning sjúkra og deyjandi er afar mikilvæg í kaþólskri trú. Smurning fer þannig fram að prestur ber olíu á enni og hendur sjúklings. Í smurningunni leitar sjúklingurinn heilsu á ný og/eða styrks til að mæta þjáningunni og því sem verða vill.

Ef andlát er yfirvofandi vinsamlegast bíðið ekki með að hafa hafið samband við prest.

Nánari upplýsingar um prestþjónustu við sjúka, útför og greftrun veita sóknarprestar.

Þegar dauðinn nálgast

Dauðinn eru afdráttarlaus endalok. Oft á tíðum nálgast dauðinn hægt og við getum búið okkur undir hann en stundum andast menn skyndilega. Fyrir ættingja og vini er alltaf sárt að kveðja. Á þessum erfiðu tímum finnur fólk huggun í samúð annarra og í þeirri fullvissu að dauðinn er ekki endir alls. Sú von birtist á Páskunum, þegar Drottinn umbreytir dauða í nýtt líf. Þessi von kemur fram í bænum og í tilbeiðslu trúaðra.

Hvernig á að kalla til prest

Hringdu í sóknarprestinn. Ef ástandið er alvarlegt skaltu segja það strax — prestar koma á sjúkrahús og heimili og biðja um að vera kallaðir fyrr fremur en seinna. Símanúmerin eru undir „Tala við prest“ hér í appinu.

Óstaðfestur texti

Texti frá catholica.is. Kaflar merktir „Óstaðfestur texti“ eru okkar eigin texti og bíða yfirlestrar sóknarinnar.